Ótrúlegur uppgangur tækniframleiðanda frá Tævan

Mark­aðsvirði tævanska síma­hluta­fram­leið­ands TSM er nú orðið meira en tvö­falt meira en Goldman Sachs. Hvernig gerð­ist þetta eig­in­lega?

Maður er nefndur Morris Chang og er 86 ára gam­all fjár­festir og fyr­ir­tækja­eig­andi í Tævan. Hann er stofn­andi og stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins Taiwan Semconductor Manufacturing (TSM), en gengi þess hefur rokið upp að und­an­förnu, eða um 27 pró­sent á aðeins þremur mán­uðum, sam­kvæmt umfjöllun Bloomberg.

Milljarðamæringur á stuttum tíma

Hækkunin hefur gert, Chang að millj­arða­mær­ingi í Banda­ríkja­dölum talið. Ástæðan fyrir hækk­un­inni er sú að fyr­ir­tækið gegnir mik­il­vægu hlut­verki við fram­leiðslu á iPhone sím­anum frá Apple, sem kemur á markað innan tíðar. Fyr­ir­tækið fram­leiðir hluti í síma, eins og vinnslu­minniskubba, örgjöva og sím­kort, og hefur vaxið hratt sam­hliða gríð­ar­lega hröðum vexti snjall­síma­iðn­að­ar­ins í heim­inum.

Það eru ekki aðeins tæknirisarnir sjálfir, sem hafa gengið í gegnum mikið vaxt­ar­skeið, heldur ekki síður mörg önnur fyr­ir­tæki sem fram­leiða auka­hluti í síma.

TSM er eitt þeirra. Mark­aðsvirði þess er nú 183 millj­arðar Banda­ríkja­dala, sem gerir það að lang­sam­lega verð­mætasta auka­hluta­fram­leið­anda heims. Foxconn, sem hefur vaxið með snjall­síma­fram­leiðslu Apple og Samsung ekki síst, er nú 66 millj­arða Banda­ríkja­dala virði, eða sem nemur um þriðj­ungi af virði TSM.

Lítill hlutur gulls í gildi

Chang á sjálfur 0,5 pró­sent hlut í fyr­ir­tæk­inu, og nemur virði hans því um 900 millj­ónum Banda­ríkja­dala.

Til marks um hvað verð­mið­inn á TSM er orð­inn hár, þá nemur hann meira en tvö­földu virði Goldman Sachs bank­ans, en mark­aðsvirði hans er 89 millj­arðar Banda­ríkja­dala.

Margt bendir til þess að fram­leiðslu­fyr­ir­tækin að baki snjall­síma­iðn­að­inum, sem mörg hver eru stað­sett í Asíu, muni vaxa enn meira á næstu árum, og verða þannig bak­beinið í kom­andi tækni­bylt­ingu. Það eru ekki aðeins símar sem eru undir, heldur ekki einnig ný tæki og tól, sem munu leiða kom­andi tækni­breyt­ingar.

Stjórnvöld hjálpuðu til

Chang stofn­aði TSM árið 1986, með stuðn­ingi stjórn­valda í Tævan, og hefur fyr­ir­tækið vaxið jafnt og þétt síðan, á rúm­lega 30 ára starfs­tíma. Mesti vaxtas­kipp­ur­inn er þó sá sem hefur sést á und­an­förnum mán­uðum. Og útlit er fyrir að hann haldi áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár