Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segist ekki hafa veitt upplýsingar um fjölda hælisleitenda

Upp­lýs­ingar um komu hæl­is­leit­enda á Kefla­vík­ur­flug­völl, sem þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur birt á sam­fé­lags­miðlum, komu ekki frá lög­regl­unni á Suð­ur­nesjum, sam­kvæmt emb­ætt­inu.

„Eftir því sem ég kemst næst hefur umræddur þing­maður ekki fengið þessar tölur frá emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum.“

Þetta kemur fram í svari Gríms Her­geirs­sonar, lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum, við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, birti tölur á Face­book-­síðu sinni í sept­em­ber og októ­ber yfir ein­stak­linga sem lent hafa á Kefla­vík­ur­flug­velli og sótt um alþjóð­lega vernd. Hann vildi ekki greina frá því í sam­tali við Kjarn­ann hvaðan hann fengi töl­urn­ar.

Samkvæmt Útlend­inga­stofnun fékk þing­mað­ur­inn ekki töl­urnar hjá þeim, að því er fram kom í svari stofn­un­ar­innar við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

[links]Í svari Útlend­inga­stofn­unar til Kjarn­ans sagði að umsóknir um vernd væru lagðar fram hjá lög­reglu, flestar í flug­stöð­inni í Kefla­vík. „Um þessar mundir fara umsækj­endur þaðan í sótt­varn­ar­hús og dvelja þar þangað til nið­ur­stöður úr seinni skimun liggja fyrir en fyrst að því loknu koma þeir í búsetu­úr­ræði Útlend­inga­stofn­un­ar.“

Gylfi Þór Þor­steins­son, umsjón­ar­maður sótt­varn­ar­húsa, sagði þing­mann­inn ekki hafa fengið þessar upp­lýs­ingar hjá sér. Upp­lýs­ingar um fjölda hæl­is­leit­enda sem í húsin koma dag frá degi væru ekki gefnar utan­að­kom­andi, hvorki fjöl­miðl­um, stjórn­mála­mönnum né öðr­um.

Halla Berg­þóra Björns­dótt­ir, lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sagð­ist í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans ekki vita til þess að emb­ættið hefði fengið fyr­ir­spurnir um fjölda hæl­is­leit­enda sem komið hafa til lands­ins né kann­aðist emb­ættið við að hafa veitt þær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár