Lífeyrissjóðir hafa lánað tvöfalt meira en allt árið 2015...á fjórum mánuðum

Líf­eyr­is­sjóðir verða sífellt umfangs­meiri á íbúða­lána­mark­aði. Á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins lán­uðu þeir rúma 40 millj­arða króna. Allt árið 2015 námu sjóðs­fé­laga­lán þeirra 21,6 millj­arði króna.

Umfang líf­eyr­is­sjóða á íbúða­lána­mark­aði heldur áfram að aukast hratt. Í fyrra lán­uðu þeir rúm­lega fjór­falt hærri upp­hæð en árið 2015 og á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins 2017 hafa þeir lánað nán­ast helm­ing þeirrar upp­hæðar sem þeir lán­uðu til íbúð­ar­kaupa allt árið í fyrra. Haldi sama þróun áfram má ætla að íbúða­lán líf­eyr­is­sjóða verði sex sinnum hærri upp­hæð árið 2017 en þau voru allt árið 2015.

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa þegar lánað sjóðs­fé­lögum sínum 40,5 millj­arða króna á fjórum fyrstu mán­uðum árs­ins 2017. Til sam­an­burðar lán­uðu sjóð­irnir í heild 21,6 millj­arða króna allt árið 2015. Í fyrra tóku sjóðs­fé­laga­lánin risa­stóran kipp. Alls námu þau 89 millj­örðum króna.

Umrædd lán eru nær ein­vörð­ungu lán til íbúð­ar­kaupa. Hlut­deild líf­eyr­is­sjóða á þeim mark­aði hefur auk­ist veru­lega eftir að nokkrir stórir sjóðir hófu að bjóða allt að 75 pró­sent íbúða­lán, betri vaxta­kjör en bank­arnir, óverð­tryggð lán og lægri lán­töku­gjöld á síð­ari hluta árs­ins 2015.

Met sett í mars

Nýtt met var sett í útlánum í mars síð­ast­liðnum, þegar líf­eyr­is­sjóð­irnir lán­uðu sjóðs­fé­lögum sínum alls 13,6 millj­arða króna. Það þýðir að útlán í mars 2017 voru um 63 pró­sent af heild­ar­út­lánum sjóð­anna til sjóðs­fé­laga á árinu 2015.

Fjöldi lána hefur líka rokið upp. Árið 2015 veittu líf­eyr­is­sjóð­irnir 1.913 lán og með­al­út­lán var 11,3 millj­ónir króna. Í fyrra voru veitt lán 5.628 tals­ins og með­al­út­lán fór í 15,8 millj­ónir króna. Á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins 2017 hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir veitt 2.173 lán og með­al­upp­hæð hvers láns er 18,6 pró­sent.

Húsnæðisverð hækkað um 87 prósent

Á Íslandi er að eiga sér stað gríð­ar­lega hröð hækkun á hús­næð­is­verði. Frá byrjun árs 2010, þegar verðið náði sínum lægsta botni eftir hrun, hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að mynda hækkað um 87 pró­sent. Verðið hefur hækkað um 25 pró­sent frá byrjun árs 2016 og um heil 9,4 pró­sent frá síð­ustu ára­mótum og til loka apr­íl­mán­aðar 2017.

Þessar miklu hækk­anir hafa leitt til þess að eigið fé lands­manna hefur auk­ist mikið. Í lok árs 2015 var það 2.813 millj­arðar króna. Ári áður var það 2.443 millj­arðar króna. Það jókst því um 370 millj­arða króna á árinu 2015. Helsta ástæða þess að eigið fé flestra Íslend­inga hefur auk­ist hratt á síð­ustu árum er gríð­ar­leg hækkun á hús­næð­is­verði. Sú hækkun hefur haft áhrif á alla hópa sam­fé­lags­ins, en þó hlut­falls­lega mest áhrif á þá sem höfðu eign­ast fast­eignir en áttu lítið eða ekk­ert í þeim. Þorri eigna venju­legra íslenskra launa­manna eru enda bundnar í fast­eignum, þegar eign þeirra í líf­eyr­is­sjóðum er und­an­skilin.

Margþættar ástæður skapa neyðarástand

Ástæður þessa eru marg­þættar. Lítil fjár­fest­ing í íbúð­ar­hús­næði á sama tíma og eft­ir­spurn eftir slíku hefur stór­auk­ist – bæði vegna inn­lendrar eft­ir­spurnar og stór­auk­ins ferða­manna­straums – spilar þar stóra rullu. Ruðn­ings­á­hrif vegna Leið­rétt­ing­ar­innar, nið­ur­greiðsla rík­is­stjórnar Íslands á völdum verð­tryggðum lánum, hefur einnig haft áhrif. Og svo hefur lág verð­bólga í næstum þrjú ár og kaup­mátt­ar­aukn­ing und­an­far­innar ára skipt sköpum.

Allt þetta, ásamt því að leiga hefur hækkað um 74 pró­sent frá byrjun árs 2011, hefur skapað miklar aðgangs­hindr­anir inn á hús­næð­is­markað. Stórir hópar eru ein­fald­lega ekki í stöðu til að koma þaki yfir höf­uðið. Vegna þessa var skip­aður aðgerð­ar­hópur rík­is­stjórn­ar­innar í hús­næð­is­málum sem kynnti aðgerðir sínar í byrjun júní. Markmið aðgerð­anna er að ná jafn­vægi á hús­næð­is­mark­aði á næstu þremur árum en þörf er á um níu þús­und nýjum íbúðum til að það mark­mið náist.

Innreiðin hófst af alvöru á ný 2015

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa lengi lánað sjóð­fé­lögum sínum til íbúð­ar­kaupa. Þau lán hafa þó verið þannig að mun lægra láns­hlut­fall hefur verið í boði sem gerði það að verkum að fólk sem átti lítið eigið fé gat illa nýtt sér þau lán. Það breytt­ist allt haustið 2015 þegar sjóð­irnir hækk­uðu láns­hlut­fall sitt og bjóða upp á enn hag­stæð­ari kjör.

Þorsteinn Víglundsson, ráðherra húsnæðismála, hafði forgöngu að því að aðgerðarhópurinn var skipaður. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Þor­steinn Víglunds­son, ráð­herra hús­næð­is­mála, hafði for­göngu að því að aðgerð­ar­hóp­ur­inn var skip­aður. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Það var erfitt fyrir íslensku við­skipta­bank­anna, sem höfðu nær ein­okað íslenska íbúða­lána­mark­að­inn eftir hrun, að bregð­ast við þessu. Þeir töldu sig ekki geta lækkað kjör á hús­næð­is­lánum sínum meira en þeir höfðu þegar gert og báru fyrir sig tvenns konar ástæður sem skertu sam­keppn­is­stöðu þeirra gagn­vart öðrum lán­veit­endum á mark­aðn­um. Í fyrsta lagi eru þeir skyldugir sam­kvæmt lögum til að eiga mun meira eigið fé en líf­eyr­is­sjóð­ir. Líf­eyr­is­sjóð­irnir þurfa ekki að sitja á svona miklu eigin fé. Raunar eiga þeir ekk­ert eigið fé.

Í öðru lagi þurfa stóru við­skipta­bank­arnir að greiða banka­skatt og sér­stakan fjár­sýslukatt. Þeir skattar hafa ekki verið afnumdir þótt að íslensku bank­arnir séu nær allir komnir í eigu íslenska rík­is­ins og búið sé að semja við kröfu­hafa föllnu bank­anna um slit þrota­búa þeirra. Í fjár­lögum er til að mynda gert ráð fyrir að tekjur rík­is­sjóðs á árinu 2017 af banka­skatti, sem er 0,376 pró­sent af skuldum banka, verði 9,2 millj­arðar króna. Bank­arnir hafa haldið því fram að þessi skattur sé ekk­ert annað en álag ofan á útlán, sem almenn­ingur þurfi á end­anum að borga.

Þess vegna er staðan enn þannig í dag að þeir vextir á íbúða­lánum sem bank­arnir bjóða eru í lang­flestum til­vikum ekki jafn góðir og þeir sem líf­eyr­is­sjóðir geta boðið.

Þetta ástand hafa líf­eyr­is­sjóð­irnir nýtt sér út í ystu æsar. Og skóflað til sín við­skiptum.

Lægstu vextirnir nálgast þrjú prósent

Kjarninn greindi frá því í gær að kjörin sem sjóð­irnir bjóða eru sífellt að batna. Vextir á breyti­legum íbúða­lánum hjá Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna eru nú 3,06 pró­sent. Vext­irnir á lán­unum sem sjóð­ur­inn býður upp á taka breyt­ingum 15. hvers mán­aðar og ákvarð­ast þannig að þeir eru 0,75 pró­sent hærri en með­al­á­vöxtun síð­asta mán­aðar á ákveðnum flokki íbúða­bréfa, sem skráður er í kaup­höll Nasdaq OMX. Lækkun meg­in­vaxta Seðla­banka Íslands skilar sér því nær alltaf beint í lækkun breyti­legra vaxta í sjóð­fé­lags­lánum hans, en slíkir vextir voru lækk­aðir um 0,25 pró­sent í gær. Þeir vextir sem Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna er að bjóða sínum sjóðs­fé­lögum eru lægstu vexti sem hægt er að fá á verð­tryggðum íbúða­lánum á Íslandi í dag.

Ýmsir aðrir líf­eyr­is­sjóðir bjóða líka upp á mjög sam­keppn­is­hæfa vexti. Þannig eru breyti­legir vextir lána hjá Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins (LSR) t.d. nú 3,26 pró­sent og hjá Gildi eru þeir 3,35 pró­sent. Vert er að taka fram að sjóð­irnir bjóða upp á mis­mun­andi veð­hlut­fall. LSR býður upp á allt að 75 pró­sent veð­hlut­fall en Gildi upp að 65 pró­sent. Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna bauð upp á 75 pró­sent veð­hlut­fall þar til í síð­asta mán­uði þegar það var lækkað niður í 70 pró­sent, vegna mik­illa hækk­ana á hús­næð­is­mark­aði. Samhliða til­kynnti sjóð­ur­inn að hann miði ekki lengur við mats­verð fast­eigna við útreikn­inga útlána heldur ein­ungis við mark­aðs­verð sam­kvæmt kaup­samn­ingi eða fast­eigna­mat. Það gerir það að verkum að erf­ið­ara verður fyrir ýmsa, sér­stak­lega þá sem eru að kaupa fyrstu fast­eign, að taka lán hjá sjóðnum.

Íslensku við­skipta­bank­arnir geta ekki boðið upp á sam­bæri­leg kjör og líf­eyr­is­sjóð­irnir. Á „stóru“ lánum þeirra, sem veitt eru á skap­legri vöxtum upp að 70 pró­sent veð­hlut­falli, eru lægstu breyti­legu vextir 3,65 pró­sent hjá Lands­bank­anum og Arion banka. Íslands­banki býður ekki upp á breyti­lega vexti en þar er hægt að fá fasta verð­tryggða vexti til fimm ára á 3,95 pró­sent kjörum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár