Flokkur

Flóttamenn

Fréttir

Kostn­að­ur­inn jókst veru­lega á sama tíma og miklu færri sóttu um

Kostn­aður við þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd jókst um rúm 50 pró­sent á fyrstu sex mán­aðum þessa árs sam­an­borið við fyrri helm­ing síð­asta árs. Samt fækk­aði umsóknum um hæli hér á landi um 50 pró­sent milli tíma­bila. Kostn­að­ar­aukn­ing­una má rekja til tafa í máls­með­ferð hjá Útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála.
ÚttektFólkið í neyðarskýlinu

Ætluðu til Ameríku en fest­ust á Íslandi

Fyrir klukkan tíu á morgn­anna pakka þeir föggum sínum niður og setja þær í geymslu. Þeir líta eftir lög­regl­unni og fara svo af stað út, sama hvernig viðrar. Þeir mæla göt­urnar til klukkan fimm á dag­inn, þangað til svefn­stað­ur­inn opnar aftur. Tilvera þessa svefn­staðar er ekki tryggð. Flosnað hefur úr hópnum sem þar sefur á síð­ustu mán­uðum og líka bæst við.

10 mín. lestur

ÚttektFólkið í neyðarskýlinu

Fót­bolta­mað­ur­inn sem ætl­aði að verða píp­ari en end­aði í neyð­ar­skýl­inu

Hann útskrif­að­ist úr íslensku­námi frá Tækni­skól­anum, var byrj­aður að æfa fót­bolta með Þrótti og að læra pípar­ann þegar fót­unum var kippt undan honum. Húsnæðið var tekið af honum, heil­brigð­is­þjón­ustan og vasa­pen­ing­arnir líka. Nú gistir hann á sófa vinar síns eða í neyð­ar­skýli Rauða kross­ins. Framtíð þess hefur ekki verið tryggð.

12 mín. lestur

Fréttir

Í hjóla­stól á Lækj­ar­torgi: „Það kemur ekki til greina að halda kjafti“

Þrátt fyrir hávær mót­mæli Íslend­inga, inn­flytj­enda og fjöl­margra rétt­inda­sam­taka er enn á dag­skrá að vísa 11 ára gömlum palest­ínskum dreng með hrörn­un­ar­sjúk­dóm úr landi. Nú reynir stuðn­ings­fólk hans nýja aðferð til þess að ná eyrum stjórn­valda, að setj­ast niður fyrir dreng­inn í stað þess að standa upp fyrir honum.
Fréttir

„Má hann ekki njóta þess sem hann á eftir ham­ingju­samur hér?“

Mótmæli gegn brott­vísun hins ell­efu ára gamla Yazans Tamimis á Aust­ur­velli eru síð­asta von hans og for­eldra hans, segir vin­kona fjöl­skyld­unnar. Hún segir mót­mælin tæki­færi til þess að sýna Yazan „að það er fólk sem vill hafa hann hérna, hann er ekki einn.“ Þing­maður spyr hvort íslensk stjórn­völd vilji raun­veru­lega vera ábyrg fyrir því að stytta líf drengs­ins.
Fréttir

„Þegar þér hefur verið brott­vísað er öllum skít­sama um þig“

Dr. Jennifer Okeke, níger­ískur sér­fræð­ingur í mansals­málum sem starfar við mála­flokk­inn á Írlandi, hitti nýlega Blessing, Esther og Mary, sem vísað var úr landi 20. maí síð­ast­lið­inn. Hún segir ástand þeirra slæmt og mjög fáa val­kosti standa þeim til boða. Íslenskar vin­konur kvenn­anna segja þær hafa verið sendar út skil­ríkja- og lyfja­lausar.

Mest lesið undanfarið ár