Leikhús í landi góða fólksins

Sjálf­stæðu leik­hóparnir eru óvenju öflugir í ár að mati Snæbjörns Brynjars­sonar, en hann rýnir í leikár sem ekki hefur verið laust við umdeildar sýningar, harkalegar gagnrýnenda­deilur og jafnvel leikhús­bölvanir.

Óþelló
Óþelló Umræðan um sýn­ing­una Óþelló sner­ist lítið um Óþelló og aðal­lega um gagn­rýnendur Óþelló. Mynd: Þjóðleikhúsið

 

Af því sem er liðið af þessu leikári standa tvær sýningar upp úr, Sóley Rós ræstitæknir og Andaðu. Báðar eru úr sjálf­stæðu senunni, saga beggja verka spannar áratugi, innifelur barns­fæðingar og er flutt af tvíeyki. Það sem fær þessi tvö verk til að skara fram úr öllu öðru sem í boði hefur verið á þessu leikári er frábær frammistaða leik­aranna og einfaldar, en þó djúpar sögur, sem hreyfa við manni.

Sólveig Guðmunds­dóttir stimplaði sig inn sem drottning sjálf­stæðu senunnar með flutningi sínum í Tjarnar­bíói. Ræstitæknirinn Sóley var ótrúlega sjarmerandi, fyndin og einlæg, og ævisaga hennar sem hefði dugað í nokkur verk, hreyfði bersýni­lega mjög við áhorf­endum og vakti heitar umræður. Sveinn Ólafur Gunnarsson, sem lék Halla, mann hennar, var meira í stuðnings­hlutverki en leysti það mjög vel.

Andaðu, sem var frumsýnd nokkrum mánuðum síðar hinum megin við Ráðhúsið, í Iðnó, er þýðing á nýlegu verki eftir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár