Fimm innanlandssmit – öll utan sóttkvíar

Fimm greindust inn­an­lands með COVID-10 í gær. Þrír þeirra voru full­bólu­settir en hinir tveir ekki bólu­settir að fullu. Á annað hund­rað manns mun þurfa í sótt­kví.

Í gær greindust fimm COVID-19 smit inn­an­lands, allir utan sótt­kvíar. Þrír hinna smit­uðu eru full bólu­settir en tveir ekki bólu­settir að fullu. Smitrakn­ing stendur yfir og er lík­legt að á annað hund­rað manns munu fara í sótt­kví vegna þessa.

„Það er ljóst að það er sam­fé­lags­legt smit á land­inu og því er gríð­ar­lega mik­il­vægt að allir fari var­lega á næstu dögum og vikum, líka þeir sem eru bólu­settir því aug­ljóst er að þeir aðilar geta áfram smit­ast af COVID-19,” segir í til­kynn­ingu frá Hjördísi Guð­munds­dóttur, upp­lýs­inga­ful­trúa almanna­varna.

„Sér­stak­lega er mik­il­vægt að farið sé var­lega í umgengni við við­kvæma ein­stak­linga sem gætu veikst alvar­lega af COVID-19 jafn­vel þó að þeir séu bólu­settir.”

Tveir greindust inn­an­lands og utan sótt­kvíar í gær og voru þeir báðir bólu­settir.

Þau smit sem hafa komið upp und­an­farna daga hafa teng­ingar við skemmt­ana­lífið, stóra fjöl­skyldu- og vina­við­burði, segir Hjördís. „Almanna­varnir hvetja alla til að halda áfram að passa upp á ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir og fara í sýna­töku við minnstu ein­kenni, bæði bólu­settir ein­stak­lingar og óbólu­settir.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár