Ráðherrarnir funduðu á óþekktum stað um framhald ríkisstjórnarinnar

Fjár­mála­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra fund­uðu um stöðu rík­is­stjórn­ar­innar. Ekki fékkst upp­gefið hvar þeir fund­uðu. Fram­sókn­ar­menn hafa sagt stöðu for­sæt­is­ráð­herra erf­iða. Forseti Íslands ætlar að hitta Sigmund og Bjarna í dag.

Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson funda í dag um stöðu ríkisstjórnarinnar.
Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son funda í dag um stöðu rík­is­stjórn­ar­innar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra fund­uðu nú fyrir hádegi um þá stöðu sem komin er upp innan rík­is­stjórn­ar­innar. Bjarni kom til lands­ins í morgun frá Banda­ríkj­unum og lét það verða sitt fyrsta verk að hitta Sigmund.

Ekki fæst upp­gefið hvar ráð­herr­arnir fund­uðu. Ekki næst í aðstoð­ar­menn þeirra og upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar seg­ist í sam­tali við Kjarnann ekki vita hvar þeir eru. 

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, kom einnig til lands­ins í morgun. Hann var í einka­er­indum erlendis og flýtti heim­för sinni í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin. Hann ætlar að eiga fund með Sigmundi og Bjarna í dag. Í við­tali við Vísi.is segir hann stöð­una innan rík­is­stjórn­ar­innar alvar­lega. 

Stjórn­ar­and­staðan hefur verið að funda í morgun og for­menn og þing­flokks­for­menn þeirra ætla að hitt­ast klukkan 12 í þing­hús­inu á form­legum fundi.

Afstaða framsóknarmanna breytist hratt

Afstaða fram­sókn­ar­manna til stöðu for­sæt­is­ráð­herra hefur breyst tölu­vert á síð­ustu dögum. Nú síð­ast sagði Karl Garð­ars­son, þing­maður flokks­ins, við RÚV að Sig­mundur þurfi að skýra mál sitt betur og leggja fram öll gögn tengdu Wintris-mál­inu. Sig­mundur sagði í gær á Stöð 2 að það kæmi til greina að gera það.

Ásmundur Einar Daðason sagð­ist í gær styðja for­ystu flokks­ins „eins og staðan væri í dag”. Þá hefur Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn á Akureyri lýst því yfir að Sig­mundur eigi að segja af sér og njóti ekki lengur stuðn­ings.

Fréttin hefur verið upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár