Svæði

Akureyri

Greinar

Lögreglan á Akureyri boðar blaðamenn í yfirheyrslu
Fréttir

Lög­reglan á Akureyri boðar blaða­menn í yfir­heyrslu

Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður frá Lög­regl­unni á Akureyri er á leið til Reykja­víkur til að yfir­heyra blaða­menn vegna umfjöll­unar þeirra um aðferðir svo­kall­aðrar „skæru­liða­deildar“ Samherja, sem rægði blaða­menn. Lög­reglan veitir blaða­manni Stund­ar­innar stöðu grun­aðs manns og telur umfjöll­un­ina hegn­ing­ar­laga­brot gegn frið­helgi einka­lífs­ins sem varðar allt að eins árs fang­elsi.
Töluðu sig saman um að taka yfir Dropbox Jóhannesar
FréttirSamherjaskjölin

Töluðu sig saman um að taka yfir Dropbox Jóhann­esar

„Það þarf að loka net­fang­inu hans og end­urstilla lyk­il­orðið á drop­box reikn­ingnum til að læsa hann úti af því,“ sagði Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Samherja á Kýpur, í skila­boðum til Örnu McClure, inn­an­hús­lög­fræð­ings útgerð­ar­innar, og Aðal­steins Helga­sonar lyk­il­starfs­manns. Jón Óttar Ólafsson rekur nákvæm­lega hvernig hann braust inn á Dropbox upp­ljóstr­ar­ans í Namib­íu­mál­inu í yfir­lýs­ingu sinni til dóm­stóla.
Áhrif Namibíumálsins á íbúa Akureyrar: „Fólki þykir almennt rosalega vænt um Samherja“
RannsóknHeimavígi Samherja

Áhrif Namib­íu­máls­ins á íbúa Akur­eyrar: „Fólki þykir almennt rosa­lega vænt um Samherja“

Hvaða áhrif hefur það á 20 þús­und manna sam­fé­lag á Íslandi þegar stærsta fyr­ir­tækið í bænum, útgerð sem veitir rúm­lega 500 manns vinnu og styrkir góð mál­efni um allt að 100 millj­ónir á ári, er mið­punktur í alþjóð­legri spill­ingar- og saka­mála­rann­sókn sem teygir sig víða um heim? Stundin spurði íbúa Akur­eyrar að þess­ari spurn­ingu og kann­aði við­horf íbúa í Eyja­firði og á Íslandi öllu til Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu. Rúmt ár er liðið frá því málið kom upp og nú liggja fyrir ákærur í Namibíu gegn meðal ann­ars Sam­herj­a­mönnum og emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóri eru með málið til með­ferðar á Íslandi.
Áhrif Samherjamálsins í Namibíu: 92 prósent Íslendinga telja Samherja hafa greitt mútur
FréttirSamherjaskjölin

Áhrif Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu: 92 pró­sent Íslend­inga telja Samherja hafa greitt mútur

Mark­tækur munur er á afstöðu fólks til útgerð­ar­fé­lags­ins Samherja eftir því hvort það býr í Eyja­firði eða ann­ars staðar á land­inu. Í Eyja­firði starfa rúm­lega 500 manns hjá Samherja sem er stærsti einka­rekni atvinnu­rek­and­inn í byggð­ar­lag­inu. Þetta kemur fram í úttekt Stund­ar­innar á stöðu Samherja á Akureyri og á Dalvík.
„Hann heilaþvoði mig algjörlega“
FréttirMeðhöndlari kærður

„Hann heila­þvoði mig algjör­lega“

Frænka Jóhann­esar Tryggva Svein­björns­sonar kærði hann árið 2018 fyrir ítrekuð kyn­ferðs­brot gegn sér, frá 15 ára aldri og þar til hún var orðin 19 ára. Í skýrslu­tökum lýsir hún því hvernig Jóhannes hafi brotið margoft á henni í félagi við fjölda ann­arra karl­manna og hvernig hann hafi átt frum­kvæði að þeim brotum. Þá ber hún að Jóhannes hafi einnig brotið á henni þegar hann veitti henni hnykk­með­ferð líkt og á annan tug kvenna kærði hann fyrir.

Mest lesið undanfarið ár