Fréttamál

Flóttafólk frá Venesúela

Greinar

FréttirFlóttafólk frá Venesúela

Drógu stuðn­ing við Guaidó til baka árið 2020

Íslensk stjórn­völd drógu stuðn­ing við Juan Guaidó, fyrr­ver­andi leið­toga venes­ú­elsku stjórn­ar­and­stöð­unnar, til baka í des­em­ber árið 2020 án þess að til­kynna það sér­stak­lega. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra hafði tæpum tveimur árum fyrr til­kynnt opin­ber­lega að Ísland styddi Guiadó sem for­seta lands­ins. Stuttu áður hafði Ísland byrjað að veita öllum venes­ú­elskum rík­is­borg­urum sem hingað komu vernd. Nú er Ísland hætt því.
FréttirFlóttafólk frá Venesúela

Færri venes­ú­elskir komu eftir úrskurði Útlend­inga­stofn­unar

Verulega hefur dregið úr umsóknum frá venes­ú­elskum hæl­is­leit­endum um alþjóð­lega vernd á Íslandi síðan Útlend­inga­stofnun hætti að veita öllum venes­ú­elskum hæl­is­leit­endum við­bót­ar­vernd. Um 200 umsóknir bár­ust mán­að­ar­lega á fyrri hluta þessa árs en í sept­em­ber voru umsókn­irnar ein­ungis 76 tals­ins. „Það kæmi ekki á óvart ef umsóknum frá hópnum myndi fækka í kjöl­far úrskurðar kæru­nefndar,“ segir Þór­hildur Hagalín, upp­lýs­inga­full­trúi Útlend­inga­stofn­unar.
FréttirFlóttafólk frá Venesúela

Fékk ekk­ert að vita fyrr en of seint: „Þú verður að koma og hjálpa mér“

Ung­ur mað­ur frá Venes­ú­ela sem er kom­inn með til­boð um starf með fötl­uðu fólki hér á landi fékk ekki að vita af því að vísa ætti hon­um úr landi fyrr en of seint var fyr­ir hann að kæra ákvörð­un­ina. Hann seg­ir að lög­mað­ur­inn sem hon­um var skip­að­ur hafi ekki svar­að vik­um sam­an. Ekk­ert bíð­ur hans í Venes­ú­ela, lík­lega ekki einu sinni hans eig­in móð­ir.
FréttirFlóttafólk frá Venesúela

Flótta­menn­irnir í JL-hús­inu: Engin vand­ræði hafa komið upp þrátt fyrir hræðslu ein­hverra íbua

Reykja­vík­ur­borg tók í byrjun júní við hús­næði í JL-hús­inu við Hring­braut þar sem umsækj­endur um alþjóð­lega vernd á Íslandi búa meðan þeir bíða eftir svari við umsóknum sínum. Í svörum frá Reykja­vík­ur­borg kemur fram að engin vand­ræði tengd búsetu þeirra í hús­inu hafi komið upp. Ein­hverjir íbúar í nær­liggj­andi hverfum hefur staðið ógn af flótta­mönn­unum þegar fara um og tína dósir.
VettvangurFlóttafólk frá Venesúela

Flótta­menn­irnir sem sumir telja ógn: „Við viljum bara dósir“

Dósa­söfnun flótta­manna frá Venes­ú­ela hefur vakið athygli í ein­hverjum hverfum í Reykja­vík og nær­sveit­ar­fé­lögum. Birtar hafa verið myndir af mönn­unum, sem búa í JL-hús­inu á Hring­braut, og varað við þeim. Sex ungir Venes­ú­ela­búar sem búa þar og safna dósum segj­ast ekki vilja stela neinu frá fólki heldur bara safna dósum.
FréttirFlóttafólk frá Venesúela

Tals­maður flótta­fólks segir orð dóms­mála­ráð­herra „ófag­leg“ og „ómann­úð­leg“

Dóms­mála­ráð­herra, Jón Gunn­ars­son, situr í ráð­herra­nefnd um mál­efni flótta­fólks og inn­flytj­enda sem fékk kynn­ingu á gögnum um mikla atvinnu­þátt­töku Venes­ú­ela­búa á Íslandi haustið 2022. Hann hefur samt haldið því fram að þetta fólk vilji setj­ast upp á vel­ferð­ar­kerfið hér.
FréttirFlóttafólk frá Venesúela

Atvinnu­þátt­taka flótta­manna frá Venes­ú­ela er meiri en Íslend­inga

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur sagt að flótta­menn frá Venes­ú­ela komi meðal ann­ars til Íslands til að setj­ast upp á vel­ferð­ar­kerfið. Þing­mað­ur­inn Birgir Þór­ar­ins­son hefur einnig sagt þetta. Gögn frá félags­mála­ráðu­neyt­inu sýna hins vegar að atvinnu­þátt­taka flótta­manna frá Venes­ú­ela er 86,5 pró­sent.

Mest lesið undanfarið ár