Allir stóru prentmiðlar landsins mælast með minnsta lestur sinn í Íslandssögunni

Lestur Frétta­blaðs­ins, Morg­un­blaðs­ins, Frétta­tím­ans og DV hefur aldrei mælst minni en hann mæld­ist í ágúst­mán­uði. Eini prent­mið­ill­inn sem mælist ekki með lestur í sögu­legum lægðum er Við­skipta­blaðið, sem tapar þó umtals­verðum lestri á milli mán­aða.

Þetta kemur fram í nýrri lestr­ar­könnun Gallups sem birt var fyrir skemmstu.

Lestur prent­miðla ágúst 2015

|

Create infographics

Fréttablaðið við það að rjúfa 50 prósent múrinn

Frétta­blaðið, sem fór í gegnum mestu útlits­breyt­ingar sem blaðið hefur ráð­ist í í sögu sinni í ágúst­mán­uði, heldur áfram að tapa lestri og er nú komið mjög nálægt 50 pró­sent lestri hjá öllum ald­urs­hópum. Á meðal þeirra breyt­inga sem fram­kvæmdar voru á Frétta­blað­inu voru þær að leið­ar­a­opnu blaðs­ins var gjör­breytt, hinn svo­kall­aði fréttakross, sem hafði verið við lýði frá stofnun blaðs­ins og lagði áherslur á smærri fréttir í bland við stærri, hefur verið aflagður og rík­ari áhersla er nú lögð á birt­ingu ljós­mynda en áður. Þrátt fyrir breyt­ing­arnar hefur lestur blaðs­ins aldrei mælst lægri en hann mæld­ist í ágúst­mán­uði.


Blaðið er þó enn lang­mest lesna dag­blað lands­ins, enda dreift frítt í 90 þús­und ein­tökum sex daga vik­unnar inn á heim­ili fólks­ins í land­inu.

Lestur Frétta­blaðs­ins hefur fallið hratt und­an­farin ár og blaðið hefur alls tapað rúm­lega 20 pró­sent les­enda sinna á síð­ustu fimm árum.

Fréttatíminn í frjálsu falli


Frétta­tím­inn kom fyrst út fyrir tæpum fimm árum síðan. Blaðið er frí­blað sem er prentað í 82 þús­und ein­tökum einu sinni í viku og dreift í hús. Blaðið var fyrst með í mæl­ingum Gallup í mars 2011 og mæld­ist þá með tæp­lega 42 pró­sent lestur. Síðan þá hefur lest­ur­inn rokkað tölu­vert en Frétta­tím­inn virt­ist á mik­illi sigl­ingu í upp­hafi árs, á sama tíma og aðrir miðlar með stórt upp­lag voru í frjálsu falli. Í mars síð­ast­liðnum mæld­ist lestur hans 40,57 pró­sent.

Síðan þá hefur hann verið á hraðri nið­ur­leið og í ágúst, ein­ungis fimm mán­uðum síðar, mælist hann 36,34 pró­sent. Það er minnsti lestur sem Frétta­tím­inn hefur nokkru sinni mælst með og tíu pró­sentum minni en hann var í mars síð­ast­liðnum.

35 prósent lesenda farinn á sex árum


Morg­un­blaðið, stærsta áskrift­ar­blað lands­ins sem stofnað var fyrir 102 árum síðan, hefur heldur aldrei mælst með minni lestur, en 28,09 pró­sent Íslend­inga yfir 18 ára aldri segj­ast lesa blaðið nú. Lesendum Morg­un­blaðs­ins hefur fækkað mikið und­an­farin ár.

Árið 2009, þegar nýir eig­endur tóku við blað­inu og núver­andi rit­stjórnar þess voru ráðnir, lásu 43 pró­sent lands­manna blaðið. Um 35 pró­sent les­enda hafa því yfir­gefið Morg­un­blaðið á sex árum. Lest­ur­inn fór í fyrsta sinn í ára­tugi undir 30 pró­sent snemma árs í fyrra og hjá fólki undir fimm­tugu mælist lest­ur­inn ein­ungis um 20 pró­sent.

DV nær sögulegum botni


DV er hins vegar það dag­blað sem kemur verst allra út úr könn­un­inni. Blaðið missir yfir tvö pró­sentu­stig í lestri, eða um 23 pró­sent af þeim fjölda sem las blaðið í júlí. Nú lesa 7,13 pró­sent þjóð­ar­innar yfir 18 ára aldri DV og lestur blaðs­ins hefur aldrei nokkru sinni í 40 ára sögu þess verið jafn lít­ill og hann var í síð­asta mán­uði. Þegar horft er á yngri les­endur, þá sem eru undir fimm­tugu, er lest­ur­inn enn minni, eða um sex pró­sent.


Lestur DV hefur dreg­ist hratt saman und­an­farna mán­uði í kjöl­far mik­illa átaka um eign­ar­hald mið­ils­ins og mik­illa breyt­inga á starfs­manna­haldi. Reynir Trausta­son, fyrrum aðal­eig­andi DV og rit­stjóri blaðs­ins, var ýtt út af miðl­inum í sum­ar­lok 2014 eftir að aðilar undir for­ystu Þor­steins Guðna­sonar, sem lánað höfðu DV tölu­vert fé, tóku yfir fjöl­mið­il­inn. Með Reyni hurfu á brott allir helstu stjórn­endur DV og nokkrir blaða­menn. Flestir í þeim hópi stofn­uðu síðar fjöl­mið­il­inn Stundina.

Í dag er stærsti eig­andi og útgef­andi DV Björn Ingi Hrafns­son. Útgáfu­fé­lag hans heldur líka úti vef­miðl­unum DV.is, Eyjan.is, Pressan.is og Bleikt.is. Nýir rit­stjórar, Eggert Skúlason og Kolbrún Berg­þórs­dóttir, voru ráðin til að stýra DV í lok síð­asta árs. Síðan þá hefur lestur blaðs­ins dreg­ist saman um tæp 30 pró­sent.

Minnkar þriðja mánuðinn í röð


Við­skipta­blaðið, sem er selt í áskrift, hafði verið á tölu­verðu skriði und­an­farna mán­uði og náði sinni bestu mæl­ingu frá því að blaðið kom aftur inn í mæl­ingar Gallup sum­arið 2011 í maí síð­ast­liðnum. Þá sögð­ust 12,4 pró­sent lands­manna lesa Við­skipta­blaðið. Vert er að taka fram að Við­skipta­blaðið sker sig frá hinum dag­blöð­unum þar sem um er að ræða syllu­blað með afmörkuð efn­is­tök, selt í áskrift og kemur út einu sinni í viku.

Lestur blaðs­ins hefur hins vegar minnkað þrjá mán­uði í röð og mælist nú 10,94 pró­sent. Við­skipta­blaðið, líkt og Frétta­blaðið, fékk mikla and­lits­lyft­ingu á árinu, þá fyrstu frá því í jan­úar 2010.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár