Mengun í methæðum í Kína

Íbúar í norð­aust­ur­hluta Kína hafa þurft að halda sig inn­an­dyra vegna gíf­ur­legrar meng­unar.

Kona ver öndunarfærin með grímu á meðan hún ræðir málin í síma.
Kona ver önd­un­ar­færin með grímu á meðan hún ræðir málin í síma. Mynd: LI LUN / EPA

Íbúar í þétt­býli í norð-aust­ur­hluta Kína hafa þurft að setja á sig önd­un­ar­grímur og halda sig inn­an­dyra frá því í gær, eftir að mengun fór víða langt yfir hættu­mörk. Kola­brennsla til húsa­hit­unar er helsta ástæða gíf­ur­legrar meng­unar en vetur gengur nú í garð á svæð­inu.

Í umfjöllun The Guardian segir að skyggni í gær hafi á nokkrum stöðum verið allt niður í hund­rað metrar. Meng­un­ar­stig mæld­ist um 56 sinnum hærra en þau mörk sem Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin telur örugg. Nokkrir höfðu þegar sótt sér lækn­is­að­stoð vegna verkja í önd­un­ar­færum.

Að sögn AP frétta­stof­unnar var gær­dag­ur­inn einn sá versti síðan kín­versk yfir­völd hófu að birta mæl­ingar á mengun árið 2013. Á sam­fé­lags­miðlum hafa yfir­völd verið gagn­rýnd fyrir sinnu­leysi og ástandið verið kallað „airpocalypse“ eða loft­ham­farir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár