Ísland grænkar á Regnbogakortinu eftir samþykkt laga um kynrænt sjálfræði

Ísland fær­ist upp um fjögur sæti á milli ára, upp í 14. sæti, í hinu svo­nefnda Regn­boga­korti, árlegri úttekt Alþjóða­sam­taka hinsegin fólks á rétt­inda­stöðu hinsegin fólks í Evrópu.

Því grænna, því betri er mannréttindastaðan. Ísland fikrar sig upp um fjögur sæti á milli ára hvað varðar lagalega stöðu hinsegin fólks.
Því grænna, því betri er mann­rétt­inda­staðan. Ísland fikrar sig upp um fjögur sæti á milli ára hvað varðar laga­lega stöðu hinsegin fólks. Mynd: ILGA-Europe

Ísland fer upp um fjögur sæti á milli ára í Regn­boga­kort­inu, úttekt evr­ópsku deildar Alþjóða­sam­taka hinsegin fólks (ILGA-Europe) á stöðu og rétt­indum hinsegin fólks í ríkjum Evrópu. Ísland er nú í 14. sæti en var í 18. sæti þegar kortið var gefið út á síð­asta ári.

Kortið, sem sjá má hér að ofan, sýnir á mynd­rænan hátt mat sam­tak­anna á laga­legri stöðu og rétt­indum hinsegin fólks í ríkjum Evrópu eins og þau voru á árinu 2019. Ísland telst, sam­kvæmt mati sam­tak­anna, vera búið að tryggja hinsegin fólki 54 pró­sent mann­rétt­indi, sem er yfir bæði með­al­tali Evr­ópu­sam­bands­ríkja (48 pró­sent) og Evrópu í heild (38 pró­sent).

Þó stendur Ísland hinum Norð­ur­lönd­unum nokkuð að baki, en þau eru að mati sam­tak­anna búin að tryggja hinsegin fólki á bil­inu 63-68 pró­sent mann­rétt­indi og eru í 4.-10. sæti á list­anum. Ísland hækkar þó mest allra Norð­ur­land­anna á milli ára. Mið­jarð­ar­hafs­eyjan Malta trónir á toppi list­ans.

Í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu segir að sam­þykkt laga um kyn­rænt sjálf­ræði, sem stað­festi rétt ein­stak­linga til að breyta kyn­skrán­ingu sinni í sam­ræmi við eigin upp­lifun, hafi þýtt veru­legar rétt­ar­bætur til handa trans og inter­sex fólki og að Ísland stefni að því að tryggja enn betur rétt­indi þess­ara hópa.[links]

„Starfs­hópar á vegum for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins vinna að til­lögum um breyt­ingar á lögum sem nauð­syn­legar eru til að tryggja rétt­indi trans og inter­sex fólks. Þá er einnig unnið að mál­efnum barna sem fæð­ast með ódæmi­gerð kynein­kenni, þar á meðal heil­brigð­is­þjón­ustu við þau,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Síðara atriðið er einmitt eitt af þeim atriðum sem ILGA-Europe leggja til að skoðuð verði nánar hér­lendis, í því skyni að bæta rétt­inda­stöðu hinsegin fólks.

Samtökin leggja þannig til, í skýrslu sinni, að Íslend­ingar banni allt óþarft inn­grip í lík­ama barna sem fæð­ast með ódæmi­gerð kynein­kenni, sem megi fresta þar til mann­eskjan geti veitt upp­lýst sam­þykki fyrir aðgerð­inni og segja miður að rétt­indi inter­sex fólks hafi ekki verið varin í sam­þykktum lögum um kyn­rænt sjálf­ræði að þessu leyti.

Í umfjöllun sam­tak­anna um stöðu mála á Íslandi eru bæði til­tekin nei­kvæð og jákvæð dæmi um stöðu hinsegin fólks sem fram komu í fréttum á síð­asta ári.

Meðal ann­ars er rifjað upp þegar ungum sam­kyn­hneigðum manni var meinuð inn­ganga á skemmti­stað­inn Austur í mið­borg Reykja­víkur síð­asta sumar og þegar regn­boga­fánum var flaggað af miklum móð við komu Mike Pence vara­for­seta Banda­ríkj­anna hingað til lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár