Flokkur

Loftslagsmál

Fréttir

135 lönd hafa skilað mark­miðum fyrir COP 21 en þau virð­ast ekki duga

Lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNFCCC) hefur borist mark­mið 135 ríkja heims­ins í lofts­lags­málum sem á að vera grund­völlur laga­lega bind­andi samn­ings um tak­mark­aða losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í heim­inum til fram­tíðar. Meg­in­mark­mið ráð­stefn­unnar er að halda hækkun hita­stigs á jörð­inni undir 2°C sé miðað við með­al­hita fyrir iðn­bylt­ing­una. Samóa varð 135. landið til að skila mark­miðum sínum í morgun en mark­mið fjöl­margra landa...
Skýring

Lofts­lags­mark­miðin munu ekki nægja til að ná mark­miðum SÞ

Þær áætl­anir sem rík­is­stjórnir heims­ins hafa þegar skilað til Lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, fyrir fund­inn í París í des­em­ber (COP 21) duga ekki til að ná mark­miðum Sam­ein­uðu þjóð­anna í lofts­lags­málum, ef marka má gögn Climate Action Tracker. Framlag Íslands, í slag­togi við Evr­ópu­sam­bandið og Noreg, er metið hóf­legt. Mark­miðið er að hægja á hlýnun lofts­lags á jörð­inni þannig að það...
Erlent

Allt lest­ar­kerfi Hol­lend­inga knúið vind­orku árið 2018

Hollensk lestar­fé­lög hafa sam­ein­ast um að ætla að knýja allt lest­ar­kerfi lands­ins með vind­orku eftir þrjú ár. Hol­lenska orku­fyr­ir­tækið Eneco hefur gengið að sam­komu­lagi við lestar­fé­lögin um að útbúa raf­orku­kerfið fyrir þessar breyt­ingar. Nú þegar er helm­ingur alls lest­ar­kerf­is­ins, sem er 2.890 kíló­metra langt og þjón­ustar um 1,2 milljón manns á hverjum degi, knúið vind­orku. Verk­efnið sem ráð­ist verður í...
Fréttir

Tvö íslensk nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki í við­skipta­hrað­al­inn Climate-KIC

Nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækin Arctus og Crowbar Protein fengu inn­göngu í við­skipta­hrað­al­inn Climate-KIC á dög­unum. Þrjú íslensk teymi tóku þátt í úrslitum ClimateLaunchpad, stærstu hug­mynda­sam­keppni í tengslum við lofts­lags­mál í heim­inum, í Amster­dam. Alls bár­ust 35 íslenskar hug­myndir í keppn­ina. Fyr­ir­tækið Arctus hlaut annað sæti í hug­mynda­sam­keppn­inni. Jón Hjalta­lín Magn­ús­son fór fyrir Arctus í Amster­dam en fyr­ir­tækið er stofnað í kringum orku­nýt­ari og...
Erlent

Kólumbía 59. landið til að skila mark­miðum í lofts­lags­málum

Kólumbía hefur skilað lofts­lags­mark­miðum sínum til lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna sem fer fram í París í des­em­ber. Kólumbía varð um leið 59. landið til að skila slíkum mark­miðum af þeim 165 löndum sem koma til með að und­ir­rita hugs­an­legt lofts­lags­sam­komu­lag. Á ráð­stefn­unni í París er mark­miðið að kom­ast að bind­andi sam­komu­lagi um að minnka losun koltví­oxíðs út í and­rúms­loftið og hægja...

Mest lesið undanfarið ár