Þorsteinn verður skipaður formaður kærunefndar útlendingamála

Dóms­mála­ráð­herra hefur ákveðið að skipa stað­gengil for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar í emb­ætti for­manns kæru­nefndar útlend­inga­mála.

Þorsteinn Gunnarsson er sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Útlendingastofnunar.
Þor­steinn Gunn­ars­son er sviðs­stjóri og stað­geng­ill for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar. Mynd: Skjáskot/RÚV

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur ákveðið að skipa Þorstein Gunn­ars­son stað­gengil for­stjóra Útlend­inga­stofn­unar í emb­ætti for­manns kæru­nefndar útlend­inga­mála, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Alls sóttu sjö ein­stak­lingar um emb­ættið en ráðu­neytið aug­lýsti það laust til umsóknar þann 8. maí síð­ast­lið­inn.

Kæru­nefnd útlend­inga­mála er sjálf­stæð stjórn­sýslu­nefnd sem hóf störf þann 1. jan­úar 2015 í kjöl­far laga­breyt­inga sem gerðar voru vorið 2014 á lögum um útlend­inga.

Við úrlausn mála hefur kæru­nefnd útlend­inga­mála sömu vald­heim­ildir og ráð­herra sem úrskurð­ar­að­ili á æðra stjórn­sýslu­stigi.

Dóms­mála­ráð­herra skipar for­mann nefnd­ar­innar og vara­for­mann að und­an­geng­inni aug­lýs­ingu og val­ferli. Á vef­síðu kæru­nefnd­ar­innar kemur fram að for­maður og vara­for­maður nefnd­ar­innar, sem hafa starfið að aðal­starfi, skuli upp­fylla skil­yrði til að starfa sem hér­aðs­dóm­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár