Ætla að byggja tvö þúsund íbúðir á ríkislóðum

Aðgerð­ar­hópur rík­is­stjórn­ar­innar í hús­næð­is­málum telur að jafn­vægi á hús­næð­is­mark­aði verði náð á næstu þremur árum. Þörf sé á 9.000 nýjum íbúðum

Þorsteinn Víglundsson, ráðherra félags- og húsnæðismála
Þor­steinn Víglunds­son, ráð­herra félags- og hús­næð­is­mála Mynd: Birgir Þór Harðarson

Aðgerð­ar­hópur rík­is­stjórn­ar­innar metur svo að með sér­tækum aðgerðum muni jafn­vægi nást á hús­næð­is­mark­aði á árunum 2019 til 2020. Markmið aðgerð­ar­hóps­ins er að byggja um 2.000 íbúðir á næstu árum á rík­is­lóðum. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi hóps­ins sem hald­inn var í hús­næði Íbúð­ar­lána­sjóðs fyrr í dag.

Metið var svo að þörf væri á allt að 9.000 nýjum íbúðum á næstu þremur árum. Vill aðgerð­ar­hóp­ur­inn bregð­ast við þessarri þörf með fram­boðs­hvetj­andi áhrifum, en þó telur hann mik­il­vægt að fara ekki of geyst af stað í upp­bygg­ingu, en meta þurfi jafn­óðum þörf­ina fyrir hús­næði.

Stefnt er að því að ein­falda reglu­verk og fram­kvæmd skipu­lags­mála. Reynt verði að kom­ast til móts við eig­endur stórra húsa þannig að þeir geti án veru­legrar skriffin­sku eða kostn­aðar breytt notkun húsa sinna og leigt frá sér íbúðir. Líka verði unnar til­lögur um breyt­ingar á lögum um mann­virki og til­teknar breyt­ingar á bygg­ing­ar­reglu­gerð.

Einnig voru mögu­leikar viðraðir um hvernig lang­tíma­leiga á hús­næði yrði gerð fýsi­legri. Nefndar voru hug­myndir um skatta­lega hvata þess efnis, tómt­húsa­gjald og bann við skamm­tíma­leigu á ákveðnum svæðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Fræðsla til leigu­sala og leigj­enda var líka nefnd, en gert er ráð fyrir því að aukin þekk­ing beggja aðila á skyldum þeirra muni leiða til þess að fleiri íbúðir skili sér í lang­tíma­leigu.

Aðgerð­ar­hóp­ur­inn lagði áherslu á að hús­næð­is­á­ætl­anir sveit­ar­fé­laga verði sam­ræmdar, en helstu nið­ur­stöður úr gerð áætl­ana sveit­ar­fé­laga verða kynntar á Hús­næð­is­þingi í októ­ber. Þar að auki verður rík­is­lóðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu komið í aukið not, en mark­mið aðgerð­ar­hóps­ins er að byggja um 2.000 íbúðir á þeim á næstu árum. Til skemmri tíma verður litið til Land­helg­is­gæslu­reits og til lengri tíma Veð­ur­stofu­reits, sjó­manna­skólareits, en einkum Keldna.

Að lokum var vilja­yf­ir­lýs­ing ríkis og sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um að koma rík­is­lóðum í aukið not und­ir­rituð af Bene­dikti Jóhann­essyni og Degi B. Egg­erts­syni. Dagur hrós­aði sér­stak­lega rík­is­stjórn­inni fyrir að „ganga í málið og klára þetta”. Við því svar­aði Benedikt: „Engar nefndir, bara efndir”.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár