Rassleysi rýrnandi manna og draumurinn um stærra skott

Síðastliðin ár hafa karlmenn sem stunda lyftingar aukið fókusinn á æfingar sem stæla rass­vöðvana. Fjallað hefur verið um þetta í erlendum fjöl­miðlum og má tala um rassa­byltinguna. Einka­þjálfarinn Konráð Gíslason segir að þeir dagar séu liðnir að karlmenn séu litnir hornauga fyrir að gera rass­æfingar.

Rassa­öfundin er systir annarrar þekktrar tilfinningar hjá karl­mönnum: Typpa­öfundarinnar.

Hún lýsir sér í því að karlmenn eru með minni­máttarkennd út af stærðinni á rassinum á sér, vöðva­leysi hans, flatneskju eða vegna þess að hann er innfallinn, síður eða jafnvel bara eiginlega horfinn. Þessar hugsanir gera það að verkum að þeir fara að horfa öfundar­augum á aðra þrýstnari og stærri rassa og bera þá saman við sinn eigin. 

Munurinn á rassa­öfundinni og typpa­öfundinni er sá að rassar eru alls staðar sýnilegir og sama­burðarhæfir. Þess vegna sækir þessi gerð öfundar tíðar að í daglega lífinu þar sem forsenda hennar er ekki kviknekt. Enginn getur hlaupið undan því að fá karla­rassa í buxum inn í sjón­sviðið.

„Strákar eru vissu­lega farnir að huga meira að þessu: Að vilja vera með stóra og stæði­lega bossa“
Konráð Gíslason,
einka­þjálf­ari í World Class

…

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár