Mónakó tekið af gráa lista FATF

Mónakó hefur verið tekið af gráum lista FATF eftir tveggja ára aukið eft­ir­lit og umfangs­miklar úrbætur í bar­átt­unni gegn pen­inga­þvætti. Ísland var á sama lista á árunum 2019 til 2020, en vera lands­ins á honum olli meðal ann­ars vand­ræðum með milli­landa­greiðslur og vakti spurn­ingar hjá erlendum lán­veit­endum.

Leikvöllur
Leik­völlur Gjarnan er talað um Mónakó sem leik­völl hinna ríku en þar eru ekki inn­heimtir almennir skattar af tekjum og auð. Mynd: Simon Moore / Unsplash

Alþjóð­legi aðgerða­hóp­ur­inn gegn pen­inga­þvætti (FATF) til­kynnti í gær að Mónakó hefði verið tekið af „gráum lista“ hóps­ins. Tvö ár eru síðan fursta­dæmið var sett á lista yfir ríki sem sæta auknu eft­ir­liti.

Búlgaría, Lýð­stjórn­ar­lýð­veldið Kongó og Fíla­beins­ströndin voru einnig tekin af list­anum, að sögn FATF eftir fund sam­tak­anna sem hald­inn er tvisvar á ári. Ríkin hefðu lokið þeim aðgerða­á­ætl­unum sem þau höfðu heitið að fylgja „og munu ekki lengur sæta auknu eft­ir­liti FATF“, bættu sam­tökin við.

FATF, sem hefur höf­uð­stöðvar í París, fylgist með aðgerðum meira en 200 ríkja og lög­sagn­ar­um­dæma gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka. Ríki á gráa list­anum eru talin hafa „ann­marka í lyk­il­þáttum“ bar­átt­unnar gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, en vinna með FATF að úrbótum.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár