Uppbygging stóriðju fráleit ef Ísland á að vera kolefnishlutlaust

Katrín Jak­obs­dóttir vill að Ísland verði kolefn­is­hlut­laust og telur að stjórn­völd verði að haga stefnu sinni öðru­vísi ef það ætti að verða að veru­leika.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, segir vanta upp á opin­bera stefnu­mótun í lofts­lags­málum til þess að Ísland geti orðið kolefn­is­hlut­laust land. Katrín var í við­tali við Þukl í Hlað­varpi Kjarnans í gær en um helg­ina sagði hún í ræðu á lands­fundi Vinstri grænna, að Ísland eigi raun­veru­lega mögu­leika á því að verða kolefn­is­hlut­laust land.

„Ég held að Ísland geti gengið lengra [en við gerum nú þegar] og sagst ætla að draga úr losun óháð öðrum,“ segir Katrín. „Af því að við höfum svo mikil tæki­færi til þess. Með þá orku sem við eigum þá ættum við að geta stigið framar, ef þetta yrði sett efst á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar, sveit­ar­fé­laga um land allt og almenn­ings.“

Markmið Íslands í lofts­lags­málum er að draga úr losun um allt að 40 pró­sent árið 2030 miðað við árið 1990. Ísland fylgir Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) og mun semja um „sann­gjarnan hlut“ sinn við ríki Evópu­sam­bands­ins að lofts­lags­ráð­stefn­unni í París lok­inni. Noregur fékk að taka þátt í mark­miðum ESB eins og Ísland. Norsk stjórn­völd stefna að því að minnka losun um að minnsta kosti 40 pró­sent og stefna að kolefn­is­hlut­leysi árið 2050.

Ráðst þarf í miklar fjár­fest­ingar til þess að kolefn­is­hlut­laust Ísland geti orðið að veru­leika, segir Katrín, og að þar þurfi að koma til sam­starfs milli hins opin­bera og einka­geirans. „Við getum lært af því sem aðrar þjóðir hafa lent í. Hluti af vand­anum, ef við lítum bara til Banda­ríkj­anna, er að það hefur verið erfitt að fara í raun­veru­legar aðgerðir í orku­skiptum því hags­munir olíu­fé­lag­anna eru svo miklir. Og það þarf ein­hvern­veg­inn að vinna þetta saman,“ sagði hún í hlað­varps­þætt­inum.

Katrín bendir á að stór­iðju­stefna stjórn­valda verði að breyt­ast ef Ísland eigi að vera kolefn­is­hlut­laust. „Jafnvel þó þar hafi verið reynt að tak­marka mengun með nýrri tækni þá ber stór­iðjan ábyrgð á 40 pró­sent af okkar losun,“ segir hún. „Og það er raun og veru frá­leitt að tala um áfram­hald­andi upp­bygg­inu stór­iðju á sama tíma og við setjum mark­mið um kolefn­is­hlut­laust Ísland.“

Að mati Katrínar á Ísland mikla mögu­leika á að verða í far­ar­broddi í heim­inum þegar kemur að orku­skipta­tækni. Hún telur öfl­uga háskóla og nýsköp­un­ar­sam­fé­lag vera helstu tæki Íslend­inga í þeim efnum. „Við ættum að huga að því hvernig við getum komið okkur þá stöðu með styrkjum, beinum styrkjum og skatta­legum hvötum, þá ættum við Íslend­ingar að verða til­rauna­land á sviði orku­skipta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár