Falsarinn

Þeir voru ekki kátir yfir­menn sænska hers­ins þegar þeir upp­götv­uðu að í þeirra hópi var maður sem hafði logið sig til met­orða, og lagt fram fölsuð próf­skír­teini. Maðurinn hafði fyrir rúmum tutt­ugu árum verið rek­inn úr sænska liðs­for­ingja­skól­anum.

Fals­ar­inn, eins og sænskir fjöl­miðlar kalla hann, var síð­ast­liðið sumar val­inn sér­stak­lega (head­hunted) til að gegna starfi yfir­manns sænsku frið­ar­gæslu­sveit­anna (undir stjórn Sam­ein­uðu þjóð­anna) í Malí. Skömmu áður en fals­ar­inn, sem ekki hefur verið nafn­greindur, átti að halda af stað til Afríku fékk yfir­stjórn sænska hers­ins upp­lýs­ingar um að hann hefði árið 2018 verið rek­inn úr yfir­manns­stöðu í strand­gæsl­unni. Þá hafði kom­ist upp að árið 2016 þegar hann skráði sig í strand­gæsl­una hefði hann lagt fram fals­aða papp­íra, meðal ann­ars að hann væri stjórn­mála­fræð­ingur að mennt. Það vakti athygli þegar hann sótti um starfið í strand­gæsl­unni að hann hafði ekki bíl­próf, sem er þó skil­yrði fyrir starf­inu. Strand­gæslan vakti athygli yfir­stjórnar hers­ins á þessu en ekk­ert var gert með þá ábend­ingu.

Danskir fjöl­miðlar rifj­uðu upp, af þessu til­efni, að Anna Castberg fyrsti for­stöðu­maður lista­safns­ins Arken á Sjálandi, sem var opnað með pomp og prakt árið 1996, hafði meðal ann­ars lagt fram falsað skír­teini um dokt­ors­próf og „heima­til­búin“ vott­orð frá vinnu­veit­endum. Anna Castberg var rekin fjórum mán­uðum eftir að safnið var opnað. Hún hafði verið valin úr stórum hópi umsækj­enda.

Kosovo og Malí

En aftur að fals­ar­anum. Hann hafði, áður en kom að hinu fyr­ir­hug­aða yfir­manns­starfi í Malí, verið útsendur á vegum sænska hers­ins í Kosovo og Afganistan. Í báðum löndum hafði hann gegnt stöðu liðs­for­ingja og haft aðgang að margs konar leyni­legum upp­lýs­ingum. Einnig hafði fals­ar­inn unnið hjá Rann­sóknar- og leyni­þjón­ustu sænska hers­ins, MUST. Í þeim störfum sem hér hafa verið nefnd er kraf­ist sér­mennt­unar innan hers­ins og við­bót­ar­mennt­unar frá sænska her­skól­anum. Fals­ar­inn hafði hvor­ugt. Hjá Rann­sóknar- og leyni­þjón­ust­unni hafði fals­ar­inn meðal ann­ars unnið hjá dulkóð­unar- og net­ör­ygg­is­deild­inni.

Vinsæll meðal samnemenda

Sænska dag­blaðið Dagens Nyheter, sem hefur fjallað ítar­lega um mál fals­ar­ans, ræddi meðal ann­ars við nokkra sam­nem­endur hans við liðs­for­ingja­skól­ann. Þeir mundu vel eftir fals­ar­anum og sögðu að hann hefði verið mjög vin­sæll meðal nem­enda. Þeir mundu líka vel eftir að hann hafði verið rek­inn úr skól­anum, skömmu fyrir síð­ustu alda­mót þegar upp komst að hann hefði falsað ein­kunnir sínar úr mennta­skóla, puntað upp á þær, eins og einn við­mæl­enda Dagens Nyheter orð­aði það.

Fáeinum árum síðar var hann kom­inn í stöðu liðs­for­ingja. Þá stöðu fékk hann, að sögn blaðs­ins, eftir að hann hafði skilað inn gögnum um liðs­for­ingja­menntun sína. Þeir papp­írar báru und­ir­skrift­ina Per Carlsson. Mjög algengt nafn í Svíþjóð, en hins­vegar var eng­inn með þessu nafni í for­svari fyrir liðs­for­ingja­skól­ann á árunum sem um ræðir.

Hjá hernum í tæpa tvo áratugi

Eftir að fals­ar­inn fékk liðs­for­ingja­starfið, út á papp­írana frá „Per Carlsson“, gegndi hann eins og áður var nefnt marg­hátt­uðum störfum störfum hjá hernum, í tæpa tvo ára­tugi. Meðal ann­ars setið fjöl­margar ráð­stefnur fyrir hönd hers­ins, átt marga fundi með full­trúum erlendra ríkja, þar á meðal Rússa, og unnið fyrir sænska vopna- og her­gagna­fram­leið­and­ann Saab. Þótt Svíar séu ekki aðilar að NATO starfa þeir mikið með banda­lag­inu og fals­ar­inn hefur sótt marga fundi í Brussel, sem full­trúi sænska hers­ins. Einnig hefur hann dvalið lang­dvölum í bæki­stöðvum her­sveita NATO í Mons í Belgíu.

Þingmenn vilja skýringar

Dagens Nyheter, sem er eitt mest lesna dag­blað Sví­þjóðar, hefur frá því lok nóv­em­ber í fyrra birt á þriðja tug greina um falsar­ann. Umfjöllun blaðs­ins vakti strax mikla athygli í Svíþjóð og síðan hafa komið fram marg­hátt­aðar upp­lýs­ingar um falsar­ann og fer­ill hans innan sænska hers­ins verið rak­inn ítar­lega. Spurn­ing­unni um það hvernig á því geti staðið að þessi maður, fals­ar­inn, hafi getað kom­ist jafn langt og raun ber vitni innan hers­ins hefur eng­inn getað svarað.

Fyrir hálfum mán­uði sátu varn­ar­mála­ráð­herr­ann Peter Hultquist og Micael Bydén yfir­maður sænska hers­ins fyrir svörum hjá varn­ar­mála­nefnd sænska þings­ins, Riks­dagen. Þar gengu þing­menn hart fram og kröfð­ust skýr­inga. Tví­menn­ing­arnir gátu litlu svarað en lögðu mikla áherslu á að séð yrði til þess að sagan um falsar­ann gæti ekki end­ur­tekið sig. Micael Bydén yfir­maður hers­ins sagði það greini­legt að orð fals­ar­ans um nám sitt og starfs­reynslu hefðu ætíð verið tekin trú­an­leg. Í þau fáu skipti sem hann hefði lagt fram papp­íra varð­andi nám og störf hefði ekki verið gengið úr skugga um að þau skjöl væru ekta, eins og kom­ist var að orði.

Micael Byden lagði jafn­framt á það ríka áherslu að fals­ar­inn hefði verið heið­ar­legur í störfum sínum og allir bæru honum gott orð. Hann hefði verið dug­legur og sinnt störfum sínum af kost­gæfni.

„Ég segi þetta ekki til að afsaka neitt en þykir rétt að þetta komi fram,“ sagði hers­höfð­ing­inn.

Í lokin er rétt að geta þess að innan hers­ins er hafin rann­sókn og end­ur­skoðun á öllu vinnu­lagi varð­andi ráðn­ingar her­manna og þeirra sem starfa á vegum hers­ins.

Af fals­ar­anum er það að segja að hann hefur verið leystur undan vinnu­skyldu meðan rann­sókn á máli hans fer fram en heldur jafn­framt fullum launum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár