Borgir í bráðri hættu sé hlýnun jarðar ekki beisluð

Um 7,8 millj­ónir manns búa á svæðum sem verða undir sjáv­ar­máli gangi svart­sýn­ustu spár um hlýnun jarðar eftir.

Í Feyneyjum er það orðið að nær árlegum atburði að yfirborð sjávar sökkvi strætum borgarinnar; það sem heimamenn kalla „acqua alta“. Ferðamenn standa þá á sérútbúnum pöllum til að virða fyrir sér Markúsartorgið.
Í Fey­n­eyjum er það orðið að nær árlegum atburði að yfir­borð sjávar sökkvi strætum borg­ar­innar; það sem heima­menn kalla „acqua alta“. Ferða­menn standa þá á sér­út­búnum pöllum til að virða fyrir sér Mark­ús­ar­torgið. Mynd: EPA

Eitt mest aðkallandi vanda­málið sem steðjar að mann­kyn­inu vegna hlýn­unar jarðar er hækkun yfir­borðs sjávar um allan heim vegna bráðn­unar jökla og haf­íss. Ef ekk­ert verður að gert mun hita­stig jarðar að öllum lík­indum vera fjórum gráðum hærra árið 2100 en það var fyrir iðn­bylt­ingu. Komi til þess munu margar af stærstu borgum í heimi sökkva í sæ.

Markmið lofts­lags­ráð­stefn­unnar í París í des­em­ber (COP 21) er að kom­ast að bind­andi sam­komu­lagi allra aðild­ar­landa um minni losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda til árs­ins 2030. Hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum (SÞ)hefur verið samið um að tveggja gráðu hlýnun til árs­ins 2100 sé sann­gjörn, en það er hins vegar ákvörðun um að sökkva strætum borga sem standa lágt eins og Hong Kong, Melbourne, Vancouver og Washington D.C.

[adspot]

Gangi verstu spár eftir þá búa 7,8 millj­ónir manna nú á svæði sem verður undir sjáv­ar­máli árið 2100. Það er ef yfir­borð sjávar hækkar um meira en tvo metra vegna hlýn­unar jarðar. Hækki yfir­borð sjávar um aðeins 0,2 metra þá er gert ráð fyrir að 1,3 milljón manns muni þurfa að flytja inn til lands.

Í aðdrag­anda COP 21 áttu allar aðild­ar­þjóðir að lofts­lags­ráð­stefnu SÞ að skila eigin mark­miðum í stefnu­mótun sinni í lofts­lags­málum. Nú þegar hafa nær allar þjóð­irnar skilað gögnum. Samkvæmt útreikn­ingum og áætl­unum skrif­stofu SÞ um lofts­lags­mál í Bonn munu þessi mark­mið aðeins duga hálfa leið að mark­mið­inu um að halda hlýnun jarðar undir tveimur gráðum árið 2100. Allt lítur út fyrir að hlýn­unin verði um 2,7 gráður verði ekk­ert að gert.

Líkön Climate Central og Surging Seas sýna hvaða svæði eru í mestri hættu. Líkanið af Reykja­vík er kannski ekki full­komið en lík­lega yrðu stræti mið­borg­ar­innar undir sjáv­ar­máli árið 2100 ef hlýnun jarðar verður ekki beisluð. Land­fræði­leg staða Reykja­víkur er hins vegar þannig að hér risi að öllum lík­indum land ef Græn­lands­jök­ull minnkar veru­lega.

Hér að neðan má sjá mynd­bönd og kort byggð á lík­önum Climate Central og Surging Seas.

Washington D.C. árið 2100

Rio de Janeiro árið 2100

London árið 2100

Uppfært: Skilja mátti á frétt­inni að 7,8 millj­ónir manna myndu búa á svæði sem verður undir sjáv­ar­máli árið 2100. Það hefur verið lagað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár