Fishrot-málið bar á góma hjá utanríkismálanefnd Bandaríkjaþings

Randy Berry, sem lík­lega verður brátt skip­aður sendi­herra Banda­ríkj­anna í Namibíu, ræddi um Fishrot-skandal­inn og spill­ing­ar­varnir í Namibíu er hann kom fyrir þing­nefnd öld­ung­ar­deildar Banda­ríkja­þings í lið­inni viku.

Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Namibíu og sakborningur í þeim anga Fishrot-málsins sem hefur verið til rannsóknar þar í landi.
Bernhard Esau, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namibíu og sak­born­ingur í þeim anga Fishrot-máls­ins sem hefur verið til rann­sóknar þar í landi. Mynd: Werner Menges/The Namibian

Öld­unga­deild­ar­þing­maður Demókra­ta­flokks­ins gerði Fishrot-málið svo­kall­aða, sem varðar meintar mútu­greiðslur íslenska sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Samherja til namibískra áhrifa­manna, að umtals­efni á opnum fundi utan­rík­is­mála­nefndar þings­ins síð­ast­lið­inn fimmtu­dag.

Þar sátu nokkur sendi­herra­efni, sem til­nefnd hafa verið í emb­ætti af Joe Biden Banda­ríkja­for­seta, fyrir svörum nefnd­ar­manna. Eins og Kjarninn sagði frá í gær var Carrin F. Patman, sem til­nefnd hefur verið í emb­ætti hér á Íslandi þar á meðal. En einnig diplómat­inn Randy Berry, sem hefur verið sendi­herra Banda­ríkj­anna í Nepal und­an­farin ár. Nú stendur til að hann fær­ist til Namibíu.

Þing­mað­ur­inn Dan Cardin vildi ræða um spill­ingu í Namibíu við Berry. Cardin byrj­aði á að halda því til haga að Namibía er nokkuð ofar­lega á spill­ing­ar­mæli­kvarða Transparency International, eða 58. sæti af um 180 ríkjum og í 6. sæti af ríkjum Afríku, en minnt­ist svo á að nýlega hefðu namibísk stjórn­völd tek­ist á við stóran spill­ing­arskandal, kall­aðan Fishrot, sem tengd­ist úthlutun kvóta.

[adspot]

Cardin vildi vita hvernig Berry myndi beita slag­krafti sendi­ráðs Banda­ríkj­anna í Namibíu gegn spill­ingu í Namibíu, ef hann yrði skip­aður sendi­herra, eins og allt útlit er fyrir.

Berry svar­aði því til að hann teldi engan vafa á að spill­ing, sér í lagi þegar kjörnir full­trúar og emb­ætt­is­menn stæðu ekki undir trausti fólks­ins, væru ein helsta ógnin við lýð­ræðið.

„…og ég held að Fishrot-skandall­inn hafi opin­berað nokkra af þeim veik­leikum sem ungt lýð­ræði Namibíu glímir við á þessu sviði,“ sagði Berry, en bætti svo við að hann vildi benda á nokkra upp­örvandi punkta sem hægt væri að sjá varð­andi málið.

Í fyrsta lagi hefði málið kom­ist upp vegna umfjall­ana frjálsra og óháðra fjöl­miðla. Í öðru lagi hefðu namibísk stjórn­völd vikið þeim stjórn­mála- og áhrifa­mönnum sem voru sak­aðir um spill­ingu í mál­inu og hefðu komið þeim fyrir dóm.

Berry sagði í svari sínu, og raunar í skrif­legum vitn­is­burði sínum líka, að hann myndi leggja áherslu á spill­ing­ar­varnir í störfum sínum, ef hann yrði skip­aður sendi­herra og að banda­rísk stjórn­völd myndu eiga í sam­starfi við namibísk stjórn­völd til þess að lág­marka tæki­færin til spill­ingar í land­inu.

Bandaríkin beittu ráðherrana tvo refsiaðgerðum

Á meðal sak­born­inga í Fishrot-mál­inu í Namibíu eru tveir fyrr­ver­andi ráð­herra í rík­is­stjórn lands­ins, þeir Bern­hard Esau og Sacky Shang­hala. Þeir hafa setið í gæslu­varð­haldi síðan í árs­lok 2019. Síðasta sumar greindu banda­rísk stjórn­völd frá því að þeir hefðu verið beittir refsi­að­gerðum, sem fel­ast í því að þeim hefur verið meinað að ferð­ast til Banda­ríkj­anna.

Í til­kynn­ingu á vef banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um miðjan júní í fyrra sagði að þeir Esau og Shang­hala hefðu grafið undan trú namibísku þjóð­ar­innar á lýð­ræð­is­legum stofn­unum með því að hafa notað póli­tísk áhrif sín og opin­berar valda­stöður til að hagn­ast per­sónu­lega með þátt­töku í mark­verðri spill­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár