Framsóknarmenn á Akureyri krefjast afsagnar Sigmundar Davíðs

Næstum allt for­ystu­fólk Fram­sókn­ar­manna á Akureyri krefst þess að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son víki sem for­sæt­is­ráð­herra.

Hópur fram­sókn­ar­manna á Akureyri, stærsta þétt­býl­iskjarn­anum í kjör­dæmi for­sæt­is­ráð­herra, Norð­aust­ur­kjör­dæmi, skorar á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra að segja af sér strax vegna trún­að­ar­brests milli for­sæt­is­ráð­herra og flokks­manna. Full­trúa­ráð sjálf­stæð­is­fé­lag­anna á Akureyri, auk aðal- og vara­bæj­ar­full­trúa taka undir það og segja að rík­is­stjórnin geti ekki starfað áfram undir for­ystu núver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá flokks­mönnum á Akureyri.

Undir yfir­lýs­ing­una skrifa meðal ann­ars bæj­ar­full­trúar og vara­bæj­ar­full­trúar flokks­ins á Akureyri.

„Vegna þess trún­að­ar­brests sem við teljum að skap­ast hafi milli for­sæt­is­ráð­herra og flokks­manna Fram­sókn­ar­flokks­ins sem og lands­manna allra, skorum við á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son að segja sig frá störfum for­sæt­is­ráð­herra án frek­ari tafa.

Guð­mundur Baldvin Guð­munds­son bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins á Akureyri, Ingi­björg Ólöf Isaksen bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins á Akureyri, Siguróli M. Sig­urðs­son vara­bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins á Akureyri, Tryggvi Már Ingv­ars­son vara­bæj­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins á Akureyri, Óskar Ingi Sig­urðs­son vara­for­maður umhverf­is­nefndar Akur­eyr­ar­bæjar, Jóhannes Gunnar Bjarna­son, Jakob Björns­son, Björn Snæ­björns­son, og Viðar Valdi­mars­son,“ segir í yfir­lýs­ing­unni, sem birt­ist meðal ann­ars á Facebook síðu Tryggva Más Ingv­ars­sonar, vara­bæj­ar­full­trúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár