Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ásmundur keyrði fyrir rúmlega 320 þúsund krónur á mánuði

Ásmundur Frið­riks­son var, enn og aftur, sá þing­maður sem keyrði mest allra í fyrra. Alls kost­aði akstur Ásmundar skatt­greið­endur 3,8 millj­ónir króna, sem er 52 pró­sent meira en kostn­aður þess sem keyrði næst mest.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks í Suð­ur­kjör­dæmi, er sá þing­maður sem keyrir mest allra miðað við þann akst­urs­kostnað sem Alþingi greiðir þing­mönnum. Alls keyrði Ásmundur bíla­leigu­bíla, og tók elds­neyti fyrir, um 3,8 millj­ónir króna á árinu 2019. Það þýðir að Ásmundur keyrði fyrir rúm­lega 320 þús­und krónur að með­al­tali í fyrra.

Sá munur var á akstri Ásmundar í fyrra að hann fór allur fram á bíla­leigu­bílum, en á síð­ustu árum hafði hann að mestu keyrt um landið á eigin bif­reið og fengið kostnað vegna þess end­ur­greiddan frá Alþingi. Frá því að Ásmundur sett­ist á þing árið 2013 hefur sam­an­lagður akst­urs­kostn­aður hans verið 29,2 millj­ónir króna.

Mestur var hann árið 2014, þegar Ásmundur fékk alls um 5,4 millj­ónir króna end­ur­greiddar vegna keyrslu á eigin bif­reið, eða 450 þús­und krónur á mán­uði.

Eftir að akst­urs­greiðslur til þing­manna voru loks opin­ber­aðar í fyrsta sinn snemma árs 2018, eftir að fjöl­miðlar höfðu kallað eftir þeim árum saman, kom sér­staka Ásmundar í akstri í ljós og var mikið gagn­rýnd. Í kjöl­farið dró Ásmundur mikið úr akstr­inum og nam end­ur­greiddur kostn­aður hans á árinu 2018 2,5 millj­ónum króna. Það er lægsta upp­hæð sem Ásmundur hefur fengið end­ur­greidda vegna akst­urs frá því að hann sett­ist á þing. Þorri hans fór auk þess fram á bíla­leigu­bíl, ekki bif­reið Ásmundar, líkt og skrif­stofa Alþingis hafði beðið þing­menn um að gera.

Í fyrra jókst akst­urs­kostn­að­ur­inn síðan til muna og var 3,5 millj­ónir króna. Það er 52 pró­sent hærri upp­hæð en keyrsla Ásmundar kost­aði árið áður. 

Fjórir kosta meira en tvær milljónir á mánuði

Alþingi birti um helg­ina upp­lýs­ingar um kostnað sem þing­menn fá greiddan fyrir des­em­ber­mán­uði, og þar af leið­andi var hægt að sjá hversu mikið féll til allt árið 2019.

Líkt og áður sagði kost­aði akstur Ásmundar lang­mest, eins og svo oft áður. Þeir sem koma næst honum eru Birgir Þór­ar­ins­son, þing­flokkur Mið­flokks­ins, sem keyrði fyrir 2,6 millj­ónir króna í fyrra, og sam­flokks­maður hans Vil­hjálmur Árnason, sem keyrði fyrir 2,5 millj­ónir króna í fyrra. Birgir keyrði því fyrir um 216 þús­und krónur á mán­uði að með­al­tali og Vil­hjálmur fyrir um 208 þús­und krónur á mán­uði. Akstur Ásmundar kost­aði því 48 pró­sent meira en akstur Birgis og 52 pró­sent.

Einn þing­maður til keyrði fyrir meira en tvær millj­ónir króna í fyrra, Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann kost­aði 2,4 millj­ónir króna á árinu, eða um 200 þús­und krónur að með­al­tali á mán­uði.

Alls keyrðu tólf þing­menn það mikið að kostn­aður vegna akst­urs­greiðslna þings­ins til þeirra fór yfir eina milljón króna. Hægt er að sjá lista yfir þá hér að neðan:

Tólf þing­menn fengu meira en milljón krónur greiddar í akst­urs­kostn­að:

  • Ásmundur Frið­riks­son 3,8 millj­ónir króna
  • Birgir Þór­ar­ins­son 2,6 millj­ónir króna
  • Vil­hjálmur Árna­son 2,5 millj­ónir króna
  • Har­aldur Bene­dikts­son 2,4 millj­ónir króna
  • Sig­urður Páll Jóns­son 1,8 millj­ónir króna
  • Guð­jón S. Brjáns­son 1,8 millj­ónir króna
  • Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir 1,8 millj­ónir króna
  • Lilja Raf­ney Magn­ús­dóttir 1,5 millj­ónir króna
  • Líneik Anna Sæv­ars­dóttir 1,3 millj­ónir króna
  • Halla Signý Krist­jáns­dóttir 1,2 milljón króna
  • Páll Magn­ús­son 1,1 millj­ónir króna
  • Albertína Frið­björg Elí­as­dóttir 1,1 milljón króna

Allskyns viðbætur ofan á þingfarakaup

Akst­ur­greiðsl­urnar koma til við­bótar við hefð­bundnar launa­greiðslur og ýmsar aðrar kostn­að­ar­greiðslur, en venju­legur þing­maður fær 1,1 milljón króna í laun á mán­uði. Auk þess getur þing­maður sem gegnir for­mennsku eða vara­for­mennsku í fengið álag ofan á þing­fara­kaupið. Í til­felli for­manns nemur það 165 þús­und krónum á mán­uði. Þá fá lands­byggð­ar­þing­menn hús­næðis- og dval­ar­kostn­að­ar­greiðslu, álag á hús­næðis- og dval­ar­kostn­að­ar­greiðslu, fastan greiddan ferða­kostnað í kjör­dæmi og fastan starfs­kostnað.

Fyrir ímynd­aðan þing­mann í Suð­ur­kjör­dæmi, sem liggur að höf­uð­borg­inni, sem gegni for­mennsku í nefnd gæti þetta þýtt að mán­að­ar­legar launa­greiðslur upp á rúm­lega 1,5 millj­ónir króna. Til við­bótar er ýmis starfs­kostn­aður end­ur­greiddur auk þess síma- og net­kostn­aður er greiddur. Ofan á þetta er allur ferða­kostn­aður innan lands og utan greiddur af þing­inu, þar með talið áður­nefndur akst­urs­kostn­aður.

Allt í allt getur þing­maður því haft nálægt tvær millj­ónir króna í tekjur af þing­mennsku á mán­uði ef hann er dug­legur við að keyra um.

Nota bílaleigubíla meira en áður

Alls nam akst­urs­kostn­aður þing­manna 31,1 milljón króna í fyrra. Allt árið 2018 var kostn­að­ur­inn 30,7 millj­ónir króna. Því var hann mjög svip­aður bæði árin.

Mesta breyt­ingin sem orðið hefur síð­ast­liðin ár er að þing­menn keyra nú mun meira á bíla­leigu­bílum en áður. Sú til­hneig­ing hefur stökk­breyst eftir að akst­urs­greiðsl­urnar voru opin­ber­aðar í fyrsta sinn í byrjun árs 2018.

Þar áður tíðk­að­ist það á meðal þing­manna að fá end­ur­greitt svo­kallað akst­urs­gjald vegna notk­unar á eigin bif­reið. Það er greitt sam­­­kvæmt akst­­­ur­s­dag­­­bók þar sem þing­­­menn halda utan um allan akstur á sínum eigin bif­­­reið­u­m. ­Ferða­­­kostn­að­­­ar­­­nefnd, sem heyrir undir fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráðu­­­neyt­ið, ákveður akst­­ur­­gjald í akst­­­ur­s­­­samn­ingum rík­­­is­­­starfs­­­manna og rík­­­is­­­stofn­ana. Gjaldið skipt­ist í almennt gjald, sér­­­stakt gjald og svo­­­kallað tor­­­færu­­­gjald. Almenna gjaldið á við akstur á mal­bik­uðum vegum inn­­­an­bæjar og utan, sér­­­staka gjaldið á við akstur á mal­­­ar­­­vegum utan­­­bæjar og tor­­­færu­gjaldið mið­­­ast við akstur við sér­­­stak­­­lega erf­iðar aðstæð­­­ur, gjarnan utan vega og ein­ungis jeppa­­­fært.

Fyrirspurnir Björns Leví Gunnarssonar, þingmanns Pírata, leiddu til þess að aksturskostnaðurinn var loks opinberaður í byrjun árs 2018.
Fyr­ir­spurnir Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata, leiddu til þess að akst­urs­kostn­að­ur­inn var loks opin­ber­aður í byrjun árs 2018.

Grunnur akst­­­ur­s­gjalds­ins skipt­ist í fastan kostnað og breyt­i­­­legan kostn­að. Í föstum kostn­aði voru afskrift­ir, skoð­un­­­ar­gjald, bif­­­reiða­gjald, ábyrgð­­­ar­­­trygg­ing og húf­­­trygg­ing, en í breyt­i­­­legum kostn­aði bens­ín, smurn­ing, olía, hjól­barð­­­ar, vara­hlutir og við­­­gerð­­­ir. Greiðsl­­urnar eru und­an­þegnar skatt­i. ­Sam­hliða því að greiðslur vegna notk­unar á eigin bif­reið hafa hríð­fallið á und­an­förnum árum hafa greiðslur vegna bíla­leigu­bíla hækkað mik­ið, enda var þeim til­mælum beint til þing­manna fyrir nokkrum árum sið­an, af skrif­stofu Alþing­is, að taka frekar bíla­leigu­bíla en að nota eigin bif­reið­ar. Ástæðan var sú að það var talið spara fjár­muni og tryggja meira gagn­sæi í akst­urs­greiðsl­um. Skrif­­­stofa Alþingis hefur gert samn­inga við bíla­­­leig­u­­­fyr­ir­tæki sem eru að finna í ramma­­­samn­ingi Rík­­­is­­­kaupa, um afslætti af gjald­­­skrá bíla­­­leig­u­bíla til að ná niður þessum kostn­aði enn frek­­ar.

Á árinu 2018, sem var það fyrsta eftir að greiðslur til þing­manna voru gerðar opin­ber­ar, stökk kostn­aður vegna bíla­leigu­bíla upp í 19,3 millj­ónir króna sam­hliða því að kostn­aður vegna notk­unar eigin bif­reiða dróst veru­lega sam­an. Í fyrra jókst hann enn frekar og var 21,4 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár