Byrð­arnar færðar til Arfleifð frá­far­andi rík­is­stjórnar er gjör­breytt skatta­lands­lag og sterk fjár­hags­staða rík­is­sjóðs. Mynd: Pressphotos.biz / Geiri

Þyngri skattbyrði hjá öllum nema tekjuhæstu hópunum

Frá­far­andi rík­is­stjórn hefur lagt höf­uð­á­herslu á að lækka skatta á fjár­sterk­ustu hópa íslensks sam­fé­lags. Umtals­verð til­færsla á fjár­hags­legum byrðum hefur átt sér stað á á tíma­bil­inu 2013 til 2016, ann­ars vegar með breyt­ingum á skatt­kerf­inu þar sem lág­tekju- og milli­tekju­hópar hafa orðið útundan og hins vegar með rík­is­af­skiptum þar sem hið opin­bera hefur nið­ur­greitt einka­skuldir fast­eigna­eig­enda með skattfé en leyft bótum að rýrna.

Í rík­is­stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins árin 2013 til 2016 hefur bein skatt­byrði lág­tekju- og milli­tekju­hópa auk­ist meðan álögum hefur verið létt af hátekju­hópum, stór­eigna­fólki, útgerð­ar­fyr­ir­tækjum og álf­ram­leið­endum. Ráð­stöf­un­ar­tekjur lands­manna hafa auk­ist jafnt og þétt en lang­sam­lega mest hjá tekju­hæstu hópum íslensks sam­fé­lags.

Þetta er sú mynd sem blasir við þegar rýnt er í tölur rík­is­skatt­stjóra og Hag­stof­unnar. Ef litið er til beinna skatta sem hlut­falls af heild­ar­tekjum er ljóst að skatt­byrðin hefur þyngst hjá öllum tekju­hópum nema tekju­hæstu 20 pró­sentum lands­manna. Með beinum sköttum er átt við almennan tekju­skatt að frá­dregnum bótum auk útsvars, fjár­magnstekju­skatts og auð­legð­ar­skatts. Ef auð­legð­ar­skatt­ur­inn er ekki tek­inn með í reikn­ing­inn kemur í ljós að ein­ungis skatt­byrði tekju­hæstu 10 pró­sent­anna hefur minnkað – mest þó skatt­byrði þeirra 5 pró­senta sem hafa allra hæstar tekjur. 

Skatt­byrði hjóna og sam­búð­ar­fólks árin 2012 og 2015.

Á sama tíma­bili hefur virð­is­auka­skattur á mat verið hækk­aður, en slík hækkun leggst þyngst á þá tekju­lægstu, sem verja hæstu hlut­falli tekna sinna í mat. Auk þess hefur stjórn­ar­meiri­hlut­inn þrisvar sinnum fellt til­lögur stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna um að aldr­aðir og öryrkjar fái sam­bæri­legar hækk­anir og laun­þegar á almenna mark­aðnum. Þannig er ljóst að það svig­rúm sem mynd­ast hafði í rík­is­fjár­málum þegar rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Bjarna Bene­dikts­sonar tók við árið 2013 hefur að mestu leyti verið nýtt til að létta sköttum og skuldum af hinum vel­meg­andi. Um leið hefur fjár­fest­ing­ar­stigi hins opin­bera verið haldið í lág­marki og aðhalds verið gætt á flestum sviðum sam­neysl­unnar, svo sem í heil­brigðis- og mennta­málum.   

Létt undir með útgerðinni

Eitt af fyrstu verkum rík­is­stjórn­ar­innar var að breyta og lækka veiði­gjöld á útgerð­ar­fyr­ir­tæki. Ef ekki hefði verið hreyft við sér­staka veiði­gjald­inu sem lög­fest var í tíð vinstri­st­jórn­ar­innar árið 2012 hefðu tekj­urnar af gjald­inu farið stig­vax­andi á því kjör­tíma­bili sem nú er að ljúka.

Sé áætlun um tekjur af veiði­gjöldum að óbreyttum lögum vinstri­st­jórn­ar­innar borin saman við gögn Fiski­stofu um álögð veiði­gjöld á kjör­tíma­bili hægri­st­jórn­ar­innar, auk spár um veiði­gjöld á yfir­stand­andi fisk­veiði­ári, nemur mis­mun­ur­inn meira en 40 millj­örðum króna. Þannig er ljóst að gríð­ar­legum fjár­hags­legum byrðum hefur verið létt af útgerð­inni, ekki síst á þeim 10 stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækjum sem nýta meiri­hluta fisk­veiði­kvót­ans og bera þannig hit­ann og þung­ann af veiði­gjöld­unum. Tíu stærstu útgerðir lands­ins miðað við kvóta eru fyr­ir­tækin HB Grandi, Samherji, Síld­ar­vinnslan, Vinnslu­stöðin, Ísfélag Vest­manna­eyja, Þorbjörn hf., Skinney-Þinganes, Fisk-Seafood, Brim og Rammi. Þessi fyr­ir­tæki styrktu Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn um sam­tals 5,4 millj­ónir í fyrra sam­kvæmt árs­reikn­ingum flokk­anna.

Annað for­gangs­mál rík­is­stjórn­ar­innar, strax á sum­ar­þingi 2013, var að aft­ur­kalla ákvörðun vinstri­st­jórn­ar­innar um hækkun virð­is­auka­skatts á útleigu hótel- og gisti­her­bergja upp í hið almenna þrep kerf­is­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár