Flokkur

Flóttamenn

Fréttir

Þrengt að mögu­leikum hæl­is­leit­enda á að fá rétt­ar­á­hrifum frestað

„Þess ber að geta að kostn­aður við hvern umsækj­anda í þjón­ustu er 8.000 kr. fyrir hvern dag,“ segir í frum­varpi Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra þar sem lagt er til að girt verði var­an­lega fyrir að kærur hæl­is­leit­enda fresti rétt­ar­á­hrifum ákvörð­unar Útlend­inga­stofn­unar um brott­vísun í til­vikum þar sem hæl­is­um­sókn hefur verið metin ber­sýni­lega til­hæfu­laus og umsækj­andi kemur frá landi sem er á lista stofn­un­ar­innar yfir örugg ríki.
FréttirACD-ríkisstjórnin

Ísland leggst gegn auk­inni sam­á­byrgð Evr­ópu­ríkja í flótta­manna­málum

Sigríður Andersen, dóms­mála­ráð­herra nýrrar rík­is­stjórnar, fór til Möltu og beitti sér gegn breyt­ingum á Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni og auk­inni sam­á­byrgð Evr­ópu­ríkja vegna afgreiðslu hæl­is­um­sókna. Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill mæta ákveðnum hópi hæl­is­leit­enda „með hörðum stál­hnefa“.
ViðtalBörn í leit að alþjóðlegri vernd

Flúðu grimmi­legar árásir tali­bana: Fá ekki vernd á Íslandi

Sjö manna fjöl­skyldu frá Afganistan verður vísað úr landi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar á næstu dögum. Þeirra á meðal er stúlka sem var barin til óbóta af tali­bönum þriggja ára gömul. Fjöl­skyldan flúði ofsóknir og árásir tali­bana á síð­asta ári, en þeir réð­ust á fjöl­skyld­una þegar fjöl­skyldu­fað­ir­inn, Mir Ahmad Ahmadi, neit­aði að ganga til liðs við þá. Mir missti tennur í árásinni og fimm ára sonur hans hand­leggs­brotn­aði illa. Stúlkan er í dag lömuð öðrum megin í and­lit­inu og á erfitt með að tjá sig, en hefur tekið ótrú­legum fram­förum eftir að hún kom til Íslands. Fjöl­skyld­unni hefur verið gert að yfir­gefa eina landið þar sem þau hafa fundið til öryggis.

24 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár