Fyrsta dauðsfallið í Formúlu 1 í 21 ár

Jules Bianchi er lát­inn eftir slysið sem hann lenti í í jap­anska kappakstr­inum haustið 2014.

Jules Bianchi var ökumaður Marussia-liðsins.
Jules Bianchi var öku­maður Marussia-liðs­ins. Mynd: AHMAD YUSNI

Franski öku­þór­inn Jules Bianchi lést af áverkum sínum sem hann hlaut í jap­anska kappakstr­inum í októ­ber á sjúkra­húsi í heimabæ hans Nice á dög­unum. Útför hans var gerð í dag. Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um slysið og þá hættur sem öku­menn leggja líf sitt til að þróa tækni fyrir almenn­ing.

Fráfall Bianchi er það fyrsta í Formúlu 1-kappakstri síðan Ayrton Senna og Roland Ratzenberger fór­ust fyrir rúm­lega 21 ári, kappakst­urs­helg­ina 1. maí 1994. Þá voru liðin 12 ár frá síð­asta dauðs­falli í þess­ari vin­sæl­ustu móta­röð allra tíma.

Bianchi hafði glímt við mjög alvar­lega höf­uð­á­verka eftir slysið og komst aldrei til með­vit­undar. Slysið varð þegar hann missti stjórn á kappakst­urs­bíl sínum við erf­iðar aðstæður á Suzuka-braut­inni í Japan og flaug yfir mal­ar­gryfju sem hefði átt að draga úr hraða hans. Áður hafði kappakst­urs­bíll Adrian Sutil farið út af braut­inni á sama stað og unnu braut­ar­starfs­menn að því að koma bíl Sutil í burtu. Þess vegna var krani inn á braut­ar­svæð­inu sem Bianchi lenti í árekstri við.

Formúlu 1-bílar eru þannig byggðir að nær allur lík­ami öku­manna er var­inn með hertu kol­trefja­plasti sem hefur stað­ist strangar styrkt­ar­kröfur. Það eina sem hjúpur bíls­ins ver ekki er höfuð öku­manns­ins en þar lenti mesta höggið í árekstri Bianchi við kran­ann.

Formúla 1-móta­röðin hefur frá upp­hafi verið leið­andi í þróun bún­aðar sem nýst hefur fyrir bíla í almenn­ings­eigu. Stærstu bíla­fram­leið­endur heims kepp­ast þar við að þróa besta mögu­lega bún­að­inn sem svo á end­anum nýt­ist í fólks­bíla. Und­an­farin 25 ár hefur örygg­is­bún­aður í bíla verið helsta afurð Formúlu 1, allt frá flóknum heml­un­ar­bún­aði, yfir í full­komn­ara ytra byrði bíla.

Eddie Jordan, fyrrum liðs­eig­andi í Formúlu 1, lét hafa eftir sér í sam­tali við BBC Sports að hann teldi Bianchi hafa verið fram­tíðar heims­meist­ara. „Við finnum sjaldan gim­steina eins og Lewis Hamilton, Ayrton Senna og Michael Schumacher. Jules hafði hæfi­leika til að kom­ast í þann flokk.“

Jules Bianchi er 32. öku­þór­inn sem ferst í Formúlu 1-kappakstri síðan móta­röðin hófst árið 1950.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár