Lego slær met og skilar 173 milljarða hagnaði

Hagnaður leik­fanga­fram­leið­and­ans Lego jókst um rúm 30 pró­sent á milli ára. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins juk­ust um 25 pró­sent og námu 35 millj­örðum danskra króna.

Jorgen Vig Knudstorp, forstjóri Lego, hefur aukið hagnað fyrirtækisins um 30 prósent á milli ára.
Jorgen Vig Knud­storp, for­stjóri Lego, hefur aukið hagnað fyr­ir­tæk­is­ins um 30 pró­sent á milli ára. Mynd: EPA

Hagnaður danska leik­fang­aris­ans Lego nam rúmum 9 millj­örðum danskra króna, eða 173 millj­örðum króna, á síð­asta ári. Það er aukn­ing um rúma tvo millj­arða danskra króna á milli ára, eða rúm 30 pró­sent. Samkvæmt árs­reikn­ingi Lego námu tekjur fyr­ir­tæk­is­ins 35 millj­örðum danskra króna í fyrra, eða um 665 millj­örðum íslenskra króna. Það er aukn­ing um meira en 25 pró­sent milli ára.

Stærst í heimi

Lego var yfir­lýstur stærsti leik­fanga­fram­leið­andi í heimi síð­asta haust þegar fyr­ir­tækið skreið fram úr Mattel, sem fram­leiðir meðal ann­ars Barbie og Fisher Price. Tekj­urnar juk­ust og rekst­ur­inn styrkt­ist á sama tíma og ljóst er að stefna for­stjór­ans, Jorgen Vig Knud­storp, hefur virkað vel. Eins og kemur fram í frétta­skýr­ingu Kjarnans um málið frá því í fyrra, byggir Lego vöxt sinn að miklu leyti á sam­starfs­samn­ingum við vin­sæl vöru­merki eins og Simpsons og Ninjago, með fram­leiðslu á kvik­myndum, mynd­böndum, tölvu­leikjum og þáttum sem hafa styrkt vöru­merkið enn frekar í sessi.

Tenging Lego-kubbanna sívin­sælu við þekkt vöru­merki og fram­úr­stefnu­lega mark­aðs­setn­ingu, hefur reynst afar vel í Banda­ríkj­unu, sem er stærsta ein­staka mark­aðs­svæði fyr­ir­tæk­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár