600 milljónir teknar af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða milli umræðna

Ákveðið var að taka 600 millj­ónir króna af Fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða milli umræðna á Alþingi í ljósi þess að mun lengri tíma tekur að ráð­stafa fé sjóðs­ins en ráð­gert hafði verið. Þegar fjár­laga­frum­varpið var lagt fram var gert ráð fyrir auka 510 millj­ónum króna í sjóð­inn til að efla hann. „Mik­il­vægt er að halda áfram upp­bygg­ingu ferða­manna­staða þar sem flest bendir til að fjöldi ferða­manna muni halda áfram að aukast líkt og liðin ár,“ var sagt um málið í fjár­laga­frum­varp­inu.

Líkt og Kjarninn hefur áður greint frá hafa miklir fjár­munir legið óhreyfðir í Fram­kvæmda­sjóði ferða­manna­staða. Í fjár­lögum síð­asta árs var ákveðið að auka fram­lögin um 517 millj­ónir króna þrátt fyrir að þá hefðu 1,2 millj­arður króna legið óhreyfður í sjóðnum um langt skeið. Iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neytið greindi frá því í sept­em­ber í fyrra að við und­ir­bún­ing fjár­laga fyrir næsta ár hefði komið í ljós að „um­tals­verðir fjár­mun­ir“ eða 1,2 millj­arðar króna, lægju enn óhreyfðir í sjóðn­um. Þessum fjár­munum hafði ekki enn verið ráð­stafað í þau verk­efni sem þeim hafði verið úthlutað til. Ýmsar ástæður væru fyrir því en ljóst væri að bæta þyrfti úr skipu­lagi og fram­kvæmd.

Fram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða fær lög­bundin fram­lög af gistin­átta­skatti, og vegna þess að meira inn­heimt­ist af skatt­inum á þessu ári en gert var ráð fyrir í fjár­lögum fyrir þetta ár er líka lagt til þess að sjóð­ur­inn fái 45 millj­ónir króna af fjár­auka­lögum þessa árs til að upp­fylla lög­bundið fram­lag af skatt­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár