Aðili

Kristján Þór Júlíusson

Greinar

„Veit ekki hvernig við hefðum farið að án Leiðarljóss“
Fréttir

„Veit ekki hvernig við hefðum farið að án Leið­ar­ljóss“

Rekstr­arfé Leið­ar­ljóss, stuðn­ings­mið­stöðvar fyrir fjöl­skyldur barna með sjald­gæfa og alvar­lega lang­vinna sjúk­dóma, er uppurið. Að óbreyttu verður mið­stöð­inni lokað eftir ára­mót, þar sem heil­brigð­is­ráð­herra hyggst ekki að standa við lof­orð um að tryggja áfram­hald­andi rekstur hennar. Móðir lang­veikrar stúlku sem lést fyrr á árinu segir Leið­ar­ljós hafa veitt fjöl­skyld­unni nauð­syn­lega og mik­il­væga hjálp í gegnum veik­indi dóttur hennar.
Einkavæðing innan heilsugæslunnar: Einungis þrír læknahópar sóttu um þrjár einkareknar heilsugæslustöðvar
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Einka­væð­ing innan heilsu­gæsl­unnar: Einungis þrír lækna­hópar sóttu um þrjár einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar

Teitur Guð­munds­son heim­il­is­læknir er í fyr­ir­svari fyrir tvo af þremur lækna­hópum sem sóttu um rekstur nýrra þriggja heilsu­gæslu­stöðva. Þórarinn Ing­ólfs­son fer fyrir hinum hópnum en stöðv­arnar eiga að vera í Álf­heimum, Bílds­höfða og Urriða­hvarfi sam­kvæmt til­lög­unum. Guð­mundur Karl Snæ­björns­son heim­il­is­læknir hætti við að sækja um og varar við að öryggi sjúk­linga sé stefnt í hættu.
Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu: Einn fimmti hluti greiðslna frá ríkinu tekinn út sem arður
ÚttektEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu: Einn fimmti hluti greiðslna frá rík­inu tek­inn út sem arður

Einka­rekin mynd­grein­ing­ar­fyr­ir­tæki á sviði lækn­is­fræði eru meðal arð­bær­ustu fyr­ir­tækj­anna í heibrigð­is­geir­anum. Tvö þeirra skila drjúgum hagn­aði og geta greitt út tug­millj­óna króna arð til hlut­hafa sinna á hverju ári. Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra vill ekki hrófla við mögu­leikum þess­ara fyr­ir­tækja til að greiða út arð til hlut­hafa en hann ætlar hins vegar að banna arð­greiðslur út úr einka­reknum heilsu­gæslu­stöðvum. Ekkert eft­ir­lit er með arð­greiðslum út úr einka­reknum heil­brigð­is­fyr­ir­tækjum á Íslandi.
Verður læknum á einkareknum heilsugæslustöðvum bannað að greiða sér út arð?
Ingi Freyr Vilhjálmsson
Pistill

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Verður læknum á einka­reknum heilsu­gæslu­stöðvum bannað að greiða sér út arð?

Hvernig passar hug­myndin um arð­greiðslu­bann út úr einka­reknum heilsu­gæslu­stöðvum við hug­mynd­ina um auk­inn einka­rekstur í heil­brigðs­kerf­inu? Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra hefur sett fram rót­tæka hug­mynd um að banna arð­greiðslur en til sam­an­burðar er bara einn flokkur í Svíþjóð sem vill ganga svo langt.
Eru arðgreiðslurnar réttlætanlegar? Tveir læknar hafa tekið sér nærri 200 milljóna arð frá hruni
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Eru arð­greiðsl­urnar rétt­læt­an­legar? Tveir læknar hafa tekið sér nærri 200 millj­óna arð frá hruni

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra hefur boðað rót­tækar breyt­ingar á rekstr­ar­formi heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Ætlar að banna arð­greiðslur út úr heilsu­gæslu­stöðv­unum. Tals­verðar arð­greiðslur hafa verið út úr þeim tveimur einka­reknu heilsu­gæslu­stöðvum, Sala­stöð­inni og Lág­múla­stöð­inni sem reknar hafa verið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Nokkur einka­rekin heil­brigð­is­fyr­ir­tæki hafa greitt út háan arð á liðnum árum. Af hverju á að taka heilsu­gæslu­stöðv­arnar sér­stak­lega fyrir og banna eig­end­unum að taka út arð?

Mest lesið undanfarið ár