Aðili

Indriði Þorláksson

Greinar

FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Indriði segir fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar van­fjár­magn­aða og lækkun veiði­gjalda óráð

„Ríkis­fjármálaáætl­un­ar­til­lagan er van­fjármögnuð og mun ekki standa undir þeim umbótum í vel­ferð­armálum og upp­bygg­ingu inn­viða sem boðuð voru í stjórnarsáttmálanum. Lækkun veiði­gjald­anna mun enn auka á þann vanda,“ skrifar Indriði H. Þor­láks­son.
FréttirÁlver

Alcoa: Laga­setn­ingin hefði ekki haft nein áhrif á 6,2 millj­arða vaxta­greiðslur 2014 og 2015

Vaxt­greiðslur álfyr­ir­tæk­is­ins Alcoa hafa almennt verið undir þeim við­miðum sem kveðið er á um í nýjum lögum um tekju­skatt. Laga­breyt­ingin sem á að koma í veg fyrir skattaund­an­skot slíkra fyr­ir­tækja virð­ist því ekki hafa mikil áhrif. For­stjóri Alcoa segir að fyr­ir­tækið vinni að því að kanna áhrif laga­breyt­ing­ar­innar á starf­semi álfyr­ir­tæk­is­ins.
FréttirÁlver

Óskatt­lagðar vaxta­greiðslur Alcoa úr álver­inu nema 67 millj­örðum króna

Vaxta­greiðslur álvers­ins á Reyð­ar­firði til félags í eigu Alcoa í Lúx­em­borg eru rúm­lega tveimur millj­örðum króna hærri en bók­fært tap álvers­ins á Íslandi. Síðasta rík­is­stjórn breytti lögum um tekju­skatt til að koma í veg fyrir slíka skatta­snún­inga. Indriði Þor­láks­son segir að laga­breyt­ing­arnar séu ekki nægi­lega rót­tækar til að koma í veg fyrir skattaund­an­skot með lána­við­skiptum á milli tengdra félaga.
ÚttektRíkisfjármál

Þyngri skatt­byrði hjá öllum nema tekju­hæstu hóp­unum

Frá­far­andi rík­is­stjórn hefur lagt höf­uð­á­herslu á að lækka skatta á fjár­sterk­ustu hópa íslensks sam­fé­lags. Umtals­verð til­færsla á fjár­hags­legum byrðum hefur átt sér stað á á tíma­bil­inu 2013 til 2016, ann­ars vegar með breyt­ingum á skatt­kerf­inu þar sem lág­tekju- og milli­tekju­hópar hafa orðið útundan og hins vegar með rík­is­af­skiptum þar sem hið opin­bera hefur nið­ur­greitt einka­skuldir fast­eigna­eig­enda með skattfé en leyft bótum að rýrna.

12 mín. lestur

ÚttektÁlver

Svona sleppa álfyr­ir­tækin við að borga skatta á Íslandi

Norðurál hefur greitt 74 millj­arða í fjár­magns­kostnað, mest til eigin móð­ur­fé­lags, á sama tíma og fyr­ir­tækið hefur skilað bók­færðum hagn­aði upp á 45 millj­arða króna. Indriði Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, segir fyr­ir­tækið nota „fléttu“ til að kom­ast hjá skatt­greiðslum á Íslandi. Öll álfyr­ir­tækin þrjú beita ýmsum aðferðum til að eiga í sem mestum við­skiptum við móð­ur­fé­lög sín og önnur tengd fyr­ir­tæki. Álfyr­ir­tækin segja að um eðli­leg lán vegna fjár­fest­inga sé að ræða. Unnið er að breyt­ingum á skatta­lögum í fjár­mála­ráðu­neyt­inu sem eiga að girða fyrir óeðli­leg við­skipti tengdra fyr­ir­tækja.

21 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár