Ljáðu mér vængi

Safnað fyrir útgáfu bókar um lífs­hlaup Páls Pampichlers Páls­sonar í máli og myndum.

Páll Pampichler Pálsson kom til eins árs dvalar frá Aust­ur­ríki en ílengd­ist á Íslandi í 48 ár. Nýlega kom út bók um lífs­hlaup Páls á þýsku og nú hefur bókin verið þýdd yfir á íslensku og efni hennar aukið til muna. Til dæmis birt­ast í henni fyrsta sinn skrá yfir um 140 tón­verk Páls. Það eru þau Rut Ing­ólfs­dóttir, Helga Hauks­dóttir og Sigurður Ingvi Snorra­son sem hafa veg og vanda af útgáfu bók­ar­innar en þau eru vinir og sam­starfs­menn Páls til fjölda ára.

Hvað kom til að þið réð­ust í þetta verk­efni?

„Okkur fannst að Páll ætti þetta inni hjá okkur.

Páll er ekki ein­ungis góður vinur okkar heldur átti hann sem stjórn­andi og tón­skáld ríkan þátt í ótrú­legri upp­bygg­ingu tón­list­ar­lífs á Íslandi. Hann var um ára­tuga skeið stjórn­andi Sin­fón­íu­hljóm­sveitar Íslands, Karla­kórs Reykja­víkur, Lúðra­sveitar Reykja­víkur, Kamm­er­sveitar Reykja­víkur og Skóla­hljóm­sveitar Vest­ur­bæjar.

[adspot]Páll samdi fjölda verka fyrir hópana sína og aðra tón­list­ar­menn - hljóm­sveit­ar­verk, ein­leiks­konserta, kór­verk, verk fyrir blás­ara­sveit og kamm­er­tón­list. Þá var hann þekktur fyrir létt­leika og gleði sem bæði tón­leika­gestir og áhorf­endur sjón­varps nutu.

Í bók­inni segir frá upp­vexti Páls, fyrstu árunum á Íslandi og heilla­drjúgu starfi hans í þágu tón­list­ar­innar. Þá höfum við og fleiri íslenskir tón­lista­menn ritað kafla um kynni okkar af Páli og bætt í bók­ina skemmti­legum ljós­myndum frá ferli Páls.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár