Segja Ísland geta orðið miðstöð flugs á norðurslóðum

Í skýrslu starfs­hóps um efna­hag­s­tæki­færi á norð­ur­slóðum er sagt mik­il­vægt að flugi frá Íslandi til Rúss­lands og Kína verði komið á, enda hafi kín­verskir ferða­menn mik­inn áhuga á ferðum til norð­ur­slóða. Þá séu tæki­færi fólgin í betri teng­ingu við Grænland.

Frá Keflavíkurflugvelli.
Frá Kefla­vík­ur­flug­velli. Mynd: ISAVIA

Ísland er í góðri aðstöðu til að verða mið­stöð fyrir flug á norð­ur­slóðum að mati starfs­hóps um efna­hag­s­tæki­færi á norð­ur­slóðum. Í nýrri skýrslu starfs­hóps­ins sem ber heitið Norð­ur­ljós og kom út í gær er lagt til að stjórn­völd stuðli að því að Ísland verði sam­göngu- og þjón­ustu­mið­stöð fyrir norð­ur­slóðir. Þar er sagt að landið sé vel stað­sett til þess, hér séu góðir inn­viðir, hafnir séu íslausar allt árið, hér séu góðar flug- og skipa­sam­göngur auk þess sem sam­göngu­kerfið inn­an­lands sé gott.

Vegna stað­setn­ingar lands­ins er það vel í stakk búið til að verða að mið­stöð flug­sam­gangna að mati skýrslu­höf­unda. „Ísland hefur þegar sannað að stað­setn­ing þess hentar vel til að vera mið­stöð í flug­sam­göngum milli Evrópu og Norður-Ameríku. Leiða­kerfi Icelandair, þar sem áfanga­staðir á meg­in­landi Evrópu og áfanga­staðir í N-Ameríku eru tengdir með við­komu á Íslandi, hefur gefið góða raun við að tryggja góðar flug­sam­göngur til og frá Íslandi.“

Lögð er áhersla á það í skýrsl­unni að flug­sam­göngur frá Íslandi til ann­arra áfanga­staða á norð­ur­slóðum og nær­svæðum verði styrkt. Sér­stak­lega er vikið að flugi til Rúss­lands og Kína og það talið mik­il­vægt að koma á flugi til land­anna eftir kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn, enda hafi kín­verskir ferða­menn mik­inn áhuga á að heim­sækja norð­ur­slóðir. Þá muni flug yfir norð­ur­pól­inn sem er fram­tíð­ar­mögu­leiki stytta flug­leið­ina til Norður-Asíu, sem og til vest­ur­strandar Banda­ríkj­anna.

Vilja uppbyggingu á flugvöllum og fleiri þyrlupalla

Í skýrsl­unni er það sagt mik­il­vægt að áfram verði unnið að upp­bygg­ingu og stækkun Kefla­vík­ur­flug­vallar og að inn­viðir á nær­svæði flug­vall­ar­ins verði styrktir og efldir. Að mati skýrslu­höf­unda geti „öfl­ugur flug­völlur með góðar teng­ingar við hafnir og meg­in­æðar vega­kerf­is­ins“ styrkt inn­lenda atvinnu­starf­semi og laðað hingað erlenda fjár­fest­ingu og starf­semi. Í því sam­bandi minn­ast skýrslu­höf­undar á sam­starfs­verk­efni ISAVIA og Kadeco, Þró­un­ar­fé­lags Kefla­vík­ur­flug­vallar um hina svoköll­uðu flug­borg en hönn­un­ar­sam­keppni um þró­un­ar­svæðið umhverfis Kefla­vík­ur­flug­völl hófst nýverið.

Þá er það einnig sagt brýnt að flug­völl­ur­inn á Akureyri sé efldur þar sem þar fari fram mik­il­væg starf­semi sem teng­ist norð­ur­slóða­starfi auk þess sem flug­völl­ur­inn sé veiga­mik­ill vara­flug­völlur fyrir Kefla­vík­ur­flug­völl, sem og fyrir sjúkra­flug og þjón­ustu við græn­land. Skýrslu­höf­undar segja það einnig fyr­ir­sjá­an­legt að aukin þörf verði fyrir þyrlu­palla víða um landið.

Þriðjungur flugfarþega til Grænlands flaug í gegnum Ísland fyrir COVID

Augunum er einnig beint að betri teng­ingu Íslands við Grænland í skýrsl­unni. Samkvæmt upp­lýs­ingum úr skýrslu Græn­lands­nefnd­ar­innar sem kom út í jan­úar á þessu ári fór um það bil þriðj­ungur allra flug­far­þega til Græn­lands í gegnum Ísland áður en heims­far­aldur COVID-19 skall á. Nú standi yfir upp­bygg­ing nýrra flug­valla í Nuuk, Iluissat og Qaqortoq og til­koma þess­ara flug­valla mun, að mati skýrslu­höf­unda, skapa mikil tæki­færi fyrir Græn­lend­inga til að tengj­ast betur áfanga­stöðum í Evrópu og Norður-Ameríku.

Í skýrsl­unni segir að hag­kvæmara sé að skipu­leggja flutn­inga til og frá Græn­landi gegnum Ísland en Danmörku, vegna nálægðar land­anna tveggja. Nú fari um tíu pró­sent af flug­frakt til Græn­lands í gegnum Ísland og um 90 pró­sent í gegnum Danmörku. „Augljós tæki­færi eru til að gera mun betur hvað þetta varðar og efla sam­göngur milli land­anna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár