Þegar tvítugur strákur á stolnum bíl tekur Rán upp í

Ísfirð­ing­ur­inn Fjölnir Bald­urs­son safnar fyrir gert stutt­myndar á Karolina Fund. Í boði er að velja end­inn á mynd­ina.

Fjölnir Baldursson.
Fjölnir Bald­urs­son. Mynd: Aðsend

Stutt­myndin Rán eftir Ísfirð­ing­inn Fjölni Bald­urs­son, fjallar um tví­tugan strák sem býr úti á landi, Gunnar að nafni. Kærastan hans biður hann að sækja sig í vinn­una yfir í næsta þorp, hann reynir að fá lán­aða drossíu föður síns til þess að sækja hana. Faðir hans neitar honum um bíl­inn, svo hann stelur bílnum með hjálp bróður síns. Þegar hann keyrir út úr bænum tekur hann upp í bíl­inn konu að nafni Rán og þá fara hlutir að ger­ast sem hann hefur enga stjórn á.

Verk­efnið er núna í fjár­mögnun á Karolina Fund og með því að styrkja verk­efnið getur fólk tryggt sér miða á frum­sýn­ingu mynd­ar­innar, eða mynd eftir Ómar Smára Krist­ins­son bæj­ar­lista­mann Ísa­fjarð­ar­bæjar. Einnig fær fólk mögu­leika á að rök­ræða við leik­stjóra mynd­ar­innar eftir frum­sýn­ingu hennar. Svo er það rús­ínan í pylsu­end­anum! Þú getur valið end­inn á mynd­ina ... Myndin verður tekin upp í maí­mán­uði á þessu ári. Að henni koma að mestu fólk að vestan.

Ein­hverjir leik­arar koma að sunnan til að taka þátt í verk­efn­inu. Aðal­leik­arar mynd­ar­innar eru þau Magnús Eðvald og Jónína Margrét Bergmann.

[adspot]Ísfirð­ing­ur­inn Fjölnir Bald­urs­son hefur komið að gerð heim­ild­ar­mynda, stutt­mynda ásamt þátta­gerð og unnið tón­list­ar­mynd­band með Ísfirsku Megasar-ábreiðu­sveit­inni Megakukl. Fjölnir hefur verið með annan fót­inn á Spáni, og er að stefna heim til Íslands í sótt­kví. En Fjölnir stundar sjó­mennsku þess á milli til að safna fyrir mynd­inni.

Segðu frá hug­mynd­inni að baki verk­efn­inu?

„Upp­haf­lega hug­myndin var að gera svona „road movie“, og upp­runa­lega sagan er stærri, þannig að þessi stutt­mynd er í raun­inni byrj­unin á þeirri sögu, en varð svo smátt og smátt stærri, sterk­ari og sjálf­stæð­ari saga. Þema mynd­ar­innar er þessi mann­legi breysk­leiki. Hvernig menn höndla sorg og freist­ingar. En svartur húmor­inn skín alltaf í gegnum þessa sorg sem birt­ist í sög­unni. En þessi svarti húmor hefur svo­lítið verið mitt vöru­merki.

Það sem er svo­lítið sér­stakt við gerð mynd­ar­innar, er að sá sem hefur áhuga á að hafa áhrif á kvik­mynda­gerð­ina, getur haft áhrif á það hvernig myndin endar. Við viljum leyfa þeim sem styrkir mynd­ina fyrir vissa upp­hæð, velja úr 3 endum á mynd­inni. Það verða teknir upp 3 útgáfur og styrkt­ar­að­il­inn velur þá sem honum líst best á.

Einnig bjóðum við fólki sem styrkir okkur að þiggja mynd teikn­aða af bæj­ar­lista­manni Ísa­fjarð­ar­bæjar, Ómari Smára Krist­ins­syni. En sú mynd fór nú á fyrsta degi. Mögulega bjóðum við fleiri myndir eftir Ómar Smára. En hann hefur setið sveittur með mér að teikna upp „story board“ mynd­ar­innar.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár