„Á meðan fyllast öll koffort í Moskvu af peningum“

Ásgeir Brynjar Torfason bendir á að þrátt fyrir að Evr­ópu­þjóðir séu vilj­ugar að hætta að kaupa olíu og gas af Rússum þá taki slíkar aðgerðir tíma.

Ásgeir Brynjar Torfason hagfræðingur.
Ásgeir Brynjar Torfason hag­fræð­ingur. Mynd: Skjáskot/RÚV

Ásgeir Brynjar Torfason doktor í fjár­málum telur að þving­un­ar­að­gerðir í efna­hags­málum bíti Rússa lítið vegna þeirra greiðslna sem þeir fá fyrir gas og olíu – en verðið á þessum vöru hækkar með hverjum deg­inum sem líður.

Þetta kom fram í máli hans í Silfrinu á RÚV um helg­ina.

Egill Helgason spurði Ásgeir Brynjar í fram­hald­inu hvort Evr­ópu­þjóðir myndi vilja hætta að kaupa olíu og gas af Rússum í ljósi aðstæðna.

Ásgeir Brynjar telur að svo sé. „Jú, en það tekur tíma. Þeir eru búnir að segj­ast ætla að draga úr því um 60 til 80 pró­sent fram til árs­loka. Það er verið á fullu að koma upp öðrum leiðum og þetta hraðar nátt­úru­lega umbreyt­ingu á orku­kerfum í Evrópu en þetta tekur allt tíma. Á meðan fyll­ast öll koff­ort í Moskvu af pen­ingum fyrir gasið sem er orðið dýr­ara og olí­una.“

[adspot]

Búið að færa rússneskt efnahagslíf aftur um 20 til 30 ár

Egill spurði jafn­framt hvort þving­un­ar­að­gerðir gegn Rússum út af stríð­inu hefðu virkað og hvort þær væru nægi­lega víð­feðmar.

„Ja, það sem kom á óvart frá því fyrstu helg­ina eftir stríð, frá því ég var hérna síð­ast, var að við­skipta­lífið tók sig eig­in­lega til og bætti fullt við í að herja á Rússland með því að draga við­skipti sína þaðan burtu – miklu meira en hinar opin­beru aðgerðir voru raun og veru að krefj­ast eða fara fram á. Þannig að það er búið að færa rúss­neskt efna­hags­líf aftur um 20 til 30 ár á tveimur þremur viku.“

Fólk mun svelta

Ásgeir Brynjar sagði að þrátt fyrir efna­hags­þving­anir væri nægt flæði af pen­ingum inn í landið en þó væru öll vest­ræn fyr­ir­tæki að draga sig þaðan burtu.

„Þær mögu­lega verða þá þjóð­væddar verk­smiðj­urnar þeirra sem standa þarna eftir og það er óvíst hvernig tekst að koma þeim í gang aftur. Það er auð­velt með McDonalds-ham­borg­ara­stað­ina en kannski flókn­ara með BMW-bíla­verk­smiðjur. Og þetta er í raun og veru óvíst ennþá vegna þess að stríðið er í fullum gangi.“

Hann sagði að stóra spurn­ingin væri hversu lengi stríðið myndi vara. Hann sagði að stríðið hefði jafn­framt slæm áhrif á efna­hags­kerfi heims­ins. „Það tapa allir á stríð­inu en það fara alls konar umbreyt­ing­ar­ferlar í gang; það að olíu­verðið fari upp, að hrá­vöru­verðið fari upp og að þetta verður hökt eins og þegar COVID kom í alls konar keðjur hvort sem er af orku eða málmum eða hrá­vörum. Við sjáum hveitið núna, sem er ekki bara orðið dýr­ara, að það er líka ekki verið að planta fyrir næstu upp­skeru. Þannig að verðið verður á næsta ári líka hátt og hjálp­ar­stofn­anir í suð­ur­hluta heims­ins eru bara með ákveðið magn af pen­ingum til að kaupa korn – þannig að fólk er að fara að svelta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár