Bóluefni loks á leiðinni en sprauturnar vantar

5,6 pró­sent Afr­íku­búa eru full­bólu­settir. Efnaðri þjóðir hafa ekki staðið við stóru orðin og afhent það magn bólu­efna sem þau lof­uðu en nú þegar skriður virð­ist loks kom­inn á það blasir við annar skortur.

Bólusetning gengur hægt í Afríku en nokkur lönd skera sig úr, m.a. Túnis, Marokkó og Máritanía.
Bólu­setn­ing gengur hægt í Afríku en nokkur lönd skera sig úr, m.a. Túnis, Marokkó og Márit­anía. Mynd: EPA

Enn eitt vanda­málið er í upp­sigl­ingu varð­andi bólu­setn­ingu íbúa Afríku. Nú þegar hyllir loks undir að bólu­efni gegn COVID-19 fari að koma þangað í umtals­verðu magni eru tafir á bólu­setn­ingum fyr­ir­sjá­an­legar vegna skorts á sprautum.

UNICEF og Alþjóða heil­brigð­is­stofn­unin vara við þessu og spá því að 2,2 millj­arða einnota sprauta muni vanta upp á til að gefa fólki bólu­efna­skammt­ana þegar þeir koma. Þá er með­tal­inn fyr­ir­sjá­an­legur skortur á sér­stökum sprautum sem not­aðar eru til að gefa bólu­efni Pfizer-BioNtech.

WHO telur að sprautu­skort­ur­inn verði við­var­andi fram á að minnsta kosti fyrsta fjórð­ung næsta árs. „Snemma á næsta ári munu COVID-bólu­efni fara að streyma til Afríku en skortur á sprautum gæti lamað bólu­setn­inga­ferlið,“ sagði Mats­hi­diso Moeti, yfir­maður WHO í Afríku á blaða­manna­fundi. Verulega inn­spýt­ingu vanti í fram­leiðslu sprauta á bæði heims­vísu en einnig í Afríku. „Ótelj­andi líf Afr­íku­búa eru í húfi.“

Óttast er að með sama áfram­haldi muni aðeins fimm Afr­íku­ríki ná því tak­marki að bólu­setja tíu pró­sent borg­ara sinna fyrir árs­lok en mark­miðið er 40 pró­sent.

Afr­íku­sam­bandið hyggst kaupa 110 milljón skammta af bólu­efni lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Moderna. Var það sam­komu­lag gert með milli­göngu banda­rískra stjórn­valda og munu fyrstu send­ing­arnar vera skammtar sem Banda­ríkin höfðu tryggt sér með samn­ingum. Fyrsta send­ingin mun þó ekki ber­ast fyrr en í lok árs og frek­ari send­ingar eru ekki áform­aðar fyrr en í upp­hafi þess næsta. Moderna seg­ist vera með áætl­anir um að byggja verk­smiðju til fram­leiðslu bólu­efn­is­ins í Afríku árið 2023.

Íbúar Afríku eru um 1,2 millj­arðar. Um 5,6 pró­sent þeirra eru full­bólu­settir. 54 pró­sent Evr­ópu­búa eru bólu­settir að fullu.

Tölfræði vegna far­ald­urs­ins er víða óáreið­an­leg í Afríku. Sem dæmi voru tekin 287 sýni í Úganda í gær, sam­kvæmt upp­lýs­ingum stjórn­valda, og reynd­ust þau öll jákvæð. Íbúar Úganda eru yfir 40 millj­ónir.

8,5 millj­ónir stað­fest til­felli hafa greinst í Afríku frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Yfir 218 þús­und dauðs­föll eru rakin til COVID-19 en þessar tölur eru taldar veru­lega van­metnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár