Vilja að Sjálfstæðisflokkurinn fái bæði forsætis- og fjármálaráðuneytið

Bjarni Benediktsson eftir fund hans með forseta Íslands á Bessastöðum í gær.
Bjarni Bene­dikts­son eftir fund hans með for­seta Íslands á Bessa­stöðum í gær. Mynd: Birgir Þór

Vörður, full­trúa­ráð Sjálf­stæð­is­fé­lag­anna í Reykja­vík, lýsir því yfir að for­ysta Sjálf­stæð­is­flokks­ins njóti ský­laust traust þess til að taka við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og leiða nýja rík­is­stjórn. Auk þess telur ráðið mik­il­vægt að flokk­ur­inn fari áfram með fjár­mála- og efna­hags­mála­ráðu­neytið. Verði þetta ekki nið­ur­staða þeirrar stjórn­ar­mynd­unar sem nú standi yfir eigi að ganga til kosn­inga „án tafar."

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Vörður hefur sent frá sér.

Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði í hádeg­inu að það væri „alveg ljóst að hér tekur við rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar". Hann sagði fullan vilja vera hjá þing­flokkum bæði Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks til að halda áfram stjórn­ar­sam­starf­inu. Rík­is­stjórnin hefði góðan þing­meiri­hluta, stór mál væru framundan og engin ástæða væri til þess að ætla annað en að rík­is­stjórnin héldi áfram störfum. Þetta kom fram í fréttum RÚV.

Ásmundur Einar svar­aði ekki beint spurn­ingum um hvernig Sjálf­stæð­is­menn hefðu tekið í hug­myndir um að Sigurður Ingi Jóhanns­son, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, verði næsti for­sæt­is­ráð­herra líkt og þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins sam­þykkti í gær. Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í gær­kvöld að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi ekki sam­þykkt að Sigurður Ingi verði næsti for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Hún sagði enn­fremur að sér þyki það per­sónu­lega ótækt að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, sem steig til hliðar sem for­sæt­is­ráð­herra í gær, sitji áfram á þingi. Þessum skoð­unum hafi hún komið á fram­færi á þing­flokks­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í gær. Það sé hins vegar lítið sem Sjál­stæð­is­flokk­ur­inn geti gert í þeirri ákvörðun hans. Þetta kom fram í Twitterfærslum Áslaugar Örnu í gær­kvöldi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár