CIA: Íslamska ríkið kann að hafa fleiri árásir undirbúnar

Yfir­maður banda­rískur leyni­þjón­ust­unnar reiknar með að Íslamska ríkið hafi und­ir­búið fleiri hryðju­verka­árásir.

John Brennan, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar CIA, ræðir við Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, í Hvíta húsinu.
John Brennan, yfir­maður banda­rísku leyni­þjón­ust­unnar CIA, ræðir við Barack Obama, for­seta Banda­ríkj­anna, í Hvíta hús­inu. Mynd: Hvíta húsið

John Brennan, yfir­maður banda­rísku leyni­þjón­ust­unnar CIA, telur hryðju­verka­árás­irnar í París á föstu­dag­inn ekki vera ein­stæður atburður og segir hugs­an­legt að Íslamska ríkið hafi einnig und­ir­búið sams­konar árásir ann­ar­staðar. Leyni­þjón­ustur í Evrópu eigi erfitt með að fylgj­ast með hugs­an­legum hryðju­verka­mönnum vegna þess að fylgj­ast þarf með svo mörgum

Reuters greindi frá þessu í gær og hafði eftir Brennan að það væri fólk af evr­ópskum upp­runa sem þyrfti að fylgj­ast með. „Vinir okkar í Evrópu eiga við stór verk­efni að etja þessa stund­ina því svo margir Evr­ópu­búar hafa ferð­ast til Sýrlands og Írak og til baka. Það reynir á getau þeirra til að fylgj­ast með þessu fólki.“

[adspot]

Jafnvel þó Íslamska ríkið hafi þegar lýst ábyrgð á hryðju­verka­árás­unum í París vill Brennan ekki full­yrða að upp­lýs­ingar leyni­þjón­ust­unnar bendi þess. Hryðju­verkin í París og í árásinni á far­þega­þot­una, sem fórst með 224 um borð í Egypta­landi 31. okt­o­ber, beri hins vegar hand­bragð íslamskra öfga­manna.

Í gær hót­aði Íslamska ríkið árás á Washington, höf­uð­borg Banda­ríkj­anna. Brennan segir það líta út fyrir að öfga­menn­irnir hafi und­ir­búið fleiri hópa sem geta framið hryðju­verk á Vest­ur­löndum. „Ég mundi gera ráð fyrir að þetta sé ekki eina árásin sem Íslamska ríkið hefur í hyggju. Leyni­þjón­ustur í Evrópu og víðar vinna hörðum höndum að því að kom­ast til botns í þessu.“

Talið er að allt að fimm þús­und Evr­ópu­búar hafi farið til Sýrlands til að berj­ast síðan árið 2011. Um 1.400 þeirra hafa franskt rík­is­fang en aðeins 900 hafa snúið aftur heim til Frakk­lands. Frönsk yfir­völd hafa merkt á bil­inu tíu til 20 þús­und manns sem hugs­an­lega öryggisógn.

„Við erum komin að því að leyni­þjón­ust­urnar anna ekki meiru. Þær gera ráð fyrir að eitt­hvað ger­ist en vita ekki hvenær eða hvar,“ er haft eftir Nathalie Goulet, yfir­manni rann­sókn­ar­nefndar franska þings­ins um hryðju­verka­sam­tök, á vef Reuters.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár