5 hlutir sem vert er að vita um COP21-ráðstefnuna í París

Lofts­lags­ráð­stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna verður hald­inn í París eftir mánuð. Sumir kalla þetta mik­il­væg­asta fund mann­kyns­ins.

Peningar og völd eru það sem kemur einna helst í veg fyrir auðveldar málamiðlanir á COP21 í París. En hvers vegna þurfum við að semja um hluti á annað borð?
Peningar og völd eru það sem kemur einna helst í veg fyrir auð­veldar mála­miðl­anir á COP21 í París. En hvers vegna þurfum við að semja um hluti á annað borð? Mynd: EPA

Lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP21, lýkur þann 11. des­em­ber eða eftir réttan mánuð og þá verður, ef fund­ur­inn stenst vænt­ingar, búið að útbúa laga­lega bind­andi sam­komu­lag um útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um allan heim. En hvað er COP21 eig­in­lega og hvers vegna er talað um ráð­stefn­una sem þá mik­il­væg­ustu í mann­kyns­sög­unni? Á lofts­lagsvef CNN má finna fimm atriði sem vert er að vita um COP21.

Hvað er COP21?

Ramma­samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar (e. United Nations Framwork Convention on Climate Change - UNFCCC) var und­ir­rit­aður á Umhverf­is­ráð­stefn­unni í Rio árið 1992. Ráð­stefna á vegum UNFCCC hefur verið haldin árlega síðan 1995 þegar sú fyrsta var haldin í Berlín. Þær eru kall­aðar COP sem stendur fyrir „Conference of Parties“. Í ár fer fram 21. ráð­stefnan í París.

Ástæða þess að ráð­stefnan er haldin árlega er til þess að stöðugt sé fylgst með og lagt mat á aðgerðir og stöðu ríkja í lofts­lags­málum. Reglu­lega fjalla ráð­stefn­urnar um nýja samn­inga og mark­miða­setn­ingar í lofts­lags­málum. Eft­ir­minni­leg­ustu ráð­stefn­urnar á vegum UNFCCC eru tví­mæla­laust COP3 í Kyoto þar sem Kyoto­bók­unin var und­ir­rituð, COP11 í Motréal þar sem líf­tími Kyoto­bók­unin var fram­lengd og COP15 í Kaup­manna­höfn þar sem þess var freistað að búa til sam­komu­lag allra ríkja um minnkun útblást­urs gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

[adspot]

Samhliða COP21 í París mun fara fram CMP 11; ell­efti fundur þeirra ríkja sem und­ir­rit­uðu Kyoto­bók­un­ina 1997. Ísland er aðili að báðum ráð­stefnum.

Hvert er markmiðið með ráðstefnunni í ár?

Markmið COP21 í París dag­ana 30. nóv­em­ber til 11. des­em­ber er nokkuð skýrt. Það er að búa til laga­lega bind­andi sam­komu­lag allra þjóða heims­ins til þess að halda hlýnun jarðar undir tveimur gráðum, eða því sem vís­inda­menn hafa kallað þrösk­uld þess sem mann­kynið og jörðin geta höndlað.

Þegar vísað er til minna en tveggja gráðu hlýn­unar er talað um hlýnun lofts­lags (bæði sjávar- og loft­hita) miðað við með­al­hita fyrir iðn­bylt­ing­una á nítj­ándu öld. Það er aug­ljóst að það er ekki auð­velt að ná þessu mark­miði enda benda mæl­ingar til þess að hlýnun um heila gráðu á Celcius hafi þegar verið náð. Skýrsla IPCC (Intergovern­mental Panel on Climate Change) síðan 2014 sýnir fram á að síðan 1880 hefur lofts­lag jarðar hlýnað um 0.85°C.

Í skýrsl­unni eru einnig leiddar líkur að því að miðað við það magn gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem þegar hefur verið losað þá getur verið að hita­stig jarðar sé nú læst í um tveggja gráðu hlýnun. Það er aðeins ef heim­inum tekst að minnka los­un­ina gríð­ar­lega á næstu árum.

Hverjir mæta?

Á ráð­stefn­unni í París er talið að meira en 40.000 full­trúar 195 landa í öllum heim­inum muni koma saman. Þetta er stærsti fundur sem frönsk stjórn­völd hafa nokkru sinni skipu­lagt. Francois Hollande, for­seti Frakk­lands, mun taka á móti nokkrum af leið­togum áhrifa­mestu ríkja heims. Barack Obama, for­seti Banda­ríkj­anna, mun láta sjá sig sem og Xi Jinping, for­seti Kína, auk Narendra Modi, for­sæt­is­ráð­herra Indlands. Saman bera þessu lönd ábyrgð á um það bil helm­ingi allrar los­unar heims­ins.

Margir leið­toga þess­ara 195 ríkja munu vera við­staddir frá upp­hafi fund­ar­ins í París, ólíkt því sem gerð­ist í Kaup­manna­höfn þegar helstu leið­togar létu aðeins sjá sig síð­ustu daga fund­ar­ins. Er talið að það hafi átt þátt í að COP15 fund­ur­inn varð svo slæmur; samn­inga­við­ræð­urnar fengu ekk­ert vægi fyrr en of seint.

Frá Íslandi munu Sigrún Magn­ús­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, og Gunnar Bragi Sveins­son, utan­rík­is­ráð­herra, fara. Full­trúar allra þing­flokka á Alþingi verða einnig við­staddir, auk sendi­nefndar Íslands frá Umhverf­is­ráðu­neyt­inu undir for­ystu Huga Ólafs­sonar. Auk þeirra munu emb­ætt­is­menn og full­trúar íslenskra fyr­ir­tækja sækja ráð­stefn­una.

Samkvæmt heim­ildum CNN er óvíst að Frans páfi geri sér ferð til Parísar en hann hefur talað opin­skátt fyrir því að ríki heims setji sér raun­veru­leg mark­mið í lofts­lags­málum til þess að tryggja vel­ferð mann­kyns um ókomna fram­tíð.

Hvers vegna verður fundurinn að slá í gegn?

Mark­miðið með ráð­stefn­unni er skýrt og þess vegna er mik­il­vægt að ríki heims­ins kom­ist að sam­hljóða bind­andi nið­ur­stöðu sem kemur til með að minnka losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda út í and­rúms­loftið. Allt sem mun líkj­ast nið­ur­stöðu ráð­stefn­unnar í Kaup­manna­höfn, þar sem eng­inn samn­ingur var und­ir­rit­aður, verður dæmt sem mis­tök.

Tak­mark­anir Kyoto­bók­un­ar­innar munu renna út árið 2020, svo nú fer tím­inn að renna út eigi að halda sam­komu­lag­inu óslitnu.

Lofts­lags­málin eru hins vegar ekki aðeins umhverf­is­mál heldur einnig efna­hags­mál. Lang flest ríkin hafa þegar skilað stefnu­mót­un­ar­mark­miðum sínum sem vænt­an­legt sam­komu­lag mun byggja á. En það er fjár­mála­hlið á lofts­lags­mál­unum líka, þar sem málin munu hugs­an­lega stranda. 

Á und­ir­bún­ings­fundum fyrir COP21 hefur það verið áætlað að iðn­vædd ríki heims­ins þurfi að útvega um það bil 100 millj­örðum banda­ríkja­dölum á ári frá og með 2020. Pen­ing­arnir eru ætl­aðir van­þró­uðum ríkjum til þess að berj­ast gegn auk­inni mengun og hjálpa við sjálf­bæra efna­hags­þróun land­anna. Það hefur nefni­lega verið sýnt fram á að hag­vöxtur og aukin útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eru tengd fyr­ir­bæri. Hvaðan þessir pen­ingar eiga að koma er hugs­an­legt steytisker við­ræðn­anna. Hversu mikið á að koma frá ríkjum heims og hversu mikið verður lagt í skaut einka­fyr­ir­tækja? Hvaða hlut­verki á mark­að­ur­inn að gegna í þessu?

[adspot]

Hvers vegna skiptir þetta mig máli?

Ef þú átt ekki miða með Mars One og hygg­ist stofna nýlendu á Mars þá þarftu að öllum lík­indum að búa á jörð­inni í nokkra ára­tugi í við­bót. Á meðan munt þú finna fyrir lofts­lags­breyt­ingum og ættir að hafa áhuga á útkomu ráð­stefn­unnar í París.

Sýnt hefur verið fram á að afleið­ingar hlýn­unar lofts­lags verða ákaf­ari veður á borð við miklar hita­bylgjur, þurrka og flóð. Um leið bráðna jöklar og haf­ís­breiður með þeim afleið­ingum að yfir­borð sjávar hækkar. Margar af helstu versl­un­ar­stöðvum heims­ins munu sökkva í sæ og margar millj­ónir manna neyð­ast til að yfir­gefa heim­ili sín og flytja annað.

Um leið og veð­ur­far breyt­ist munu vatns­lindir þorna upp eða breyt­ast og mat­væla­ör­yggi skerð­ast eða breyt­ast. Afleið­ing­arnar munu helst bitna á þró­unar- og fátæk­ari löndum þar sem stjórn­völd eiga ekki efni á þeim ráð­stöf­unum sem þarf að grípa til.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár