Varnarleysi Íslendinga gagnvart netsvindli vekur athygli

Netsvindl hefur færst í auk­ana hér á landi í kjöl­far afnáms fjár­magns­hafta og betri íslenskra þýð­inga á raf­rænum þýð­ing­ar­vélum á síð­ustu árum sam­kvæmt grein AP frétta­stof­unnar. Íslend­ingar eru hvattir til að vera var­kár­ari á net­inu.

Aflétt­ing fjár­magns­hafta hér á landi sam­hliða mun öfl­ugri íslenskum þýð­ingum á raf­rænum þýð­ing­ar­vélum hefur laðað fleiri netsvindl­ara til lands­ins. Auk þess hefur íslenska þjóðin ekki þróað með sér sömu var­hygð gagn­vart net­glæpum og önnur vest­ræn ríki. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í grein AP frétta­stof­unnar sem birt er á vef New York Times. 

Netglæpir færst mjög hratt í vöxt

[links]Í grein­inni er fjallað um þá miklu aukn­ingu sem hefur orðið í net­glæpum hér á landi á síð­ustu árum. Hvernig allt frá stórum fyr­ir­tækjum niður í félaga­sam­tök hafi orðið fyrir barð­inu á svoköll­uðum „for­stjóra­svikum“. Það er þegar tölvu­þrjótar hafa kynnt sér vel skipu­rit fyr­ir­tækja og þykj­ast vera hátt­settur stjórn­andi innan fyr­ir­tæk­is­ins eða þekktur við­skipta­vinur og sæk­ist eftir skjótum milli­færslum í gegnum tölvu­póst.

Meðal ann­ars er greint frá því þegar tölvu­þrjótum tókst að svíkja rúm­lega 400 millj­ónir króna af HS Orku í fyrra og þegar starfs­maður Aft­ur­eld­ingar var gabb­aður til að milli­færa nokkur hund­rað þús­und krónur vegna tölvu­pósts sem virt­ist koma frá for­manni deild­ar­innar.

Haft er eftir Lands­bank­anum í grein­inni að það sem af er ári hafi sexfalt fleiri netsvindl verið til­kynnt en í fyrra.

Erlendir svindlarar að bíða eftir þessum degi

Þessi aukn­ing í netsvikum hér á landi er meðal ann­ars rekin til raf­rænna þýð­ing­ar­véla. Í grein­inni segir að slíkar vélar séu orðnar mun betri í að þýða hið flókna tungu­mál Íslend­inga. Talið er að íslenskar þýð­ingar í slíkum vélum hafi í raun ekki orðið nógu góðar fyrr en árið 2018. Svika­póst­arnir séu enn þeir sömu en að íslenskan í þeim sé orðin mun betri og það plati marga Íslend­inga.

Samtímis þessum fram­förum í íslenskri þýð­ingu þá voru íslensk stjórn­völd að aflétta fjár­magns­höftum og því mögu­legt að milli­færa hærri upp­hæðir úr landi. Haft er eftir íslensku lög­regl­unni í grein­inni að það hefði verið líkt og erlendir svika­hrappar væru að bíða eftir þessum degi.

Mikið félagslegt traust á Íslandi

Morten Tandle, fram­kvæmda­stjóri Nordic Financial Cert sem er sam­starfs­vett­vangur nor­ræna fjár­mála­fyr­ir­tækj þar sem barist er gegn net­glæpum, segir í sam­tali við AP að lær­dóm­skúrfan í þessum málum hafi verið brött fyrir Íslend­inga.

Tandle segir að flest fólk læri að vera var­kárt á net­inu vegna þess að ein­hver sem þau þekki hafi orðið fyrir netárás eða lent í svindli á net­inu. Hann segir að tölu­verð ein­angrun Íslands frá slíkum árásum hafi gert þessa skyndi­legum aukn­ingu í árásum á síð­ustu árum mun erf­ið­ari fyrir land og þjóð.

Enn fremur er fjallað um í grein­inni hversu hátt félags­legt traust mælist hér á landi, það er að fólk treysti almennt hvert öðru og að félags­legt öryggi sé meira en víða. Haft er eftir Gunnari Helga Krist­ins­syni, pró­fessor við félags­vís­inda­deild Háskóla Íslands, að félags­legt traust sé eft­ir­sóttur eig­in­leiki í öllum sam­fé­lögum. „Það gerir hag­kerfið öfl­ugra, lýð­ræðið sterkara og fólk ham­ingju­sam­ara og heil­brigð­ara. Í fræði­ritum er aldrei neitt slæmt tengt heil­brigðu trausti,“ segir Gunnar Helgi.

Í grein­inni segir að svika­hrappar nýta sér þetta traust og eru Íslend­ingar hvattir til að vera var­kár­ari á net­inu. Jafn­framt er haft eftir sér­fræð­ingum í net­glæpum að þum­al­putta­reglan sé að svara alltaf fjár­hags­legum fyr­ir­spurnum eða skip­unum í gegnum annan miðil, eins og til dæmis að svara tölvu­pósti með sím­tali

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

netárás

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár