Stefnt að því að koma Íslandi í efstu sætin á Regnbogakortinu

For­sæt­is­ráð­herra hefur lagt fram fram­kvæmda­á­ætlun í mál­efnum hinsegin fólks í 17 liðum fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Á meðal aðgerða er að stjórn­endur hjá rík­inu og lög­reglu­menn fái fræðslu um mál­efni hinsegin fólks.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagði fyrr í vik­unni fram drög að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um fram­kvæmda­á­ætlun í mál­efnum hinsegin fólks, þar sem finna má 17 aðgerðir sem ætlað er að stuðla að rétt­ar­bótum og bættri stöðu hinsegin fólks. Drögin eru til umsagnar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Aðgerð­irnar eru af ýmsum toga og áætlað er að ráð­ast í þær víða, hjá ráðu­neytum og stofn­unum hins opin­bera. Þær rúm­ast flestar innan fjár­heim­ilda þeirra ráðu­neyta eða stofn­ana sem ætlað er að hrinda þeim í fram­kvæmd, en þó eru á því tvær und­an­tekn­ingar.

Ein aðgerð­anna er sú að vinna að því að koma Íslandi í eitt af efstu sæt­unum á regn­boga­korti ILGA Europe, sem eru regn­hlífa­sam­tök hinsegin félaga­sam­taka í Evrópu. Þau gera árlega úttekt á laga­legri stöðu hinsegin fólks í álf­unni og birta á svoköll­uðu Regn­boga­korti. „Ísland er nú í 14. sæti á list­anum og hefur þok­ast upp list­ann und­an­farin ár. Mark­miðið er að koma Íslandi í fremstu röð í mál­efnum hinsegin fólks,“ segir í til­lög­unni frá for­sæts­is­ráð­herra.

Efst á blaði í þings­á­lykt­un­ar­drög­unum eru fram­lög til svo­kall­aðs fram­kvæmda­sjóðs hinsegin mál­efna, sem eiga að verða 10 millj­ónir á ári eða 40 millj­ónir alls á árunum 2022-2025. Þetta er nýr sjóður sem á að úthluta fé til ákveð­inna verk­efna, nánar til­tekið sam­starfs­verk­efna ráðu­neyta og rík­is­stofn­ana eða háskóla­sam­fé­lags­ins „þar sem til­gang­ur­inn er að nýta nið­ur­stöður, reynslu og þekk­ingu á sviði mál­efna hinsegin fólks eða inn­leiða til­lögur á grunni verk­efna í fram­kvæmda­á­ætlun.“ For­sæt­is­ráðu­neytið mun úthluta úr þessum sjóði eftir umsóknum frá ráðu­neytum.

Einnig á að verja sér­stak­lega fé í það að kort­leggja stöðu og rétt­indi hinsegin fólks á Íslandi í sam­starfi við Rann­sókna­stofnun í jafn­rétt­is­fræðum (RIKK). Meðal ann­ars á að horfa til lög­gjafar og stefnu­mót­unar stjórn­valda, stöðu hins­vegin barna og ung­menna í skólum, stöðu á vinnu­mark­aði, stöðu eldri borg­ara innan hinsegin sam­fé­lags­ins og fleiri þátta. Áætlaður kostn­aður við þetta verk­efni, sem vinn­ast skal á árunum 2022-2024 eru 5 millj­ónir króna.

Hatursorðræða á grundvelli kyneinkenna verði refsiverð

Á lista yfir aðgerðir má finna nokkrar laga­breyt­ingar sem eiga að bæta rétt­ar­stöðu hinsegin fólks. Þannig stendur til að breyta hegn­ing­ar­lögum þannig að ákvæði um hat­urs­orð­ræðu taki líka hat­urs­orð­ræðu á grund­velli kynein­kenna. Laga­á­kvæðið tekur nú ein­ungis til hat­urs­orð­ræðu á grund­velli þjóð­ernis, lit­ar­háttar, kyn­þáttar, trú­ar­bragða, kyn­hneigðar og kyn­vit­undar.

Samhliða á að gera það refsi­vert að neita ein­stak­lingi um vörur eða þjón­ustu til jafns við aðra á grund­velli kynein­kenna og sömu­leiðis breyta ákvæðum hegn­ing­ar­laga þannig að það leiði til refsi­þyng­ingar ef brot telj­ist hat­urs­glæpur.

Skoðanakönnun um stöðu hinsegin fólks í sjávarútvegi og landbúnaði

Sem áður segir kennir ýmissa grasa í aðgerða­á­ætl­un­inni. Þannig er lagt upp með að sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytið ráð­ist í gerð könn­unar á við­horfi og stöðu hinsegin fólks innan sjáv­ar­út­vegs og land­bún­aðar, en þó ekki fyrr en á árunum 2024-2025.

[adspot]

„Markmið aðgerð­ar­innar er að vekja athygli á stöðu hinsegin fólks í sjáv­ar­út­vegi og land­bún­aði og mik­il­vægi fjöl­breyti­leika í öllum atvinnu­greinum,“ sam­kvæmt því sem segir í drög­unum frá for­sæt­is­ráð­herra.

Margskonar fræðsla og rannsóknir

Eft­ir­taldir hópar munu fá fræðslu um mál­efni hinsegin fólks á kjör­tíma­bil­inu, sam­kvæmt drögum að aðgerða­á­ætl­un­inni; kjörnir full­trúar og starfs­fólk sveit­ar­fé­laga, stjórn­endur hjá rík­inu og lög­reglan. Í grein­ar­gerð for­sæt­is­ráð­herra sem fylgir aðgerða­á­ætl­un­inni segir að það sé mik­il­vægt að þekk­ing sé til staðar hjá lög­reglu um mál­efni hinsegin fólks, „svo tekið sé á verk­efnum sem inn á borð hennar koma án for­dóma og mis­mun­unar.“

Auk áður­nefndrar skoð­ana­könn­unar í sjáv­ar­út­vegi og land­bún­aði er lagt upp með að ráð­ist verði í úttekt á líðan hinsegin barna í skóla­kerf­inu og sömu­leiðis rann­sókn á heim­il­is­of­beldi í hinsegin sam­böndum og fjöl­skyldum. „Lítil þekk­ing er á heim­il­is­of­beldi í hinsegin sam­böndum og fjöl­skyldum á Íslandi og er mik­il­vægt að bæta þekk­ingu í mála­flokknum til að takast á við vand­ann og vinna að úrbótum,“ segir um síð­ar­nefnda málið í drög­unum að aðgerða­á­ætl­un­inni.

Íslandi beiti sér á alþjóðavettvangi

Ein aðgerð­anna sem lögð er til af for­sæt­is­ráð­herra er svo sú að utan­rík­is­ráðu­neytið nýti öll tæki­færi til að hafa jákvæð áhrif á stöðu hinsegin fólks í löndum sem þau eiga í sam­skiptum við og beiti sér sér­stak­lega fyrir bættri stöðu hinsegin fólks á alþjóða­vett­vangi.

„Ísland stendur fram­ar­lega þegar kemur að rétt­indum og félags­legri stöðu hinsegin fólks og stjórn­völd geta nýtt þá stöðu og reynslu til að hafa áhrif á stöðu og rétt­indi hinsegin fólks ann­ars staðar í heim­inum,“ segir um þetta efni, í drög­unum frá for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár