Flokkur

Fréttaskýringar

Skýring

Óttinn við frek­ari vanda­mál í Kína heldur vöxtum niðri í Banda­ríkj­unum

Seðla­banki Banda­ríkj­anna ákvað í gær að halda vöxtum við núllið áfram, eins og þeir hafa verið frá því í des­em­ber 2008. Margir höfðu búist við því að seðla­bank­inn hæfi vaxta­hækk­un­ar­ferli enda hafði Janet Yellen, seðla­banka­stjóri, gefið það út í byrjun árs­ins að vextir gætu farið að hækka í kringum „mitt ár“. Síðan hefur nokkur spenna byggst upp enda þykir ákvörð­unin...
Skýring

Spjótin bein­ast að banka­mönnum en ekki bara bönkum

„Bankar brjóta ekki gegn lögum, banka­menn gera það.“ Þannig hefst umfjöllun The New York Times um nýlega til­kynn­ingu frá dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna, frá því í síð­ustu viku, þar sem því er heitið að rann­sóknir og sak­sóknir muni nú bein­ast að æðstu stjórn­endum banka og fjár­mála­fyr­ir­tækja í Banda­ríkj­unum. Til þessa hafa engir af æðstu yfir­mönnum stærstu fjár­mála­fyr­ir­tækj­anna verið lög­sóttir, þrátt fyrir að...
Skýring

Allir stóru prent­miðlar lands­ins mæl­ast með minnsta lestur sinn í Íslands­sög­unni

Lestur Frétta­blaðs­ins, Morg­un­blaðs­ins, Frétta­tím­ans og DV hefur aldrei mælst minni en hann mæld­ist í ágúst­mán­uði. Eini prent­mið­ill­inn sem mælist ekki með lestur í sögu­legum lægðum er Við­skipta­blaðið, sem tapar þó umtals­verðum lestri á milli mán­aða. Þetta kemur fram í nýrri lestr­ar­könnun Gallups sem birt var fyrir skemmstu. Lestur prent­miðla ágúst 2015 | Create infographics Frétta­blaðið við það að rjúfa 50...
Skýring

Obama réttir fram hjálp­ar­hönd en stígur línu­dans í hern­að­ar­spennu

Ákvörðun stjórn­valda í Banda­ríkj­unum um að taka við tíu þús­und flótta­mönnum frá Sýrlandi á næsta ári sætir tíð­indum, þó fjöld­inn sé aðeins dropi í hafi vanda­máls­ins sem þjóðir heims­ins, ekki síst í Evrópu, standa frammi fyrir vegna gríð­ar­legs straums fólks frá stríðs­hrjáðum svæðum, einkum Sýrlandi, Írak og Afganistan. Fram að þessu hafa stjórn­völd í Banda­ríkj­unum haft sjálf­stæða stefnu gagn­vart Sýrlandi...
Skýring

Íslend­ingar eiga um 32 millj­arða króna á Tortóla

Í lok árs 2014, rúmum sex árum eftir banka­hrun og setn­ingu gjald­eyr­is­hafta, áttu Íslend­ingar enn rúm­lega eitt þús­und millj­arða króna í erlendri fjár­muna­eign. Um er að ræða annað hvort eigið fé eða lán­veit­ingar á milli aðila í sömu eigu. Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum Seðla­banka Íslands um beina fjár­muna­eign íslenskra aðila erlendis sem birtar voru 9. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Á...
Skýring

Krefj­andi tímar framundan í Noregi

Horfur í efna­hags­málum Noregs hafa versnað nokkuð á und­an­förnu ári og ástæðan er nokkuð auð­sjá­an­leg; hröð verð­lækkun á olíu. Á mark­aði í morgun hélt hrá­olía áfram að lækka í verði og kostar tunnan nú 44 Band­ríkja­dali, en fyrir um ári síðan var verðið tæp­lega 110 Banda­ríkja­dalir. Fyrir olíu­fram­leiðslu­ríki eins og Noreg, sem hefur upp­lifað mikla efna­hags­lega upp­sveiflu á und­an­förnum árum,...
Skýring

Ref­skákin stig­magn­ast á milli aust­urs og vest­urs - Rússar eiga næsta leik

Banda­ríkja­menn boð­uðu í síð­ustu viku frekara við­skipta­bann gegn Rússum en á “nýja” bann­list­anum er meðal ann­ars að finna rúss­neska ein­stak­linga og rúss­nesk fyr­ir­tæki sem sökuð eru um að hafa brotið gegn NPT-sátt­mál­anum svo­kall­aða með aðkomu sinni að útbreiðslu á kjarna­vopnum til Írans, Norður-Kóreu og Sýrlands. Í frétta­til­kynn­ingu frá rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, sem birt var í rúss­neskum fjöl­miðlum fljót­lega eftir að nýjasta...
Skýring

Kaupþing á 173,9 millj­arða í krónum og 663,8 millj­arða í erlendum myntum

Bókfært virði slita­bús Kaup­þings nam 837,7 millj­örðum króna og jókst um tæp­lega 38 millj­arða á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Handbært fé nemur um 408 millj­örðum króna og jókst um sjö millj­arða á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi slita­bús Kaup­þings, fyrir fyrstu sex mán­uði árs­ins, sem birtur var í dag. Árs­hluta­reikn­ing­ur­inn er end­ur­skoð­aður af Ernst & Young...
Skýring

Ekki benda á mig!

Emb­ætt­is­menn dönsku Skatt­stof­unnar (SKAT) og starfs­menn danska skatta­ráðu­neyt­is­ins þekkja lík­ast til ekki texta og lag Bubba Morthens "Lög og reglu". Setn­ing­una "ekki benda á mig" hafa þeir þó til­einkað sér, eins og varð­stjór­inn í texta Bubba. Enginn telur sig bera ábyrgð á stærsta skattsvika­máli í sögu Dan­merkur en erlend fyr­ir­tæki eru grunuð um að hafa svikið 6.2 millj­arða króna (rúma...
Skýring

Yfirsjón ráðu­neytis heim­il­aði afnám kaup­skyldu Búmanna

Það var yfir­sjón hjá félags­mála­ráðu­neyt­inu þegar það stað­festi breyt­ingar á sam­þykktum hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lags­ins Búmenn árið 2006 og ráðu­neytið hefur enga heim­ild í lögum til að veita slíkum sam­þykktum aukið gildi. Ráð­herr­ann sem sat í ráðu­neyt­inu man ekk­ert eftir því að hafa stað­fest breyt­ing­arnar þrátt fyrir að bréf hafi verið sent til Búmanna fyrir hans hönd þar sem ráðu­neytið stað­festir þær. Á...
Skýring

Aðal­með­ferð í Marple-máli sér­staks sak­sókn­ara hefst á morgun

Aðal­með­ferð í Marple-mál­inu svo­kall­aða hefst í hér­aðs­dómi Reykja­víkur á morgun, 7. sept­em­ber. Gert er ráð fyrir því að hún taki um tvær vikur. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, Guðný Arna Sveins­dóttir, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri bank­ans, Magnús Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­stjóri bank­ans í Lúx­em­borg og Skúli Þor­valds­son fjár­festir eru ákærð í mál­inu auk fimm félaga. Hreiðar Már og Guðný Arna eru ákærð...
Skýring

Af hverju er íslenska knatt­spyrnu­lands­liðið orðið eitt það besta í öllum heim­inum?

Íslend­ingar eru margir hverjir sann­færðir um að við séum best í heimi, í öllu, miðað við höfða­tölu. Þessi sann­fær­ing og full­yrð­ingar sem byggja á henni eru and­lag gríð­ar­legs magns brand­ara sem við segjum um okkur sjálf til að rétt­læta eða verja mik­il­mennsku­brjál­æðið sem á stundum hel­tekur okkur á flestum sviðum sem við reynum fyrir okkur á. Drambið og brjál­æðið varð...

Mest lesið undanfarið ár