Flokkur

Erlent

Erlent

Stefan Persson ríkasti Norður­landabúinn - Á 28 prósent í HM

Samkvæmt nýjum lista Forbes, yfir ríkasta fólk heims, er Svíinn Stefan Persson ríkasti Norður­landabúinn með eignir upp á 21,8 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 2.800 milljörðum króna. Persson er númer 32 á listanum, en efstur er Bill Gates, stofnandi Microsoft, en eignir hans eru metnar á 75 milljarða Bandaríkja­dala. Persson, sem er 68 ára gamall, er stjórnar­formaður tísku­risans H&M...
Erlent

Norðmenn teygja sig í olíu­sjóðinn

Verð­lækkunin á olíu undan­farna sextán mánuði, sem nemur um 70 prósentum, hefur komið illa við norska hagkerfið og er megin­ástæða þess, að norsk stjórn­völd töldu rétt­læt­an­legt að nýta lítinn hluta af hinum stóra olíusjóði Noregs heima fyrir. Meira en 95 prósent af eignum norska olíu­sjóðsins, sem nema um 800 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur rúmlega 106 þúsund milljörðum króna, er...
Erlent

ESB vill að ríki opni landamæri á ný til að bjarga Schengen

Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins vill að ríki sambandsins aflétti vegabréfa­eftirliti á innri landa­mærum fyrir lok þessa árs, til þess að bjarga Schengen-samstarfinu, einu helsta afreki Evrópu­samvinnu. Þetta kemur fram í drögum að skýrslu frá framkvæmda­stjórninni, sem breska blaðið Guardian hefur séð og skrifar um í dag. Landamæra­eftirlit og ýmiss konar landamæri hafa birst innan Evrópu í tengslum við flóttamanna­vandann í álfunni. Frá...
Erlent

Clinton og Trump sigruðu á ofur-þriðju­deg­inum

Hillary Clinton og Donald Trump voru sigurveg­arar hins svokallaða ofur-þriðjudags í forvali stærstu stjórn­málaflokka Banda­ríkjanna, Demókrata­flokksins og Repúblikana­flokksins, í gærkvöldi og nótt. Ofur-þriðju­dag­urinn, er óformlegt nafn á þeim degi þar sem flest ríki í Banda­ríkjunum halda forvöl fyrir forseta­kosningarnar. Clinton sigraði í forvali demókrata í sjö af þeim ellefu ríkjum sem kosið var í í gær en keppinautur hennar um...
Erlent

Argentína semur við kröfuhafa

Stjórn­völd í Argentínu hafa náð samkomu­lagi við kröfuhafa ríkis­sjóðs landsins, einkum bandaríska vogunar­sjóði, vegna gjald­fallinna skulda ríkis­sjóðs Argentínu upp á samtals 4,65 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur 640 milljörðum króna. Þetta kemur fram á vef Wall Street Journal, en samkomu­lagið felst meðal annars í því að ríkis­sjóður Argentínu greiðir upp tiltekinn hluta af skuldum við kröfum, einkum sjóðs­stýringa­fyrirtækið Elliot Management,...
Erlent

Mynd um afhjúpun á kynferðis­brotum presta besta myndin á Óskarnum

Kvik­myndin Spotlight, sem leikstýrt var af Tom McCarthy, hlaut í nótt Óskars­verðlaun fyrir bestu kvikmynd síðasta árs. McCarthy og Josh Singer hlutu einnig verð­launin fyrir besta frumsamda handrit. Mad Max: Fury Road hlaut flest verðlaun allra mynda, eða sex talsins, á hátíðinni í nótt. Eini Íslend­ingurinn sem var tilnefndur til Óskar­verðslauna, Jóhann Jóhannsson, þurfti að eftirláta sjálfum Ennio Morricone verð­launin...

Mest lesið undanfarið ár