Safna allir dósum Menn­irnir sex á mynd­inni eru allir frá Venes­ú­ela og búa í JL-hús­inu. Enginn þeirra er kom­inn með vernd á Íslandi og drýgja þeir allir tekjur sínar með því að safna dósum og flösum. Frá vinstri: Pedro Luis Mata, Enrique Mora, José Daniel, Henri Rojas, Gerald Contreras, Rafael Navarro. Mynd: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Flóttamennirnir sem sumir telja ógn: „Við viljum bara dósir“

Dósa­söfnun flótta­manna frá Venes­ú­ela hefur vakið athygli í ein­hverjum hverfum í Reykja­vík og nær­sveit­ar­fé­lögum. Birtar hafa verið myndir af mönn­unum, sem búa í JL-hús­inu á Hring­braut, og varað við þeim. Sex ungir Venes­ú­ela­búar sem búa þar og safna dósum segj­ast ekki vilja stela neinu frá fólki heldur bara safna dósum.

Sex flótta­menn frá Venes­ú­ela, sem búa í JL-hús­inu við Hring­braut á vegum Reykja­vík­ur­borgar, tína allir dósir og flöskur víðs vegar um Reykja­vík og nágranna­sveit­ar­fé­lög til að ná sér í pen­inga. Á meðan þeir bíða eftir svari frá íslenskum yfir­völdum um hvort þeir fái vernd hér á landi eða ekki mega þeir ekki vinna. Sex­menn­ing­arnir hafa allir beðið eftir svari við því hvort þeir fái vernd hér á landi í fimm mán­uði til eins árs.

Óljóst er hvort þeir fá að setj­ast að hér á landi eftir að íslensk yfir­völd hættu að veita Venes­ú­ela­búum sjálf­krafa vernd á þeim grund­velli að ástandið í land­inu hafi batnað svo mikið. Nú mun Útlend­inga­stofnun taka mál hvers flótta­manns fyrir og meta umsókn við­kom­andi út frá sér­tækum for­sendum. Menn­irnir bíða eftir úrskurði kæru­nefndar útlend­inga­mála um hvort …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Arkangel JA skrifaði
    Esperemos que está situación mejore....y Venezuela está igual de mal solo viven mejor los del gobierno
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttafólk frá Venesúela

Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár