„Færri munu eiga þess kost að kaupa íbúð“

Hagdeild HMS segir aðgerðir Seðla­bank­ans lík­lega eiga eftir að hafa veru­leg áhrif á fast­eigna­mark­að­inn sem er „lík­ast til að taka stakka­skiptum um þessar mundir“. Ný vaxta­við­mið bank­ans tak­marki aðgengi að lánsfé sem mun draga úr eft­ir­spurn á mark­aði.

Í kjölfar nýs vaxtaviðmiðs við útreikning greiðslubyrðar lækkar hámarkslánsfjárhæð kaupenda, sérstaklega þeirra sem hafa hug á að taka verðtryggt lán.
Í kjöl­far nýs vaxta­við­miðs við útreikn­ing greiðslu­byrðar lækkar hámarks­láns­fjár­hæð kaup­enda, sér­stak­lega þeirra sem hafa hug á að taka verð­tryggt lán. Mynd: Pexels

Ný við­mið Seðla­bank­ans fyrir greiðslu­mat fast­eigna­lána hafa haft þau áhrif að heim­ili með 250 þús­und króna mán­að­ar­lega greiðslu­getu geta nú mest tekið 53 milljón króna verð­tryggt hús­næð­is­lán í stað rúm­lega 84 milljón króna láns. Heimili með þessa greiðslu­getu geta að hámarki tekið 45 milljón króna óverð­tryggt lán. Þessar tölu eru fengnar úr nýrri mán­að­ar­skýrslu hag­deildar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar. Að mati hag­deild­ar­innar eru nýju við­miðin lík­leg til þess að draga úr eft­ir­spurn eftir íbúð­ar­hús­næði auk þess sem við­miðin munu lík­lega tak­marka ásókn í verð­tryggð lán.

Hag­deildin segir fast­eigna­mark­að­inn lík­ast til vera að taka stakka­skiptum um þessar mundir. Þar spila aðgerðir Seðla­bank­ans stóra rullu en aðgangur heim­ila að láns­fjár­magni hefur minnkað veru­lega í kjöl­far þeirra og „færri munu eiga þess kost á að kaupa sér íbúð.“

Frá því í byrjun maí hefur Seðla­bank­inn ráð­ist í þrjár aðgerðir sem munu lík­leg­ast hafa tals­verð áhrif á fast­eigna­mark­að­inn að mati hag­deild­ar­innar. Stýri­vextir hafa á þessu tíma­bili verið hækk­aðir tvisvar, um eitt pró­sentu­stig snemma í maí og um annað pró­sentu­stig í seinni hluta júní. Um miðjan júní var hámark veð­setn­ing­ar­hlut­falls fyrstu kaup­endur lækkað úr 90 pró­sentum í 85 pró­sent en það hélst óbreytt í 80 pró­sentum fyrir aðra kaup­endur. Þar að auki var áður­nefnt við­mið um vexti við útreikn­ing greiðslu­byrðar fest í sessi.

Viðmið Seðlabankans mjög bindandi

Þessi nýju við­mið hafa mikil áhrif á greiðslu­mat lán­taka. Áætluð greiðslu­byrði lána er í kjöl­far þessa við­miðs fest við ákveðið vaxta­lág­mark. Fyrir verð­tryggð lán er lág­markið þrjú pró­sent vextir en fyrir óverð­tryggð lán er lág­markið 5,4 pró­sent. Þetta lág­mark hefur lítil áhrif greiðslu­mat fólks sem ætlar sér að taka óverð­tryggt lán enda eru vextir á slíkum lánum í lang­flestum til­vikum hærri en 5,4 pró­sent.

Viðmiðið hefur öllu meiri áhrif á verð­tryggð lán, líkt og greint er frá í mán­að­ar­skýrsl­unni. Í gegnum tíð­ina hefur fólk sem sæk­ist eftir lægri greiðslu­byrði í upp­hafi láns­tíma sótt í verð­tryggð lán. Viðmiðið er aftur á móti mjög bind­andi fyrir fólk sem sæk­ist eftir slíkum lánum. Í skýrsl­unni er tekið dæmi um 50 milljón króna verð­tryggt lán, en greiðslu­byrði á slíku láni getur verið allt frá 131 þús­und krónum á mán­uði. Til að stand­ast greiðslu­mat þarf fólk aftur á móti að hafa greiðslu­getu upp á rúm­lega 236 þús­und krónur. Það er ein­fald­lega vegna þess að vext­irnir sem not­aðir eru til við­mið­unar eru mun hærri en vext­irnir sem tíðkast á verð­tryggðum lánum með breyti­legum vöxtum.

Hámarkslánsfjárhæð lækkar skarpt

„Fólk sem stenst greiðslu­mat fyrir slíkt mat er einnig lík­legt til þess að stand­ast greiðslu­mat fyrir óverð­tryggð lán en lægstu óverð­tryggðu vextir á íbúða­lánum hjá bönk­unum eru 6,25% og því má miða við greiðslu­byrði uppá 277.800 kr. á mán­uði þegar tekið er óverð­tryggt,“ segir í skýrsl­unni um hús­næð­is­lánið upp á 50 millj­ónir sem tekið var sem dæmi. „Viðmiðin munu þó án efa tak­marka ásókn heim­il­anna í verð­tryggð lán þegar að óverð­tryggðir vextir hækka og þannig auka virkni pen­inga­stefn­unnar.“

Þetta við­mið hefur einnig þau áhrif að mögu­leg hámarks­láns­fjár­hæð fólks lækkar umtals­vert. Ef ekki væri fyrir við­miðið gætu heim­ili með 250 þús­und króna greiðslu­getu á mán­uði tekið mest rúm­lega 84 milljón króna verð­tryggt lán. Heimili með þessa greiðslu­getu geta nú mest fengið 53 milljón króna verð­tryggt lán eða 45 milljón króna óverð­tryggt. Þetta mun lík­lega draga almennt úr eft­ir­spurn eftir íbúð­ar­hús­næði að mati hag­deildar HMS.

Dregur úr eftirspurnarþrýstingi

Í skýrsl­unni segir að fram­boð íbúða hafi farið að aukast í febr­úar á þessu ári en auk­ist hratt frá þar síð­ustu stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans í maí. „Fram­boðið er bæði komið til vegna minnk­andi sölu og fjölgun íbúða sem bæt­ast á sölu. Mögulega er aukið fram­boð til marks um að farið sé að draga úr eft­ir­spurn­ar­þrýst­ingi,“ segir í skýrsl­unni.

Fjöldi íbúða á sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað tölu­vert á síð­ustu mán­uðum Þann 4. júlí voru 733 íbúðir á sölu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en til sam­an­burðar nam fjöld­inn 503 í upp­hafi maí. Fram­boðið hefur því auk­ist um 46 pró­sent á þessu tíma­bili og um 67 pró­sent frá því í byrjun febr­úar. Fram­boðið er þó enn lítið miðað við það sem gengur og ger­ist, líkt og það er orðað í skýrsl­unni.

Fram­boðið hefur einnig auk­ist í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, fjöldi íbúða á sölu fór úr 212 upp í 273 á tíma­bil­inu á því svæði. Framboð íbúða ann­ars staðar á land­inu dregst aftur á móti saman líkt og að und­an­förnu.

Leita jafnvægis á húsnæðismarkaði með rammasamningi

Í dag kynnti Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra mark­mið um aukið fram­boð af hús­næði á næstu árum. Á kynn­ing­ar­fundi sem hald­inn var vegna und­ir­rit­unar samn­ings­ins sagði Sigurður Ingi að byggja þyrfti um 35 þús­und íbúðir á land­inu á næstu tíu árum. Nú hafi ríki og sveit­ar­fé­lög í fyrsta sinn gert með sér sam­komu­lag um sam­eig­in­lega sýn á aðgerðir og umbætur á hús­næð­is­mark­aði til tíu ára.

Ramma­samn­ingur þess efnis var und­ir­rit­aður í dag og skrif­uðu meðal ann­ars Aldís Haf­steins­dóttir, for­maður íslenskra sveit­ar­fé­laga og Hermann Jónasson, for­stjóri HMS, undir samn­ing­inn sem byggir á nið­ur­stöðum starfs­fhóps um aðgerðir og umbætur á hús­næð­is­mark­aði sem kynntar voru í maí. „Til­gangur ramma­samn­ings­ins er að auka fram­boð nýrra íbúða til að mæta fyr­ir­sjá­an­legri íbúða­þörf ólíkra hópa sam­fé­lags­ins til skemmri og lengri tíma og stuðla að auknum stöð­ug­leika og jafn­vægi á hús­næð­is­mark­aði á næstu tíu árum,“ segir á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Í samn­ingnum eru sett fram fjögur meg­in­mark­mið. Það fyrsta er að upp­bygg­ing íbúða verði í sam­ræmi við íbúða­þörf á tíma­bil­inu, en í samn­ingum segir að byggja þurfi að lág­marki 4000 íbúðir á ári fyrstu fimm árin og 3500 íbúður á ári síð­ari fimm árin. Annað mark­mið ramma­samn­ings­ins er að tryggja fram­boð hag­kvæmra íbúða á við­ráð­an­legu verði en gert er ráð fyrir að hlut­fall þeirra verði að jafn­aði 30 pró­sent. Þá er gert ráð fyrir að staf­rænar hús­næð­is­á­ætl­anir verði lyk­il­stjórn­tæki ríkis og sveit­ar­fé­laga til að halda utan um mark­mið um upp­bygg­ingu íbúða á lands­vísu. Síðasta mark­miðið snýr að end­ur­skil­grein­ingu á lög­bundnum ferlum og verk­lagi í skipu­lags- og bygg­ing­ar­málum er varða upp­bygg­ingu á hús­næði en stefnt er að því að sam­þætta marga ferla í einn.

Með ramma­samn­ingum eru settar fram 24 aðgerðir í aðgerða­á­ætlun. Dæmi um aðgerðir eru:

  • Frumvarp lagt fram um breyt­ingar á skipu­lags­lögum á haust­þingi 2022, m.a. til að lög­festa heim­ild sveit­ar­fé­laga til að skil­yrða notkun lands til upp­bygg­ingar hag­kvæmra íbúða á við­ráð­an­legu verði óháð eign­ar­haldi lóðar.
  • Átak gert til að útrýma óvið­un­andi hús­næði, m.a. á atvinnu­svæðum og íbúð­ar­hús­næði þar sem kröfur um öryggi eru ekki upp­fylltar.
  • Ferlar við gerð deiliskipu­lags og veit­ingu bygg­ing­ar­leyfis verði sam­þættir.
  • Ferlar við gerð aðal­skipu­lags og hús­næð­is­á­ætl­ana verði sam­þættir.
  • Frumvarp samið um að tíma­binda upp­bygg­ing­ar­heim­ildir á grund­velli sam­þykkts deiliskipu­lags.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár