Lego orðinn stærsti leikfangaframleiðandi í heimi

Danski leik­fanga­fram­leið­and­inn Lego, sem er mörgum Íslend­ingum að góðu kunnur í gegnum klass­íska lego-kubba sem víða er að finna á heim­ilum, hefur átt góðu gengi að fagna að und­an­förnu, og sýna nýj­ustu rekstr­ar­tölur fyr­ir­tæk­is­ins að það er nú orðið að stærsta leik­fanga­fram­leið­anda í heimi. Mattel, sem meðal ann­ars fram­leiðir vörur undir merkjum Barbie og Fisher-Price, hefur lengi verið stærsta fyr­ir­tækið, en nú hefur Lego tekið fram úr banda­ríska ris­anum, sé mið tekið af stöðu mála á fyrstu sex mán­uðum þessa árs.

Breska fag­tíma­ritið Financial Times (FT) greinir frá því í dag, að hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins á fyrstu sex mán­uðum árs­ins hafi verið 2,1 millj­arður Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 270 millj­örðum króna. Það er 23 pró­sent aukn­ing frá því á sama tíma­bili í fyrra.

https://www.youtube.com/watch?v=uY4RbICf0wM

Mögnuð saga endurfæðingar


Stjórn­ar­for­maður Lego er reynslu­bolt­inn Niels Jacobsen, for­stjóri danska fjár­fest­inga­fé­lags­ins William Demant Holding A/S, og hefur hann verið stjórn­ar­for­maður frá árinu 2008. Hann hefur komið víða við á sínum ferli og er meðal ann­ars stjórn­ar­for­maður íslenska fyr­ir­tæk­is­ins Össurar, sem nú er í meiri­hluta­eigu erlendra fyr­ir­tækja, einkum danskra.

Lego hefur danskar rætur sem rekja má aftur til 1932, eins og Kjarninn hefur fjallað um áður, en starf­semin hefur vaxið hratt á alþjóða­mörk­uðum, ekki síst á síð­ustu árum, og er að mörgu leyti mögnuð saga end­ur­fæð­ingar lego-kubbs­ins, og um leið saga klókinda og nútíma­legrar mark­aðs­setn­ingar. Þar hafa sam­fé­lags­miðlar, mynd­bönd og vel heppnað sam­starf með alþjóð­legum útgáfurisum í afþrey­ing­ar­iðn­aði, skipta miklu máli, á sa.

Tölurnar segja sína sögu


Á árinu 2008 voru heild­ar­tekjur Lego 9,5 millj­arðar danskra króna, eða sem nemur um 180 millj­örðum króna. Í fyrra, sex árum síðar, voru tekj­urnar tæp­lega þrefalt hærri, eða sem nemur 28,6 millj­örðum danskra króna, eða um 530 millj­örðum króna. Allt bendir til þess að vöxt­ur­inn á þessu ári verði meiri en oft áður, þar sem stór sam­starfs­samn­ingur Lego vegna nýj­ustu Star Wars mynd­ar­innar, sem frum­sýnd verður 18. des­em­ber, mun að lík­indum skila fyr­ir­tæk­inu miklum tekjum, sem vaxa síðan inn á næsta ár, sam­kvæmt umfjöllun FT. Lego hefur átt í far­sælu sam­starfi við Lucasfilm, fram­leið­enda Star Wars mynd­anna og eig­anda vöru­merk­is­ins, um gerð leik­fanga undir merkjum Lego-Star Wars, og var samn­ingur fyr­ir­tæk­is­ins við Lucasfilm fram­lengdur í 12. febr­úar 2012, eftir vel heppnað sam­starf til tólf ára.

Mikilvæg stefnumörkun um að vaxa með öðrum


Ekki nóg með að tekjur Lego hafi vaxið mikið, heldur hefur rekst­ur­inn styrkst mikið á sama tíma. Fyr­ir­tækið býr til mikla pen­inga og byggir vaxta­á­ætl­anir sínar meðal ann­ars á sam­starfs­samn­ingum við vin­sæl vöru­merki. Þá hafa mynd­bönd, þættir, tölvu­leikir og kvik­mynd í fullri lengd enn fremur styrkt vöru­merkið í sessi, og gert það enn stærra, ef svo má segja. Þessi stefna, að tengja lego-kubbana sígildu við vin­sæl vöru­merki og fram­úr­stefnu­lega mark­aðs­setn­ingu, hefur reynst afar mik­il­væg á stærsta ein­staka mark­aðs­svæð­inu, Banda­ríkj­unum. Í skýrslu fram­kvæmda­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins, í árs­skýrsl­unni fyrir síð­asta ár, kemur fram að gert sé ráð fyrir vexti á öllum mark­aðs­svæðum á þessu ári, og sé mið tekið af hálfs­árs­upp­gjör­inu, þá hefur það gengið eftir.

En ekk­ert ger­ist af sjálfu sér hjá þessum risa í skap­andi iðn­aði Norð­ur­land­anna. Um 60 pró­sent af tekjum fyr­ir­tæk­is­ins má rekja til nýrrar upp­færslu á vörum (new launches) og er mikið lagt upp úr því að fá til liðs við fyr­ir­tækið fram­úr­skar­andi hönn­uði. Hjá fyr­ir­tæk­inu eru rúm­lega 200 hönn­uðir frá 26 löndum sem sinna kjarna­vöru­þróun fyr­ir­tæk­is­ins en hún fer fram í höf­uð­stöðv­unum í Billund í Danmörku. Á heims­vísu eru starfs­menn­irnir rúm­lega 12.500 tals­ins, og fjölg­aði þeim um rúm­lega 800 milli áranna 2013 og 2014. Þetta ein­staka og gam­al­gróna fyr­ir­tæki, sem fagnar 83 ára afmæli á þessu ári, hefur lík­lega aldrei verið með stöðugri vind í seglum en um þessar mundir.

https://www.youtube.com/watch?v=rUrG63UQK00

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár