Fjalar Sigurðarson ráðinn upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytis

Fjalar var áður mark­aðs­stjóri Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands en hún var lögð niður 1. júlí. Alls sóttu 34 um starf upp­lýs­inga­full­trúa sem var aug­lýst í vor.

Fjalar Sig­urð­ar­son hefur verið ráð­inn upp­lýs­inga­full­trúi í dóms­mála­ráðu­neyt­inu úr hópi 34 umsækj­enda. Hann hefur nú þegar hafið störf. Fjalar gegndi áður starfi mark­aðs­stjóra Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar en hún var lögð niður þann 1. júlí síð­ast­lið­inn. Fjalar hafði áður starfað sem ráð­gjafi í mark­aðs- og kynn­ing­ar­málum um ára­bil en hann lauk MBA gráðu frá Háskól­anum í Reykja­vík árið 2010. Þar að auki hefur Fjalar starfað hjá hinum ýmsu fjöl­miðlum, meðal ann­ars á RÚV, Stöð 2 og Skjá einum. [links]

Staða upp­lýs­inga­full­trúa var aug­lýst fyrr á á þessu ári, en umsókn­ar­frestur rann út þann 25. maí síð­ast­lið­inn. Í hópi umsækj­enda voru nokkrir blaða­menn, bæði núver­andi og fyrr­ver­andi, kynn­ing­ar­full­trúar, upp­lýs­inga­full­trúar og mark­aðs­stjórar fyr­ir­tækja og stofn­anna.

Í hópnum voru meðal ann­ars fyrr­ver­andi rit­stjórar Frétta­blaðs­ins og DV, þær Kristín Þor­steins­dóttir og Lilja Katrín Gunn­ars­dóttir. Þá sótti Haraldur L. Har­alds­son einnig um stöðu upp­lýs­inga­full­trúa ráðu­neyt­is­ins en hann hefur gegnt emb­ætti bæj­ar­stjóra í Hafn­ar­firði og á Ísafirði.

[adspot]Frá­far­andi upp­lýs­inga­full­trúi, Hafliði Helgason, hafði gegnt starf­inu frá því snemma árs 2018. Þegar hann var ráð­inn þurfti að aug­lýsa starfið tvisvar sinnum.

Í seinna skiptið var krafa um að umsækj­endur hefðu hæfni til að koma fram fyrir hönd ráðu­neyt­is­ins og hæfni í að miðla upp­lýs­ingum, það hafði ekki verið gert í fyrra skiptið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár