Alþingi skipar siðanefnd

For­sætis­nefnd Alþingis hefur skipað þrjá ein­stak­linga í ráð­gef­andi siða­nefnd, sem á að láta í ljós álit sitt á því hvort þing­menn brjóti gegn siða­reglum þing­manna.

For­sætis­nefnd Alþingis hefur ákveðið að skipa þriggja manna ráð­gef­andi siða­nefnd, sem á að taka til með­ferðar erindi um meint brot á siða­reglum fyrir alþing­is­menn.

Ásta Ragn­heiður Jóhann­es­dóttir, fyrr­ver­andi for­seti Alþingis, Haf­steinn Þór Hauksson, dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands, og Salvör Nordal, sér­fræð­ingur við Sið­fræði­stofnun Háskóla Íslands, munu skipa nefnd­ina næstu fimm árin. Ásta Ragn­heiður er for­maður nefnd­ar­innar.

Samkvæmt siða­reglum fyrir alþing­is­menn, sem voru sam­þykktar á síð­asta þingi, má for­sætis­nefnd skipa slíka nefnd til að fjalla um ein­stök mál og vera þing­mönnum til ráð­gjafar um fram­kvæmd siða­regln­anna. Nefnd­inni er ætlað að láta í ljós álit sitt á því hvort þing­maður hafi með hátt­erni sínu brotið gegn hátt­ern­is­skyldum sínum og meg­in­reglum um hátt­erni.

Það er Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, for­seti Alþingis, sem gerir til­lögu um for­mann nefnd­ar­innar. For­mað­ur­inn á að hafa þekk­ingu á störfum Alþingis og alþing­is­manna. Tveir aðrir nefnd­ar­menn eiga svo að vera til­nefndir af sam­starfs­nefnd háskóla­stigs­ins. Annar þeirra á að hafa emb­ættis- eða meist­ara­próf í lög­fræði og hinn meist­ara­próf í heim­speki eða hag­nýtri sið­fræði og þekk­ingu á siða­reglum.

Siða­regl­urnar fyrir alþing­is­menn voru sam­þykktar eftir þónokkuð langa með­ferð á þing­inu í mars síð­ast­liðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár