Hirð Ella ruslabílstjóra: „Skiljum enga tunnu eftir“

Rokkstjarna, módel, smali, pólskur dyra­vörður og eþíópískur endur­skoðandi eru meðal þeirra sem tæma rusl höfuð­borgarbúa. Helgi Seljan tók sér far með sorp­hirð­stjóranum Ella og hans mönnum. Í gaddgrimdar frosti og snjó bjarga þeir okkur frá tugþúsundum tonna af rusli sem við skiljum eftir okkur ár hvert.

Það er ellefu stiga frost og klukkan hálf níu, þennan föstudags­morgun í desember. Fyrir utan verslunar­kjarnann í Austur­veri standa tveir gulir Scania-trukkar. Annar þeirra tilheyrir teymi fimm­menninganna sem við höfum mælt okkur mót við. Þeir eru í kaffi enda búnir að vera að síðan fyrir sjö þennan morgun.

Einu sinni voru þeir kallaðir ösku­kallar, sú stétt manna sem sá um að koma því í lóg sem við höfðum gernýtt á heimilum okkar. Kenndir við ösku, enda var þá kola­kynding reglan á íslenskum heimilum. Með hita­veitunni og rafmagninu hvarf askan. En eftir varð ruslið, sem síðan varð pláss­frekara og meira. 

Askan í gráu tunn­una
Aska flokk­ast með heim­il­issorpi

Rusla­kallar var starfs­heiti nýrra kynslóða. Sorp­hirðumenn, heita þeir núna, en þó kannski aðallega í kjara­samningum og opinberum gögnum. Sjálfir eru þeir ekki feimnir við að segjast vera „í ruslinu“. Í það minnsta ekki …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Heiðar Kristinsson skrifaði
    Skemmtileg og vel skrifuð grein greinilega flottir karlar þarna á ferð.
    2
  • Guðrún Ingimundardóttir skrifaði
    Áhugaverð frétt sem gefur innsýn í hversdaginn og litróf mannlífsins. Takk.
    4
  • Ási Bogga skrifaði
    Vel skrifuð grein og fallegar myndir ,og frábært að fara út í kuldann og sjá og heyra hvað starfmenn borgarinnar eru að gera. Gott framtak hjá þér Helgi mnn takkfyrir
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár