135 lönd hafa skilað markmiðum fyrir COP 21 en þau virðast ekki duga

Lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNFCCC) hefur borist mark­mið 135 ríkja heims­ins í lofts­lags­málum sem á að vera grund­völlur laga­lega bind­andi samn­ings um tak­mark­aða losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í heim­inum til fram­tíðar. Meg­in­mark­mið ráð­stefn­unnar er að halda hækkun hita­stigs á jörð­inni undir 2°C sé miðað við með­al­hita fyrir iðn­bylt­ing­una.

Samóa varð 135. landið til að skila mark­miðum sínum í morgun en mark­mið fjöl­margra landa hafa borist Sam­ein­uðu þjóð­unum síð­ustu daga. Skila­frest­ur­inn rennur út í dag 1. októ­ber fyrir lönd heims­ins að skila áætl­unum sínum í lofts­lags­málum. Sá frestur er hins vegar mjúkur og löndum frjálst að skila mark­miðum fram að ráð­stefn­unni í París sem hefst 30. nóv­em­ber. Þau mark­mið sem ber­ast síðar en í dag verða hins vegar ekki tekin til greina í sam­an­tekt UNFCCC.

Ísland hefur þegar skilað mark­miðum sínum í lofts­lags­málum. Við tökum þátt í mark­miði Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) um að minnka losun um 40 pró­sent til árs­ins 2030 miðað við 1990. Íslend­ingar, ESB og Norðmenn eiga eftir að semja inn­byrðis um los­un­ar­heim­ildir en óvíst er hvenær því verður lokið. Þess vegna fylgir mark­miðum Íslands sem send voru Sam­ein­uðu þjóð­unum fyr­ir­vari.

Rík­is­stjórn Noregs hefur þegar lýst því yfir að þar verði dregið úr losun um að minnsta kosti 40 pró­sent til árs­ins 2030. Eig­in­legt marm­kið Íslands hefur hins vegar ekki verið ákveðið og á vef Climateobserver þar sem búið er að taka saman mark­mið allra ríkja segir að Ísland taki á sig „rétt­láta hlut­deild“ (e. fair share) í sam­eig­in­legu mark­miði ESB.

Markmiðin duga skammt


Eins og Kjarninn hefur greint frá eru vís­bend­ingar um að lofts­lags­mark­mið ríkj­anna muni ekki duga til þess að halda hita­stigi jarðar undir 2°C. Samkvæmt gögnum Climate Action Tracker duga stefnu­mót­un­ar­mark­mið stærstu meng­un­ar­landa heims aðeins hálf­vegis að meg­in­mark­miði Sam­ein­uðu þjóð­anna.

[caption id="attachment_39594" align="alignnone" width="5035"] Hér má sjá nið­ur­stöður Climate Action Tracker graf­ískt. Rauða línan sýnir vænt­an­lega þróun miðað við mark­mið ríkja heims­ins, græna línan sýnir æski­lega þróun og bláa lína sýnir afleið­ingar óbreyttrar stefnu­mót­unar.[/caption]

Í sam­an­tekt Climate Action Tracker hefur verið tekið mið af 16 mark­miðum 43 landa (þar eru aðild­ar­ríki ESB með eitt sam­eig­in­legt marm­kið) sem sam­an­lagt bera ábyrgð á 78 pró­sent allrar los­unar gróð­ur­húsa­lof­t­eg­unda. Í þessum löndum búa jafn­framt 65 pró­sent mann­kyns.

Und­an­farið hafa áhrifa­miklir leið­togar heims­ins látið í sér heyra hvað varðar lofts­lags­málin og hvatt heim­inn til að leggja sitt af mörkum. Frans páfi varð fyrsti páf­inn til að opna Alls­herj­ar­þing Sam­ein­uðu þjóð­anna á föstu­dag en þar lagði hann áherslu á lofts­lags­málin og fram­tíð­ar­sýn sína á jörð­ina. „Umhverf­iseyði­legg­ing gæti komið öllu mann­kyn­inu í útrým­ing­ar­hættu,“ sagði páfi.

Frans páfi eyddi hins vegar ekki miklum tíma í að útskýra vís­inda­legar nálg­anir heldur ræddi hann um lofts­lags­málin sem grunnd­vallar mann­rétt­indi. „Í öllum trú­ar­brögðum er umhverfið grund­vall­ar­gæði. Allur skaði við umhverfið er beint tjón fyrir mann­kynið.“

Þá barst rík­is­stjórnum heims opið bréf í gær, mið­viku­dag, frá hópi 28 fram­kvæmda­stjórum og leið­togum í flug­iðn­aði þar sem sagt er að greinin sé reiðu­búin til að skuld­binda sig til að minnka losun eins mikið og hægt er í flug­geir­anum. Árið 2013 var flug­geir­inn í 13. sæti yfir þau lönd og greinar sem menga mest í heim­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár