139 tilkynningar borist vegna gruns um alvarlega aukaverkun bólusetninga

26 til­kynn­ingar um and­lát í kjöl­far bólu­setn­ingar gegn COVID-19 bár­ust Lyfja­stofnun á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Að svo komnu er að mati stofn­un­ar­innar ekk­ert sem bendir til orsaka­sam­hengis milli til­kynntra and­láta og bólu­setn­inga.

Um 85 prósent fullorðinna á Íslandi eru fullbólusettir.
Um 85 pró­sent full­orð­inna á Íslandi eru full­bólu­settir. Mynd: Skjáskot/RÚV

Til þessa hafa 139 til­kynn­ingar borist Lyfja­stofnun vegna gruns um alvar­lega auka­verkun vegna bólu­setn­ingar gegn COVID-19, þar af 26 um and­lát. Að svo komnu er að mati stofn­un­ar­innar ekk­ert sem bendir til orsaka­sam­hengis milli til­kynntra and­láta og bólu­setn­ing­anna.

Stofn­unin hefur hvatt alla, jafnt heil­brigð­is­starfs­fólk sem ein­stak­linga og aðstand­endur til að til­kynna grun um auka­verkun. Á vef hennar er bent á að mik­il­vægt sé að hafa hug­fast að fjöldi til­kynn­inga vegna gruns um auka­verkun segir ekki til um tíðni raun­veru­legra auka­verk­ana eftir bólu­setn­ingu eða öryggi bólu­efna.

[adspot]

Slíkar til­kynn­ingar eru not­aðar til að fylgj­ast með öryggi lyfja eftir að notkun þeirra hefst og er það gert m.a. með því að meta hvort líkur séu á því að orsaka­sam­band sé milli lyfja­notk­unar og þess til­viks sem til­kynnt er. Þannig er ekki víst að til­kynn­ing­arnar end­ur­spegli raun­veru­legar auka­verk­anir af bólu­efn­unum.

Alvarleg auka­verkun er auka­verkun eða óæski­leg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífs­hættu­legs ástands, sjúkra­hús­vistar eða leng­ingar á sjúkra­hús­vist, veldur fötlun eða fæð­ing­argalla hjá mönnum.

Í sam­an­tekt á vef Lyfja­stofn­unar eru til­kynn­ingar sem henni hafa borist flokk­aðar eftir hverju bólu­efni fyrir sig. Tekið er fram að þar sem bólu­efnin bár­ust hingað á mis­mun­andi tímum, og því gefin ólíkum hópum, sé ekki hægt að bera til­kynn­ingar um auka­verk­anir saman á milli bólu­efna.

[links]Fram kemur í sam­an­tekt­inni að 61 alvar­leg til­kynn­ing um bólu­efni Pfizer-BioNtech hafi borist. Þar af 21 vegna and­láts, fyrst og fremst hjá öldruðum ein­stak­lingum með stað­festa und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. 29 til­kynn­ingar um sjúkra­hús­vist eftir bólu­setn­ingu með efn­inu hafa borist, þar af átta um lífs­hættu­legt ástand.

Lang­flestir hafa fengið þetta bólu­efni hér á landi eða tæp­lega 134 þús­und manns. Þá er það einnig það algeng­asta sem aldr­aðir hafa fengið.

56 alvar­legar til­kynn­ingar um bólu­efni AstraZeneca hafa borist Lyfja­stofnun. Fjórar varða and­lát, þar af tvær and­lát eldri ein­stak­linga með stað­festa und­ir­liggj­andi sjúk­dóma. 44 til­kynn­ingar sneru að sjúkra­hús­vist, þar af fimmtán um lífs­hættu­legt ástand. Um 20 þús­und manns hafa fengið bólu­efni Moderna hér á landi.

Sjö alvar­legar til­kynn­ingar hafa borist stofn­un­inni í kjöl­far bólu­setn­ingar með bólu­efni Janssen. Ein varðar and­lát eldri ein­stak­lings og fimm sjúkra­hús­vist.

Tvær rannsóknir framkvæmdar

Flestar til­kynn­ingar um and­lát bár­ust Lyfja­stofnun í jan­úar eða átta tals­ins. Þá var verið að bólu­setja elsta og hrumasta hóp­inn. Sérstök rann­sókn var fram­kvæmd af emb­ætti land­læknis í kjöl­far fyrstu fimm alvar­legu til­kynn­ing­anna. Nið­ur­staðan var sú að í einu til­viki var ekki hægt að úti­loka tengsl með vissu þótt lík­legt þyki að and­látið hafi verið af völdum und­ir­liggj­andi ástands.

Í lok maí var ákveðið að fram­kvæma nýja rann­sókn á fimm til­kynn­ingum um and­lát og jafn­mörgum til­kynn­ingum um myndun blóð­tappa í kjöl­far bólu­setn­ingar gegn COVID-19. Nið­ur­staða þeirrar rann­sóknar var sú að í 4 af 5 til­kynn­ingum er varða dauðs­föll var ólík­legt að bólu­setn­ing hefði leitt til and­láts. Í einu til­viki var það talið ólík­legt en mögu­legt.

Lyfja­stofnun Evrópu (EMA) hefur skorið úr um að aukin tíðni goll­urs­húss­bólgu (e. pericardititis) og hjarta­vöðva­bólgu (e. myocarditis) sé eftir bólu­setn­ingu með mRNA bólu­efn­unum Comirnaty (Pfizer/BioNTech) og Spikevax (Moderna).

Þótt þessar auka­verk­anir virð­ist fátíðar (u.þ.b. 1 til­vik/100.000 skammta) þá hafa fáein til­vik komið upp hér á landi, sagði í til­kynn­ingu sótt­varna­læknis í vik­unni. Slík atvik virð­ist algeng­ust hjá ungum karl­mönnum og eftir seinni skammt en eru til hjá öllum kynjum, á öllum aldri og hafa komið upp eftir fyrri skammt.

Rúmlega 250 þús­und manns á Íslandi eru full­bólu­settir. Um 85 pró­sent allra full­orð­inna, sextán ára og eldri, eru full­bólu­settir og bólu­setn­ing er hafin hjá tæp­lega 5 pró­sentum til við­bótar eða um 15 þús­und manns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár